Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 79

Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 79
kvæmd er stækkun á verksmiðju og skrifstofu sem nemur 900 ferm. Um starfsemina hafði Guð- mundur m.a. þetta að segja: ,,Framleiðslan byggist á stöðluð- um timburhúseiningum. Húsin eru mjög mismunandi að stærð, eða allt frá 80 ferm í 160 ferm. U.þ.b. helmingur framleiðslu okkar eru íbúðarhús, en á síðasta ári var mikil aukning í framleiðslu stærri bygginga fyrir opinbera aðila, leikskóla, dagheimili o.fl. Einnig framleiðum við sumarhús. Annir eru það miklar hjá okkur að af- greiðslubið er þrír til fjórir mán- uðir. Við lítum björtum augum á framtíðina,'' sagði Sigurður að lokum. ,,Það hefur gengið þannig hjá okkur undanfarið að ég get ekki annað." Annað yngra og minna húsein- ingafyrirtæki er Samtak hf, stofn- að árið 1979. Það er sameign þriggja verktakafyrirtækja. Þau eru Bergur og Árni, Smiður og Dynjandi. Verkstæði er í 500 ferm leiguhúsnæði í iðnaðarhverfinu, en skrifstofan er í gamla mið- bænum að Austurvegi 38. Þar starfar Katla Leósdóttir sem sér um fjármál og rekstur skrif- stofunnar, en á verkstæði eru þeir Ingvar Jónsson og Trausti Traustason verkstjórar. Alls eru Katla kvað fyrsta stórverkefni þeirra hafa verið byggingu starfs- mannabústaða fyrir Landsvirkjun árið 1979. Stærsti hluti framleiðsl- unnar eru íbúðareiningahús og einnig er mikið framleitt af sumar- bústöðum. Allt eru þetta timbur- einingar og eru íbúðarhúsin 80—160 ferm að stærð, en stærstu verkefnin hingað til hafa verið um 300 ferm þjónustumið- stöð í Hamraborgum í Grímsnesi fyrir Sjómannadagsráð í Reykja- vík, og vistheimili á Sólheimum í starfsmenn fyrirtækisins nú 12. Grímsnesi sem einnig var nálægt Opið á laugardögum frá 10.00 til 12.00 Heimsókn okkar til Selfoss að þessu sinni lauk í versl- uninni Höfn við Tryggvatorg 1 — gegnt Ölfusárbrú. Fram- kvæmdastjórinn, Kolbeinn Ingi Kristinsson, var í sumar- fríi, en aðstoðarmaður hans, Garðar Gunnarsson, vísaði okkur veginn. Fyrirtækið hefur tvisvar skipt um eigendur frá því það var stofnað fyrir 1940. Að rekstri þess nú stendur hlutafélag, stofnað 1975, og heitir það fullu nafni Hlutafé- lagið Höfn. Söluvarningur í versluninni er 300 ferm að stærð. Þeir Ingvar og Trausti kváðu tré gott byggingarefni ,,ef því væri haldið við. Við notum glært fúa- varnarefni að utan svo fólk geti sjálft ráðið húslitnum. Húsin eru vel einangruð og hafa komið mjög vel út þannig. Framleiðslan er aðallega einbýlishús, fyllilega 20—25 hús á ári. Eru þau seld um land allt, en megnið af þeim hefur farið á Vestfirði." Öll kváðust þau líta björtum augum á framtíðina og engin vandræði með verkefni. ýmiss konar, en undirstaðan er matvara. Að auki rekur Hlutafé- lagið Höfn kjötvinnslu á sama stað og slátur- og frystihús, og við hlið verslunarinnar er söluskáli. í kjöt- vinnslunni er m.a. reykofn þar sem hangikjöt og bjúgu eru reykt. Og til marks um umfang sláturhússins má geta þess að á haustin er þar slátrað um 14.000 dilkum, og stór- gripum er slátrað allt árið. Til gamans fyrir Reykvíkinga getum við þess í lokin að opn- unartími verslunarinnar er frá kl. 9 f.h. til 5:30 e.h. alla virka daga nema föstudaga þegar opið er til 6:30, og á laugardögum er opið frá 10 á morgnana til 12 á hádegi. 79

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.