Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 41

Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 41
fá ekki mörg slfk tækifæri. (Frá Svíþjóð). Athugasemd: Heiöarleiki og ábyrgö — vilji til að vinna verkið vel og samviskusamlega en ekki bara hriöa launin — eru áberandi, eiginleikar í fari kvenna. Karl- menn eru aftur á móti frakkari og því hika þeir síður en konur viö aö taka á sig meiri ábyrgð, þótt skyn- semin ætti aö segja þeim að þeir heföu ærna fyrir. Eitt af vandamálunum sem ég átti við að etja var að halda mínu kvenlega eðli. Til þess að hafa við starfsbræðrum mínum komst ég að raun um að ég varð oft að taka upp starfshætti þeirra og venjur. Afieiðingin getur orðið annað vandamái sem konur í stjórn- unarstörfum fá oft að heyra, þ.e. að þær séu ráðríkar og frekar. Lausnin liggur í því að vera ákveðin án þess að vera frek. (Frá Bretlandi). Athugasemd: Svo lengi sem núverandi aöstæður haldast óbreyttar í viðskiptaheiminum er konan óörugg sem stjórnandi og leikur leik fyrirmyndarinnar — karlmannsins. En þegar fram í sækir og fleiri konur komast í stjórnunarstörf, taka þær örugg- lega upp annan stjórnstíl — stíl sem er nær þeirra eðli og þeirri stofnun sem þær þekkja best — heimilinu. Vinnutími minn, eins og svo margra starfsbræðra minna, nægir ekki til að Ijúka því sem gera þarf. Þetta vandamál er erf- iðara að leysa fyrir konu en karl. Ég tek mikið lesmál heim með mér af skrifstofunni og það gera karlmennirnir líka. En þeir hafa tíma til að lesa heima hjá sér á kvöldin. Það hef ég aftur á móti ekki. Þá taka húsmóðurstörfin við. (Frá Frakklandi). Mér semur vel við starfsbræður mína. En samstarfið við lægra settar starfssystur mínar er fullt af vandamálum. Margar eiga erfitt með að kyngja því að taka við verkefni frá yfirmanni sem er kona. (Frá Svíþjóð). Athugasemd: Þetta er sennilega rétt og hitt líka að karlar eiga erfitt með að taka við verkefnum frá konum. Sum fyrirtæki hika við að leggja peninga í þjálfun kvenna vegna hættunnar á því að þær hverfi af vinnustað um árabil til að koma upp fjölskyldum sínum. Af fjórum starfsbræðrum sem sóttu með mér námskeið fyrirtækisins fyrir fulltrúa til starfa erlendis er aðeins einn eftir auk mín. Hinir þrír fóru til annarra fyrirtækja. (Frá Bretlandi). Það nægir konum ekki að hafa tækifæri til jafns við karla. Að- staða þeirra til þess að fá tæki- færin verður líka að vera hin sama. Ein ástæðan fyrir því að þetta er stundum erfitt er það hvernig óformleg samskipti ganga yfirleitt fyrir sig í fyrirtækj- um. Karlstjónendur skiptast oft á veigamiklum upplýsingum yfir glasi í klúbb eða á krá, þar sem starfssystur þeirra eru sjaldséðir gestir. Það er erfitt fyrir konur í stjórnunarstöðum að brjótast inn í þennan hring og fá aðgang að veigamiklum upplýsingum — frá fyrstu hendi. (Frá Bretlandi). Athugasemd: Það er sama klúbbastússið á íslenskum karl- mönnum og verður hlutur kvenna í þessu sambandi ekki bættur fyrr en þær eru orðnar fleiri í stjórnun- arstööum. Ég hef hitt fjöida karlstjórnenda sem hefðu verið miklu ánægðari með það hlutverk að vera heima og sinna börnunum. Þeir eru margir stressaðir bara af því að þeim er ýtt áfram á framabrautinni hvort sem frami og ábyrgð á við þá eða ekki. Það væri heimskulegt ef konur gerðu sömu skyssuna. En það er leitt til þess að vita að við höfum ekki þennan valkost. (Frá Frakklandi) Athugasemd: Það er mikið til í því að karlar geri margt andstætt eðli sínu einungis vegna þess að til þess er ætlast af því þeir eru karl- menn. Ég sé um málefni starfsfólks- ins. í starfi sem þessu held ég að konur standi betur að vígi en karl- ar. Ég held að við séum næmari á tilfinningar fólks og líðan þess. Ég hef komist að raun um að þegar starfsmenn okkar eiga við vanda- mál að stríða segja þeir mér hina réttu ástæðu en eiginmanni mín- um, sem starfar með mér, gefa þeir einhverja yfirborðsskýringu. (Frá Bandaríkjunum). Yfirleitt eiga konur erfiðara en karlar með að deila ábyrgð og láta aðra vinna fyrir sig. Heima fyrir eru þær vanar að gera allt sjálfar. Nú verða þær að hætta þessu og fá aðra til að gera hlutina fyrir sig og með sér. (Frá Bandaríkjunum). Fyrstu árin eftir að ég tók við deildarstjórastarfi hjá fyrirtæki þar sem ég hef unnið í 19 ár, átti ég mjög erfitt með að deilda ábyrgð. Ég held að konur séu langtum nákvæmari en karlar. Við viljum að allt sé gert rétt og okkur hættir til að vantreysta því að svo verði nema við gerum hlutina sjálfar. Enn í dag hef ég meiri áhuga á starfsgæðum en afköst- um undirmanna minna. En með árunum hefur mér lærst að deila ábyrgð með öðrum og nú vísa ég fleiri verkefnum til annarra og stóla á þá. (Frá Bandaríkjunum). Athugasemd: Skýringin er e.t.v. ekki bara sú að konur eru vanar að gera hlutina sjálfar á heimilunum heldur einnig á skrifstofunum þar sem óalgengara er að konur hafi ritara en karlar. Það er ekki talinn sjálfsagður og eðlilegur hlutur að kona sé stjórnandi og meðan svo er getur verið að hún sé hrædd um að missa tökin nema hún geri sem mest sjálf. íftrl 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.