Frjáls verslun - 01.08.1981, Qupperneq 26
tvo syni, 13 og þriggja ára. Ólöf
hefur þetta að segja:
,,Ég tel ástæðurnar fyrir þessari
..barnafæð" vera margar og
margvíslegar, en þó sú helst að
flestum foreldrum er ofviða að
sinna sómasamlega andlegum og
líkamlegum þörfum fleiri barna en
tveggja og vera jafnframt úti á
vinnumarkaðnum. Það er stað-
reynd að langflestir foreldrar lítilla
barna stunda launavinnu í meira
eða minna mæli, annaðhvort af
nauðsyn eða löngun eða hvoru-
tveggja, enda fólk oftast tilneytt að
vinna sér fyrir þaki yfir höfuðiö
einmitt á sömu aldursárum og það
er hvað „hæfast" til barneigna frá
náttúrunnar hendi.
Sé það raunverulega talið
nauðsynlegt að fjölga barneignum
á íslandi, verður samfélagið að
koma verulega til móts við foreldra
lítilla barna með það sjónarmið að
leiðarljósi að hagur barnanna er
ekkert einkamál foreldranna held-
ur mál þjóðfélagsins í heild. Þar
má nefna næga og góða dagvist-
un, samfelldan skóladag, tækifæri
fyrir foreldra smábarna til þess að
stytta vinnutíma sinn án launataps
eða hafa sveigjanlegan vinnutíma,
umburðarlyndi gagnvart fjarveru
úr vinnu vegna veikinda barna o.fl.
í augum sumra skiptir miklu máli
að ástand og horfur í veröldinni
gera þaö ekki beinlínis fýsilegt að
setja börn í heim sem á sér svo
stórt vopnabúr að nægir til að
granda öllum jarðarbúum marg-
sinnis. Óvissa um framtíðina og
framtíðarhorfur barnanna eru ekki
hvetjandi þættir.
En er það ekki út í hött að líta á
fækkun barneigna sem vandamál
þegar hin gífurlega fólksfjölgun í
heiminum sem heild er eitt af stór-
vandamálum mannkynsins?"
Ingibjörg Rafnarerhúsmóðirog
héraðsdómslögmaður í hjáverk-
um. Eiginmaður hennar er Þor-
steinn Pálsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands (slands,
og eiga þau þrjú börn — tvær
telpur og einn dreng — á aldrinum
sjö, fjögurra og tveggja ára. Ingi-
björg hafði þetta að segja:
,,Þegar höfð er í huga sú stað-
reynd að konur hafa vegna meiri
menntunar og fjölbreyttari at-
vinnutækifæra en áður leitað í
auknum mæli út í atvinnulífið, er
skiljanlegt og eðlilegt að fólk tak-
marki við sig barneignir. Hvort sú
takmörkun tekur mið af einu,
tveimur eða þremur börnum fer
eftir aðstæðum hverju sinni." gg
Atvinnurekendur
starfshópar
Við bjóðum nú betri þjónustu vift útsend-
in«ar á mat en bekkst hefur áður hér á
landi.
•
Við skómmtum matinn í einangraða bakka,
sem halda matnum heitum í að minnsta
kosti 2 klst.
Við þorum að fullyrða, að þetta sé heppi-
legasta lausnin við útsendingar á mat.
Matstofa MiMells sf.
26