Frjáls verslun - 01.09.1978, Side 83
Stjórnvöld sinna
fluginu ekkert
segir Siguröur Aðal-
steinsson hjá Flugfé-
lagi Norðurlands,
sem flýgur áætlunar-
flug til níu staða
Líklega vita það flestir, að á Ak-
ureyri er starfrækt flugfélag,
Flugfélag Norðurlands, sem um
nokkurra ára skeið hefur verið ó-
metanlegt í samgöngum þar
nyrðra. Líklega kemur umfang
fyrirtækisins þó einhverjum á ó-
vart, því það kemur nokkuð víða
við. Fast áætlunarflug er til níu
staða norðanlands, vestan og
austan, mikið leiguflug, þar á
meðal til Grænlands, sjúkraflug
og nú undanfarið einnig kennslu-
flug.
Ekki reyndist heiglum hent að
ná sambandi við forráðamenn
flugfélagsins, því þeir gegna flug-
mannsstörfum og öðru, jafnt sem
stjórnun. Þó tókst að stöðva Sig-
urð Aðalsteinsson við símann
nokkra stund og fer hér á eftir það,
sem hann hafði um fyrirtækið að
segja:
,,Ég veit varla hvað þetta fyrir-
tæki er gamalt," sagði Sigurður,
„því þótt við höfum ekki rekið það
undir þessu nafni nema frá hausti
1974, þá er þetta fyrirtæki beint
framhald af Norðurflugi Tryggva
Helgasonar, sem starfaöi frá ár-
inu 1958. Félagið er því annað
hvort fjögurra ára eða tíu ára."
Eiga fimm flugvélar
„Fyrir þessum fjórum árum
keyptum við allar eignir Noröur-
flugs og hófum starfsemi undir því
nafni sem situr á í dag. Flugvéla-
kosturinn var þá ein Aztecvél, sem
tók fimm farþega og þrjár gamlar
Beechcraft vélar. Síðan erum viö
búnir að losa okkur við Beechcraft
vélarnar og eigum nú tvær Twin-
Otter, nítján farþega, eina Chief-
tain, níu farþega, Aztecvélina og
svo eina kennsluvél, sem viö erum
nýbúnir aö fá.“
Aætlunarflug til 9 staða
„Allt frá árinu 1975 höfum við
haldið uppi föstu áætlunarflugi til
átta staða, þ. e. ísafjarðar, Gríms-
eyjar, Húsavíkur, Kópaskers,
Raufarhafnar, Þórshafnar,
Vopnafjarðar og Egilstaða. Nú fyr-
ir skömmu hófum við svo áætlun-
arflug til níunda staðarins, þ. e.
Siglufjarðar. Tíðni ferða er frá
tvisvar í viku, upp í fimm sinnum í
viku.
Utan áætlunarflugsins rekum
við svo leiguflug, sem hefur fariö
mjög vaxandi, m. a. til Grænlands.
Sjúkraflug er allnokkuð og svo
bætist nú kennsluflugið við, þótt
ekki sé ætlunin að gera þaö af-
gerandi þátt í rekstrinum.
Um afkomuna er það aö segja,
aö þetta gengur. Viö eigum í viss-
um erfiðleikum með peninga, en
endarnir ná saman og þaö verður
að nægja. Ekki svo að skilja, að við
séum neitt sælir. Staðreyndin er
sú, að stjórnvöld gera allt of lítið
fyrir þennan þátt samgangna. Þau
gera raunar hreinlega ekkert. Þó
gætu þau greitt ákaflega mikið