Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 12
Fyrirtæki í
byggingar
hugleiöingum
Ýmis fyrirtæki í Reykjavik
hyggja nú á byggingarfram-
kvæmdir og er umtalsverð-
ust uppbygging verzlunar-
og þjónustusvæðis í svo-
kallaðri Mjódd í Breiðholti.
Þar er Landsbankinn þegar
kominn alllangt með nýtt
útibú en á efri hæð þess
verður heilsugæzlustöð á
vegum borgarinnar í leigu-
húsnæði frá bankanum.
Eigendur bíósins í Keflavík
eru aö byggja kvikmynda-
hús á þessu svæði einnig.
Þá hafa eftirtalin fyrirtæki
verið að leita eftir samþykki
borgaryfirvalda á teikning-
um sínum að nýbyggingum í
Mjóddinni: Einar Farestveit
og Co., kjallari og 3 hæðir
að Þarabakka 3. ÁTVR og
Póstur og sími, kjallari og
tvær hæðir. 9963 rúmmetrar
að Þönglabakka 6, Apótek
Breiðholts að Álfabakka 12.
Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar Álfabakka
14 og Brauðbær að Álfa-
bakka 16.
Þá ætlar isafoldarprent-
smiðja að byggja iðnaðar-
og skrifstofuhús að Reykja-
nesbraut 8, tvö hús á þrem-
ur hæðum, alls 12 þús.
rúmmetrar. Ingvar Helga-
son hefur í hyggju að reisa
bílasýningarskála að
Rauðagerði 27 og Sportver
ætlar að byggja nýtt verk-
smiðju- og skrifstofuhús á
lóöunum Laugavegur 47,
þar sem verzlunin Adam er
nú til húsa, og Frakkastígur
9 Eggert Kristjánsson og
Co. hefur látið gera upp-
drætti að sex hæða skrif-
stofuhúsi og vörugeymslu,
sem ráðgert er að reisa í
Sundagörðum 10.
Ráðhús
á Hótel Borg?
Umræður um ráðhús
Reykjavíkur eru ekki nýjar af
nálinni. Fyrir u.þ.b. 20 árum
var ráðhúsmáliö komið á
góðan rekspöl og þá stofn-
aður sérstakur sjóður með
framlögum borgarsjóðs íþví
skyni að fjármagna bygg-
inguna. Ekki leizt mönnum
þó alls kostar vel á hug-
myndir sem fyrir lágu þá um
byggingu ráðhússins við
norðurenda Tjarnarinnar.
Síðan hefur umræða um
ráðhús Reykjavíkur að
mestu legið í láginni fyrir
utan þaö að Albert Guð-
mundsson hefur gert tillög-
ur um að Alþingi byggi yfir
starfsemi sína við Rauða-
vatn en borgin fái þinghúsið
sem ráðhús.
Nú mun einhver hreyfing
vera komin á ráðhúsmál á
nýjan leik vegna húsnæðis-
vanda borgarskrifstofanna.
Þær eru dreifðar víðs vegar
um mióbæinn og þykir
mönnum tímabært að stefna
aö meiri sameiningu. Hús
Almennra trygginga við
Austurvöll mun vera til sölu
en þar leigir Reykjavíkur-
borg að hluta. Nokkur
óvissa ríkir um framtíðar-
leigumála borgarinnar i húsi
Reykjavíkurapóteks. Þess
vegna beinast augu for-
ráðamanna borgarinnar nú
Vimmi biður um gott veður hja
„skítapakkinu“
Nýlega var haldinn fundur
hjá einu flokksapparati Al-
þýðuflokksins í Reykjavík,
þar sem um 25 voru mættir
af um 200, er rétt höfðu til
setu á fundinum. Þessir 25
voru aðallega úr ..skíta-
pakkinu", en svo nefnir Vil-
mundur Gylfason, alþingis-
maður, borgarfulltrúa
flokksins, Björgvin Guð-
mundsson, nánustu sam-
starfsmenn hans og vensla-
fólk í kratísku herbúðunum.
Það sem eftir situr eftir þetta
fundahald er viðleitni
Vimma til að koma sér i
mjúkinn hjá Björgvin og
hinu ..skítapakkinu". Al-
þingismaðurinn hélt sem sé
ræðu á fundinum og hældi
Björgvin á hvert reipi fyrir
frábæra stjórn hans á mál-
efnum Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. Sem kunnugt
er af fréttum kom fram
nokkur hagnaður á reikn-
ingum BÚR i fyrra, þegar
forsvarsmenn útgerðarinn-
ar meó Björgvin formann
útgerðarráðsins í farar-
broddi höfðu beitt bók-
haldsaðferðum, sem borg-
arendurskoðun og siðar
borgarstjórn hafa dæmt
óhæfar. Vilmundur átti tæp-
ast orð til að lýsa aðdáun
sinni á fjármálaviti Björgvins
að hinum enda húsaraðar-
innar við Austurvöll austan-
verðan — að Hótel Borg,
sem hefur verið á fasteigna-
markaönum undanfarið.
Óvissa ríkir um hótelrekstur
þar í framtíðinni en ýmsir
telja að húsið gæti reynzt
hentugt fyrir skrifstofur
borgarinnar og starfsemi
borgarstjórnar.
12