Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 83
það er hagkvæmara en að flytja
beint inn. Verðstríð Ríkisskipa og
Eimskipa á siglingaleiðinni
Reykjavík — Akureyri, hefur m.a.
komið heildsölum til góða í lækk-
uðum flutningsgjöldum til Akur-
eyrar. sem auðveldar þeim að
bjóða lágt verð.
Hér hefur verið stiklað á stóru í
verslunarþróuninni að undan-
förnu og leitast við að gefa nokkra
mynd af ástandinu. Ef reynt er að
draga ályktun af ofanrituðu verður
hún á þá leið að aukin samkeppni
og breyttir verslunarhættir á Akur-
eyri hafi í raun styrkt öflugustu
fyrirtækin á þessu sviði, einkum í
mynd stækkaðs markaðssvæðis,
þar sem fólk telur nú hag í að
sækja langan veg til Akureyrar Eimskipafélag fslands hefur styrkt stöðu sína verulega eftir að félagið tók í
vegna vöruúrvals og verðlags. — notkun nýju vöruskemmuna og afgreiðsluna á hafnarbakkanum.
Vörumiðar á Akureyri
H.S. vörumiðar er prent-
smiðja á Akureyri, sem hefur
sérhæft sig í framleiðslu sjálf-
límandi vörumiða og merkja.
„Upphaflega byrjaði starfsemin,
sem hálfgert tómstundaverkefni
og fram til ársins 1977 voru það
við hjónin eingöngu sem störfuð-
um við þetta," sagði Hörður Svan-
bergsson eigandi HS. vörumiða í
viðtali við Frjálsa verzlun á dög-
unum.
Á því ári 1977 jukum við véla-
kostinn og starfsemin hefur stöð-
ugt verið að aukast síðan. Nú
starfa tveir starfsmenn við fyrir
tækið í fullu starfi auk eins til
tveggja í hluta starfi."
Að sögn Harðar hefur starfsemin
öll verið i kjallara heimilis þeirra
hjóna á Akureyri og ekki eru nein-
ar ráðagerðir um að flytjast þaðan
á næstu árum. Það eru enn
stækkunarmöguleikar. Hafa þeir
orðið i kjölfar þess að verið er að
leggja hitaveitu í öllu hús á Akur-
eyri. Um nokkurt árabil tíðkaðist
að setja upp svonefnda næturhit-
un i hús á Akureyri. Nú hefur henni
verið hætt. „Samfara því fáum við
40—50 fermetrum meira fyrir
starfsemi prentsmiðjunnar," sagði
Höröur.
Árni Harðarson, sonur Harðar, og Hilda Árnadóttir, eiginkona Harðar, við prent-
vélina.
,,Hjá okkur stendur veruleg
aukning á vélakosti fyrir dyrum.
Eftirspurn hefur verið stöðug og
nærsamfelldaukningáframleiðslu
þrátt fyrir að við höfum gert mjög
lítið af því að kynna starfsemina
eða auglýsa.
Að sögn Harðar býður þrent-
smiðjan upp á allt að tveggja lita
prentun samtímis. Auk þess er
hægt að fjölga litunum við tvítekn-
ingu. Verkefnin hafa aðallega ver-
ið fyrir ýmsi framleiðslufyrirtæki
auk merkja fyrir félög og fyrirtæki.
Vegna nýrra reglna um merkingar
neysluvöru þá hefur prentun slíkra
miða mjög aukist upp á síðkastið.
Viðskiptavinir HS merkimióa eru
víða um land og engan veginn
bundnir við Norðurland. Sem
dæmi um framleiðsluna má taka
auk vörumiða, útfluntingsmiöa,
miða fyrir lyfjabúðir, mótsmiða
fyrir íþróttamót svo nokkuð sé
nefnt.
83