Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.08.1981, Blaðsíða 43
Ástæðan fyrir þessari einstæðu þróun er ekki sú að flugfélögin séu að búa sig undir að berast meira á í vélakosti og þjónustu né heldur að þau geri það af fúsum og frjálsum vilja að losa sig við þessar vélar, sem yfirleitt eru að mestu afskrif- aðar eftir 40.000 eða 60.000 flug- stundir (85.000 flugstundir að því er tekur til nokkurra af elstu DC-8 þotunum), og eiga því enn langa framtíð fyrir sér. Það sem því veldur að mörg flugfélög eru nú nauðbeygð til að selja eldri vélar í flugflota sínum eru margir sam- virkandi þættir — m.a. þeirsem nú verða taldir: Nýjar reglur um hávaða og mengun, sem koma til fram- kvæmda í Bandaríkjunum árið 1985 og þremur árum síðar í öðrum aðildarríkjum I.C.A.O., ná til reksturs rúmlega 900 flugvéla sem nú eru í notkun. Mótorskipti eru kostnaðarsöm, t.d. á DC-8 vélum, og að margra dómi borgar sig ekki að leggja út í þau. Undantekningar eru félög sem eiga margar, burð- armiklar vélar af sömu gerð sem ekki standast hinar nýju kröfur. Meðal þeirra er bandaríska félagið United Airlines sem á 70 vélar af gerðinni DC-8-61 og hefurákveðið að láta gera mótorskipti á þeim öllum. Önnur flugfélög vilja heldur selja vélarnar en leggja út í þennan kostnað — og kauþendur eru flestir meðal fraktflugfélaga og leiguflugfélaga sem vonast til þess að geta afskrifað þær að fullu áður en nýju reglurnar koma til fram- kvæmda. Þá hefur stórfelld hækkun elds- neytis gjörbreytt rekstrargrund- velli flugfélaganna og knýr það einkum hin stærri til að selja. Franska stórblaðið Le Monde hefur það eftir talsmanni Air France að áður fyrr hafi flugvéla- kaup numið 20% af rekstrargjöld- unum en eldsneytið 10%. Nú hafa þessar tölur snúist við þannig að 17% fara til vélakaupa og 24% til eldsneytiskaupa. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að flugfélög vilja nú í æ ríkara mæli losa sig við áður vinsælar vélar, eins og t.d. Cara- velle og Boeing-707 þotur af elstu gerð. Þetta er einnig ástæðan fyrir því að meira ber nú á því en áður að flugfélög vilja selja nýlegar vélar og nota peningana til að kaupa aðrar nýrri sem uppfylla betur kröfurnar — allt innan ramma þess hlutfalls sem flug- vélakaup eru nú í rekstrinum. Lufthansa reið á vaðið með sölu á sjö B-747 breiðþotum Þýska flugfélagið Lufthansa reið á vaðið í viðskiptum á þessum grundvelli er það seldi sjö 747 breiðþotur á árunum 1978 og 1979 fyrir sama verð (í Bandaríkjadoll- urum) og það hafði keypt þær. Þá má nefna að bandaríska flugfélagið Braniff International hefur gjörbreytt upþbyggingu flugflota síns í kjölfar mikils tap- reksturs. Eftir fjöldasölu á eldri vélum — sex til átta árum fyrr en til stóð — er meðalaldur véla í flug- flota félagsins nú undir fjórum árum. Og að því er varðar Air France þá stendur nú fyrir dyrum sala á fyrstu Airbusvélum félagsins. Kauþandinn er franska innan- landsfélagið Air Inter og er talað um sölu á tveimur slíkum risavél- um. Uppgrip fyrir minni flugfélög Margar þeirra véla sem nú eru á sölulistum eru langt frá því að vera gamlir jálkar og fást á allt að því útsöluverði. Þetta eru því uppgrip fyrir minni félög og leiguflugfélög sem ekki hafa bolmagn til að standa undir fjármögnun til kaupa á nýjum vélum og kjörið tækifæri fyrir þau að byggja upp flugflota sinn. Mörg hafa þegar gert það og fleiri eiga sjálfsagt eftir að gera það. Þannig hefur Air Inter þegar selt leiguflugfélaginu Altair í Feneyjum tvær Caravelle-3 vélar og samn- ingar eru langt komnir um sölu á þremur öðrum til flugfélagsins Intercontinental Airlines í Nígeríu. Suður-Ameríka er stór markaður fyrir notaðar vélar frá Evrópu og Ameríku. Gamlar Caravellevélar frá Alitalia fljúga nú í litum flugfé- laga í Kolombíu og Equador. Einnig seldi Alitalia nýverið perúska flug- félaginu Aeroperu tvær DC-8 62 þotur (sem lagt hafói verið fyrr í vor) á kaup-leigusamningum (á 4,8 milljón dollara til fjögurra ára), og samningar standa yfir um sölu á tveimur af sömu gerð til Venezuela, einni til Kolombíu og sennilega þeirri fjórðu til Equador. Áður hafði Aeroqeru keypt tvær notaðar Boeing-727 vélar til innanlandsflugs af Lufthansa og sú þriðja bætist sennilega í flota félagsins innan tíðar. Innanlandsflugfélag í Banda- ríkjunum, People Express, hyggst notfæra sér þessi kostaboð á not- uðum vélum og undirbýr nú kaup á 14 Boeing 737 þotum á einu bretti frá Lufthansa fyrir samtals 51,8 milljón dollara. Stóru flugfélögin snúa heldur ekki alfarið baki við þessum út- sölutilboðum Sum kaupa til þess að fjölga við sig vélum af þeim tegundum sem hætt er að fram- leiða. Meöal þeirra eru t.d. DC-8-63 þotur. Önnur kauþa not- aðar vélar sem enn eru í fram- leiðslu. Hugmyndin er að nota þær til að mæta flutningsþörfum meðan beðið er eftir afhendingu nýrra véla (sem getur dregist tvö til þrjú ár) — en selja síðan. Loks eru flugherir hinna ýmsu landa góðir viðskiþtavinir. Þannig hafa banda- rísk flugfélög lagt U.S. Air Force í einelti, ef svo má segja, í viöleitn- inni að selja notaðar Boeing-707 og DC-8 þotur og jafnvel DC-10 breiðþotur og Tristar. Hvert á að leita upplýsinga En hvert leita þeir sem áhuga hafa á þessum viðskiptum. Oft er það að upplýsingarnar berast mann frá manni innan flugbrans- ans. Þá auglýsa seljendur í flug- blöðum eða gefa jafnvel út sér- staka, myndskreytta bæklinga með upplýsingum um allt er varðar vélarnar sem þeir vilja selja. Það gerði ástralska flugfélagið Qantas sem nú er með 16 B-747 breiðþot- ur á söluskrá. Oftar er það þó svo að seljendur senda öðrum flugfé- lögum uþþlýsingarnar í skeyti. Einnig má nefna bandaríska tíma- ritið Avmark sem birtir reglulega lista yfir vélar og verð sem til sölu eru og segir frá nýlegum eigenda- skiptum. Loks eru það milliliðirnir sem kaupa margar vélar í senn og þá á hagstæðara verði — í þeirri von að þeir geti selt þær með hagnaði. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.