Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.08.1981, Blaðsíða 8
TliCLAÐ á ísland meö 7% af heildarlánum Norræna fjárfestingarbankans Hinn 1. júní sl. voru fimm ár frá því Norræni fjárfest- ingarbankinn var stofnaður í Helsingfors. Hlutverk bank- ans er fyrst og fremst að styrkja samvinnu milli fyrir- tækja og stofnana í fimm Norðurlandanna, þ.e. í Sví- þjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og íslandi, með lán- veitingum til framkvæmda sem unnar eru í sameiningu af aðilum í aö minnsta kosti tveimur Noröurlandanna. Á síðasta ári veitti bankinn fyrstu byggðalánin til svæða innan Norðurlandanna þar sem þörf er á uppbyggingu. Tveir íslenskir aðilar hlutu þá lán í þessum lánaflokki, þ.e. Framkvæmdasjóður og Iðnþróunarsjóður. En stærstu lánin sem bankinn hefur veitt til íslands voru árið 1976 til þess að reisa verksmiðjuna á Grundar- tanga og áriö 1978 til Landsvirkjunar vegna Hrauneyjarfossvirkjunar. Starfsemi bankans nær einnig til lánveitinga til framdráttar norrænum út- flutningi. Frá upphafi og fram á mitt ár 1981 hefur bankinn lánað alls 3,3 milljarða sænskra króna til 100 framkvæmda. Lánin hafa fyrst og fremst farið til framkvæmda á sviði orku, iðnaðar og sam- gangna. Skipting útlánanna sýnir að öll Norðurlöndin fimm hafa getað notfært sér bankalánin í eölilegu sam- ræmi viö hlutdeild sína í stofnfjármögnun bankans (Svíþjóð 45%, Danmörk 22%, Noregur og Finnland 16% hvort og island 1%). Hlutfallslega hafa lánin skipst þannig milli landanna að 36% hafa farið til Svi- þjóðar, 19% til hvers hinna þriggja landa, Danmörku, Finnlands og Noregs, og 7% til Islands. Það vekur athygli að eng- inn starfsmannanna 36 er islendingur. Aðspurður sagði Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri í viðskipta- ráðuneytinu, sem sæti á í stjórn bankans, að þeir vildu mjög gjarna fá íslending til starfa, en það hefði ekki tekist hingað til þótt ítrekað hafi verið reynt. Því skilyrði til starfa hjá bankanum er ekki aðeins reynsla í banka- viðskiptum heldur og góð þekking á Norðurlandamál- unum. Fjarvinnslunet Skýrsluvéla teygir sig um landið Reisulegt hús Rafmagns- veitunnar við Ármúla Framkvæmdir eru í fullum gangi við nýjar höfuðstöðv- ar Rafmagnsveitu Reykja- víkur inni við Ármúla og Grensásveg. Ekki hafa menn verið einhuga um ágæti þessara stórhuga að- gerða Rafmagnsveitu- manna á sama tíma og veit- an hefur óskað ítrekað eftir verulegum hækkunum á rafmagnstöxtum. Hvað sem því líður er Ijóst, að þarna mun rísa hið veglegasta hús eins og meðfylgjandi teikn- ing ber með sér. Rafmagns- veitan hefur lengst af búið í leiguhúsnæöi víðs vegar í borginni. Gilti það jafnt um skrifstofur, aðstöðu verk- stjórnar og vinnuflokka svo og birgðavörzlu og verk- stæði. Á 50 ára afmæli Raf- magnsveitunnar var lagöur hornsteinn að 1. áfanga bækistöðvar við Ármúla. Var hún tekin í notkun 1972. Þar eru til húsa tækniskrifstofur, verkstjórn og vinnuflokkar, birgðaflokkar og verkstæði. Allt frá því að þessi bæki- stöð var tekin í notkun var ráðgert að hefja sem fyrst byggingu síðari áfanga á lóðinni, þ.e. skrifstofuhús- næði sem sameinaöi ásamt eldri byggingunni alla starf- semi Rafmagnsveitunnar í einni bækistöð. Eins og fram kemur á ís- landskortinu hér aó ofan, er sýnir sívinnslu- og fjar- vinnslunet SKYRR (Skýrslu- véla ríkisins og Reykjavíkur- borgar), og meðfylgjandi skýringum, vinna SKÝRR nú að því að skermavæða landið til afnota fyrir inn- heimtumenn, skattstjóra og fasteignamat ríkisins. Tölv- an er staðsett í Reykjavík og er þegar búið að tengja Akureyri. Fer innheimta þar nú fram með svipuðum hætti og hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík. Til viðbótar því sem hér kemur fram er að Bifreiða- eftirlit ríkisins er nú að koma inn í netið og hefur fógeti á Akureyri nú þegar aðgang að bifreiðaskránni þar sem öll bílaeign landsmanna kemur fram. Einnig eru skrifstofur bifreiðaeftirlitsins á Akureyri, Keflavík og Hafnarfirði að koma inn í þetta net. 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.