Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 84

Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 84
Aukin ferðamennska framkallar aukna þjónustu Ferðamannastraumur til Akur- eyrar eykst ár frá ári, skv. upplýs- ingum þeirra aðila sem þar fást við ferðamannaiðnaðinn. Þótt sumarið nú hafi verið fremur kalt og veður ekki hið ákjósanlegasta, er ekki um samdrátt í ferða- mennsku að ræða, heldur hefur hún að verulegu leyti verið með öðru sniði en hingaðtil. T.d. fer fólk síður i útsýnisferðir og mið- nætursólarferðir þegar veðurfar er með þeim hætti, sem það var í sumar. Það heldur sig meira í bænum sjálfum og nýtur innan- bæjarþjónustan, svosem versl- anir og hótelin góðs af því. Þar sem ekkert bæjarfélag utan Reykjavíkur hefur unnið jafn markvisst að uppbyggingu ferða- mannaiðnaðar árum saman og Akureyri, er ekki úr vegi að skyggnast örlítið inní með hvaða hætti að þessu er staðið, með hvaða árangri, og hvernig aukinni ferðamennsku er mætt. Óbundinn ferða- máti vaxandi ,,Mér sýnist ferðamennskan vera að breytast nokkuð, nú er meira um að fólk sé að ferðast á eigin vegum og óbundnara af skipulögðum ferðaáætlunum'' sagði Gísli Jónsson, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar. Ekki dregur þetta þó úr þátttöku í skipulögðum skemmri hópferðum ferðaskrifstofunnar til ýmissa athyglisverðra staða í ná- grenni Akureyrar. Fyrir utan hinn hefðbundna tíu klukkustunda Mý- vatnshring, býður skrifstofan upp á þrjár skemmri ferðir sem eru 5 klst. ferð til Árskógsstrandar, með ferjunni til Hríseyjar, þaðan með ferjunni til Grenivíkur og akandi til Akureyrar. Tveggja klst. ferð til Grundar- og Saurbæjarkirkna með viðkomu á bóndabæ og mið- nætursólarferð á Ólafsvíkurmúla með viðkomu á Ólafsfirði þar sem drukkið er kaffi og rjómapönnu- kökur. Aðspurður hvað ylli breyttum ferðamáta, taldi Gísli ekki ólíklegt að aukin notkun hringmiða með BSI og Reisupassi Flugleiða réði þar nokkru um. Til að bæta þjón- ustu við ferðamenn keyptu Sér- leyfisbifreiðar Akureyrar nýjan rútubíl upp á eina milljón, sem mun vera glæsilegasti bíll sinnar tegundar hérlendis. 280 bíla floti ..Bílafloti okkar telur nú 280 bíla af öllum gerðum og höfum við þrjár bækistöðvar, á Akureyri, í Reykjavík og á Vopnafirði. Það gerum við í þeim tilgangi að geta veitt sem besta þjónustu um allt land hvenær sem er", sagði Skúli Ágústsson, einn framkvæmda- stjóra hinnar átta ára gömlu Bíla- leigu Akureyrar. ,,Okkar markmið er að menn geti tekið bílana hvar 84

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.