Frjáls verslun - 01.08.1981, Qupperneq 93
5) Hverjar eru tilfinningar þínar
nú? Hvernig finnst þér valiö
hafa tekist?
Úrtakiö sem viö völdum
samanstóö af 40 fjölskyldum og
hér á eftir fylgja síðan helstu
niöurstööur.
a) Þörf.
Hér var þaö tvennt sem skar
sig aðallega úr. í fyrsta lagi
sagðist fólk vera aö stækka viö
sig, þ.e. þaö þurfti að fá sér
stærri íbúö vegna fjölgunar í
fjölskyldunni. Þetta er e.t.v. ungt
fólk sem búiö hefur í lítilli
tveggja herbergja íbúö, en þegar
fjölskyldumeðlimirnir eru e.t.v.
orönir fjórir, þá er tímabært að
stækka við sig.
í ööru lagi kom þaö mjög oft
fyrir aö fólk sagðist vilja vera út
af fyrir sig, losna úr blokkum þar
sem oft var ósamkomulag og
háreysti sem fólk gat ekki sætt
sig við.
Okkur virtist þaö nokkuð
áberandi aö engin þörf beindist
sérstaklega aö timburhúsum,
þ.e. fólk sagðist ekki endilega
vilja timburhús. Þetta er atriöi
sem okkur finnst aö framleiö-
endur ættu að reyna aö nýta
sér, t.d. meö því að reyna aö
sveiga þessi hús eins konar
„sveitarómantík", og skaþa
þannig sérstaka þörf fyrir
timburhús. Viö getum hugsað
okkur út frá þeim sjónarhóli aö
undanfarin ár hefur verið mjög
mikil verðbólga hér á landi og
aöalsmerki hennar hefur veriö
að byggja sér hús úr stein-
steypu. Þannig hefur þetta verið
eitt aöalmarkmiö lífsgæöakaþp-
hlaupsins. Okkur fyndist nú til-
valið fyrir framleiðendur aö
reyna aö breyta þessu. T.d. með
því aö setja rómantíska auglýs-
ingu í sjónvarpið þar sem þeir
gefa fólki kost á aö flýja frá
þessu eilífa lífsgæðakapphlaupi
og fá sér timburhús, sem minnir
á „gömlu, góöu dagana" þar
sem brakaði í húsum o.s.frv.
Þarna gætu þeir fært sér í nyt
eitt af því sem margir telja ókost
við timburhús, þ.e. aö það braki
í þeim (sbr. síöar). Þetta fyndist
okkur vera veröugt verkefni fyrir
einhverja auglýsingastofuna.
b) Upplýsingar.
Hér virðist fólk helst fá ráö-
leggingar frá vinum og kunn-
ingjum (sem þá flestir búa í
steinhúsum). í þeim viðtölum
sem viö áttum viö fólk, virtist
frekar lítið um að þaö aflaði sér
upplýsinga hjá framleiðanda
sjálfum (nema þaö kæmi strax
mjög sterklega til greina aö
byggja timburhús), en það má
vera að það sé vegna þess aö
þessi viðtöl eru tekin í Stór—
Reykjavíkursvæðinu, en fram-
leiðendur eru flestir utan þess,
nema Húsasmiöjan, en hún selur
lítið af sínum húsum í Reykjavík.
Hér viljum við benda fram-
leiöendum á að þaö gæti verið
ómaksins vert aö setja á stofn
umboðsskrifstofur í Reykjavík og
auglýsa þær vel sem slíkar.
Okkur er kunnugt um að fram-
leiðendur utan Stór-Reykjavíkur-
svæöisins eru meö umboðs-
skrifstofur hér. en okkur finnst
lítiö fara fyrir þeim.
Framleiöendur hafa þó gert
eitt sem við erum hrifnir af, en
þaö er að þeir hafa beitt nokk-
urs konar markaöshlutun
(market segmentation), þ.e. þeir
hafa fengiö sömu upplýsingar og
viö hjá Reykjavíkurborg, þ.e.
upplýsingar um þaö hverjir hafa
fengið úthlutaö lóðum og síöan
hafa þeir sent viðkomandi bréf
og bæklinga um timburhús viö-
komandi framleiöanda. En þetta
teljum viö ekki nóg. Eins og kom
fram hér aö framan, þá fær fólk
helst upplýsingar hjá vinum og
kunningjum og tekur eflaust
mikiö mark á þeim, þannig aö
við teljum nauösynlegt fyrir
framleiöendur aö beina spjótum
sínum sterkt aö almenningi öll-
um, til að breyta viðhorfum
hans, þ.e. aö fá fólk til aö breyta
viðhorfum sínum gagnvart timb-
urhúsum.
c) Mat
Það sem hér virtist helst koma
til, var aö fólk var almennt mjög
hrætt viö alkalískemmdir sem
svo mjög hafa verið til umræöu
undanfarin ár. Þó að e.t.v. hafi
verið komið í veg fyrir alkalí-
skemmdir í steinhúsum nú, þá
virðist almenningur ekki full-
komlega treysta því og þetta er
atriði sem framleiðendur timbur-
húsa ættu aö nýta sér.
Einnig spilaði verðið stóran
þátt í ákvöröun fólks og þaö á
tvennan hátt. Sumir héldu því
fram aö það væri mun ódýrara
aö byggja timburhús (sem ef-
laust er rétt, þó munurinn sé
eflaust ekki eins mikill og oft
hefur veriö látiö í veöri vaka), en
svo voru auðvitaö aðrir sem ekki
Verktakafyrirtæki, sem annast alla
þætti byggingastarfsemi úti og
inni.
V.M.C. kerfismót fyrir veggi og loft-
plötur. Timburhús. Innréttingar
hverskonar. Útihurðir og gluggar
meö ,,SLOTTS LISTEN“ varan-
legum innfræstum þéttilistum.
Öll viðhaldsþjónusta, svo sem
húsaklæðningar, endurnýjun á
gleri o.fl.
Loftpressuvinna með fullkomnum
tækjum.
I3YGGINGAREI.AG
ORMSVELLI 5 - 860 HVOL8VELLI NNR. 0600-1207 - SÍMI 5400
93