Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 13
Guðmundssonar og öruggri
fjármálastjórn, sem hann
sagði að tæki öllu öðru fram
hjá fyrirtækjum og stofn-
unum borgarinnar.
„Skítapakkið'' fór hrein-
lega hjá sér á fundinum en
margir hugsuðu sem svo að
nú hlyti Vilmundur að eiga í
vök að verjast og mikið lægi
við úr því að hann legóist
hundflatur í allt svínaríið.
Búnaðarbanki
í Breiðholti
Búnaðarbankinn er að
færa út kvíarnar i Breið-
holtsbyggðum. Bankinn
mun hafa hug á aö hefja
útibúsrekstur fljótlega í
Seljahverfi og hefur ráðgert
að byrja í húsnæði i
Stekkjarseli, sem hefur verið
notað fyrir tannlæknastofu.
Ætlar bankinn að vera þar i
nokkur ár þar til hann hefur
byggt útibú á miðsvæði
Seljahverfis. Þá hefur spurzt
að Búnaðarbankinn hafi
ennfremur fyrirætlanir á
prjónunum um að reka útibú
í Hólahverfi í Breiðholti, í
síðari áfanga verzlunarmið-
stöðvar Gunnars Snorra-
sonar i Hólagarði, sem
framkvæmdir eru enn ekki
hafnar við. Þar er einnig
fyrirhuguð aðstaða fyrir
veitingarekstur og munu
þeir Pétur Sveinbjarnarson
og Haukur Hjaltason á Aski
íhuga sterklega að setja þar
upp veitingastofu.
Sameiginleg
hagsmuna-
gæzla skipa-
félaga?
Fram hefur komið að Eim-
skip og Hafskip eru sameig-
inlega að kanna hagkvæmni
í rekstri bílaferju- og far-
þegaskips í millilandasigl-
ingum. Fleiri hagræðingar-
mál munu vera rædd um
þessar mundir á sameigin-
legum vettvangi skipafélag-
Tuborg-bjór —
næsta
útspil Kók í
gosdrykkja-
stríðinu?
Baráttan um gosdrykkja-
markaðinn gerist stöðugt
æðisgengnari og hefur
staðan orðið tvísýnni eftir
hið óvænta stökk Davíðs
Sch. Thorsteinssonar inn á
þann markað með hinar
nýju sódavatnsvélar og
gosblöndur, sem fyrirtæki
hans Sól h.f. býður neitend-
um hér. Baráttan stendur þó
fyrst og fremst á milli Pepsi
og Coca cola. Mörg orð
voru höfð um óeðlilegar
leikreglur í samkeppninni,
þegar Pepsi fékk einkasölu-
leyfi á þjóðhátíðinni í Eyjum.
Ekki mun þetta neitt eins-
dæmi um að harðnandi
samkeppni hafi leitt til
skringilegra viðskiptahátta
gosdrykkjaframleiðenda.
Þannig hafa stórir kúnnar
hreinlega getað kúgað gos-
drykkjafyrirtækin til að af-
henda ekki keppinautum
framleiðslu sína til sölu og er
eitt frægt dæmi um þetta úr
sjoppustríði í Breiðholtinu.
Nú herma fréttir að Kók
ætli að bæta stöðu sína
gagnvart Pepsi með því í
fyrsta lagi að bjóða upp á
TAB-drykkinn, sem er eins
konar megrunargosdrykkir
og ennfremur hafa Kók-
menn í hyggju að ná
pilsnermarkaðnum hér með
samkomulagi við Tuborg-
verksmiðjurnar dönsku,
sem sagt er vera á næsta
leiti. Ætlar Kók að setja
óáfengan Túborg-mjöð á
flöskur hér innanlands og
selja á markaðnum á svip-
uðu verði og gerist um inn-
lenda pilsnerframleiöslu.
Beint sjónvarp
frá Noregi í
haust?
Menn bíða þess með nokk-
urri eftirvæntingu að ís-
lenzka sjónvarpið sýni bein-
ar útsendingar að utan eða
nýjar fréttamyndir sem bær-
ust hingað spánnýjar fyrir
milligöngu jarðstöðvarinnar
Skyggnis. Framgangur
málsins strandar á samn-
ingum Ríkisútvarps og
sjónvarpsstöðva daglega
mun af því leiða mjög um-
talsverðan kostnað, sem
væri stofnuninni um megn
eins og sakir standa, nema
því aðeins að póst- og
símamálayfirvöld lækkuðu
taxta sína verulega. Við því
er búizt að upphaf beinna
sjónvarpssendinga frá út-
löndum hingað til lands beri
að með þeim hætti að erlend
sjónvarpsstöð bjóði slíkt
fram (slendingum að kostn-
aðarlausu af einhverju sér-
stöku tilefni, sem áhugavert
þyki hér á landi. Velta menn
því fyrir sér hvort slíkt boð
muni koma frá Norðmönn-
um í tengslum við opinbera
heimsókn forseta (slands til
Noregs í október.
Pósts og síma um gjaldskrá.
Ef sjónvarpið á að notfæra
sér sameiginlega frétta-
þjónustu Evrópusambands
anna og þá á breiðara
grundvelli með þátttöku
fleiri aðila en þessara
tveggja félaga. Mun ætlunin
að setja á stofn samtök
skipafélaganna, sem beiti
sér fyrir ýmsum hagsmuna-
málum aðildarfélaganna,
hugsanlega með sameigin-
legum olíuinnkaupum, i
tryggingamálum og gagn-
vart stjórnvöldum varðandi
gjaldskrár og fleiri mál, sem
reka þarf hjá hinu opinbera.
13