Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.08.1981, Blaðsíða 29
Allt að því bylting á sér nú stað í heiibrigðisþjónustu landsbyggð- arinnar. Bylting þessi á rætur að rekja til nýskipanar alls lækninga- og heilsuverndarstarfs sem unnið er utan sjúkrahúsa, en grundvöll- ur að henni var lagður í III. kafla laga um heilbrigðisþjónustu nr. 56/1973 er öðluðust gildi í janúar 1974, og endurskoðaðri löggjöf nr. 57/1978. Aðalhvati að nýskipan þessari var hve illa gekk að fá lækna til starfa í dreifbýli þar sem aðstaða var víða lítil og léleg, aðstoð engin og tækjaskortur slíkur að nútíma- lækningum var vart við komið. Þar við bættist einangrun sem læknar undu illa, og óttuðust þeir stöðn- un í starfi af þeim sökum og hinna er áður getur. Við slík skilyrði höfðu héraðs- læknar starfað víða í dreifbýli, og verður brautryðjendastarf þeirra — einkum fyrr á árum — seint fullþakkaö. En meö auknum fram- förum á sviði læknavísinda var augljóst að gamla héraðslækna- skipulagið var oröið úrelt — starf héraðslæknisins varð að losa úr viðjum einangrunar, bæta starfs- aðstöðuna og tækjakostinn, auka aðstoð við þá, o.fl. Hópstarf lækna í dreifbýli hófst 1970 Það voru læknar sjálfir sem frumkvæði áttu að breytingunni, og hófst hópstarf lækna í dreifbýli með stofnun læknamiöstöðvar á Húsavík árið 1970. í kjölfarið fylgdu Egilsstaðir og Borgarnes þar sem læknar og forsvarsmenn sveitarfélaganna hófust handa um byggingu læknamiðstööva — á Egilsstöðum á árunum 1969 og 1970 og í Borgarnesi upp úr 1970. Það var í þann mund er unnið var að undirbúningi að frumvarpi til laganna frá 1973, og hófst rekstur á báðum stöðum ekki fýrr en eftir gildistöku þeirra — á Egilsstöðum vorið 1974 og í Borgarnesi haustið 1975. Voru læknamiðstöðvar þessar þá nefndar heilsugæslu- stöðvar í samræmi við ákvæði nefndra laga. Heilsugæslustöðvar utan Reykjavíkur 71 skv. lögum ,,Um heilsugæslu" heitir III. kafli laganna sem í upphafi getur og merkir hún ,,í þessum lögum heilsuverndarstarf og allt lækn- ingastarf, sem unnið er vegna heilbrigðra og sjúkra, sem ekki dveljast á sjúkrahúsum." Þar segir og að til þess að annast þessa heilsugæslu skuli setja á stofn heilsugæslustöðvar. Skv. lögunum frá 1973 er land- inu skipt í fimm læknishéruð og þeim aftur í 27 heilsugæsluum- dæmi. Innan þessara umdæma eru 40 starfssvæði. Utan Reykja- víkur eru starfssvæðin 39 og er þar gert ráð fyrir 13 heilsugæslu- stöðvum 1 (H 1) þar sem einn læknir starfar ásamt öðru starfs- fólki og 26 heilsugæslustöövum 2 (H 2) þar sem tveir læknar hið minnsta starfa ásamt öðru starfs- fólki. í bráðabirgðaákvæðum lag- anna er einnig gert ráð fyrir að heimilt sé ,,að ráða lækna og ann- að starfslið að heilsugæslustöð með búsetu og starfsstað utan stöðvar." I lögunum frá 1978 er sú breyt- ing gerð á skipan þessara mála að landinu er skipt í átta læknishéruð og þeim aftur í 28 heilsugæsluum- dæmi. Er það einu fleira en í fyrri lögum (Seltjarnarnesumdæmi bætt við sem í fyrri lögum tilheyrði Reykjavík). Utan Reykjavíkur eru heilsugæsluumdæmin þannig orðin 27, og heilsugæslustöðv- unum sem gert er ráð fyrir að starfi innan umdæmanna hefur verið fjölgað meö tilkomu heilsugæslu- stöðva H, skv. heimild bráða- birgðaákvæða laganna frá 1973. Slíkar stöðvar voru áður nefndar læknamóttökur, og er nú gert ráö fyrir 27 slíkum. Heyra þær undir H 1 eða H 2 stöð í viökomandi um- dæmi og hafa yfirleitt starfandi hjúkrunarfræðing eða Ijósmóður, en læknir vitjar þangað með vissu millibili. Einnig var gerð ákveðin breyting á fjölda H 2 og H 1 stöðva, þannig að þær fyrrnefndu skyldu nú vera 27 í stað 26 og hinar síð- arnefndu 17 í stað 13. Læknaskortur í dreifbýli ekki lengur óviðráðanlegt vandamál Breytingin úr gömlu héraðs- læknaskipuninni þar sem einn læknir sinnti allri heilbrigðisþjón- ustu íhéraði, íheilsugæslustöðvar með einum eða fleiri starfandi læknum, hjúkrunarfræðingum, Ijósmæðrum, riturum og víða meinatæknum og sjúkraþjálfurum og fleira starfsliði, hefur verið til mikilla bóta — um það efast víst enginn. Hún hefur leitt til betri og vandaðri heilbrigðisþjónustu í landinu því auk almennrar læknis- þjónustu eiga heilsuverndar- stöðvar skv. lögunum að veita ,,lækningarannsóknir, sérfræði- lega læknisþjónustu, tannlækn- ingar og endurhæfingu. hjúkrun í heimahúsum." Þá hefur heilsu- vernd verið tekin upp meira mark- visst en áður var, m.a. með skipu- lagðri mæðravernd, ungbarna- og smábarnavernd, hópskoðunum ýmiss konar og sjúkdómaleit, svo fátt eitt sé nefnt í þessum þætti starfsemi heilsugæslustöðvanna lögum samkvæmt. Síðast en ekki síst er þess að geta að fljótlega eftir gildistöku laganna fór að snúast við sú óheillaþróun að heil héruð væru án læknisþjónustu, og lækna- skortur úti um landið er ekki lengur óviðráðanlegt vandamál — þótt víða valdi tíð skipti á læknum á smærri stöðvum erfiðleikum og aukaútgjöldum fyrir viðkomandi sveitarfélög. Til marsk um árang- urinn má nefna að sl. vor voru stöðugildi lækna á heilsugæslu- stöðvum utan Reykjavíkur 72,3 (65 í nóvember 1976), og á sama tíma voru stöðugildi hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra 73, (39,5 í nóvember 1976). Af þessu má Ijóst vera að við stöndum nær því marki sem í upp- hafi títtnefndra laga segir, grein 1.1: ,,Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomnustu heilbrigðis- þjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigöi. Aðstöðumunur sveitarfélaga við rekstur ailt að sexfaldur En hvernig hefur svo verið staðið að framkvæmd þessara breytinga — eða kannski öllu heldur byltingar? Fyrir gildistöku laganna höfðu sveitarfélög víða engan kostnað haft af læknisþjónustu utan þess sem þau greiða í rekstri sjúkra- samlaga. En meö nýju lögunum og stofnun heilsugæslustöðvanna kom nýr og verulegur kostnaður á 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.