Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 92

Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 92
þennan innflutning svo mjög, því ef teknar eru tölur fyrir 1979 og 1980 þá eru innfluttu húsin innan við 10% af heildarfjölda seldra timbureiningahúsa hér- lendis. g) Regiugerðir varðandi byggingu timburhúsa. Það virðist vera útbreiddur misskilningur meðal almennings að einhverjar verulegar tak- markanir séu á byggingu timb- urhúsa, umfram þær takmarkanir sem eru á byggingu steinhúsa. Við kynntum okkur þessi mál og höfðum samband við eftir- talda aðila í því sambandi: Borgarverkfræðing í Reykjavík, bæjarverkfræðingana í Kópavogi og Hafnarfirði, byggingafulltrúa Garðabæjar o j Seltjarnarness og einnig höfðum við samband við bæjarverkfræðinga eða byggingafulltrúa á Akureyri, ísa- firði og Egilsstöðum. Alls staðar fengum við sama svarið. Engar takmarkanir voru á byggingu timburhúsa, nema al- mennar takmarkanir. Og þá er það spurningin hverjar eru þessar almennu tak- markanir? Upplýsingar um það fáum við í reglugerð um bruna- varnir og brunamál (nr. 269 — 8. júní 1978) og byggingareglu- gerð frá 1979. í byggingareglugerð segir m.a.: (5.9.4.) ,,Ekki má byggja hús nær lóðarmörkum en sem hér segir: a) óvarið timburhús 5 m b) timburhús klædd með báru- járni eöa tilsvarandi efni 4 m c) steinhús 3 m“ Þetta hefur allveruleg áhrif, a.m.k. í þéttbýli og þá sérstak- lega á Reykjavíkursvæðinu, en þar er farið að gæta samdráttar í úthlutun lóða vegna skorts á landrými. Þetta þýðir með öðrum orðum að lóðir undir timburhús þurfa að vera stærri en ella, miðað við að ef um steinhús væri að ræða. Um áhrif þessa má m.a. benda á Eiðsgranda- svæðið, en þar má ekki byggja timburhús. j byggingareglugerðinni segir ennfremur (6.3.10.): ,,Ekki má byggja stærri íbúðarhús úr timbri en 300 m: (sbr. brunamálareglugerð 9.4.1.), ef húsið er ein hæð, en 150 m-' sé það tvær hæðir. Ekki má hafa sjálfstæða íbúð á efri hæð timburhúss (sbr. brunamálareglugerð 9.4.4.).“ Þetta þýðir tvennt. í fyrsta lagi er ekki hægt að byggja mjög stór hús úr timbri, en það ætti varla að saka, því að hús sem eru yfir 300 m: eru hverfandi lítill hluti íbúðarhúsa. Þetta horfir allt ööru vísi við hvað snertir önnur hús t.d. samkomuhús o.fl., en það er ekki ætlun okkar að fjalla um þau hér. í þessu sambandi má benda á að flest hús sem framleiðendur bjóða eru á milli 80 og 130 m: að stærð. í öðru lagi er svo ákvæðið sem segir að ekki megi vera nema ein íbúð í timburhúsi. Þetta er stórt atriði og skiptir verulegu máli. Þarna er komið inn á atriði sem við höfum reynt að forðast eins og heitan eldinn að minnast á, þ.e. að timburhús eru því sem næst eingöngu einbýlishús. Það má segja að þetta setji töluvert strik í ritgerð þessa, þar sem við fjöllum hér um timburhús út frá heildar- íbúðarfjölda, í stað þess að taka einungis fyrir einbýlishús. Þetta er gert vegna erfiðleika á að fá upplýsingar um fjöld einbýlis- húsa og reyndist okkur því ókleift að draga fram þær upp- lýsingar sem til hefði þurft. Þetta atriði í byggingareglu- gerðinni hlýtur að skipta fram- leiðandann töluverðu máli, þar sem augljóst er að ungt fólk sem er aö fara að byggja á erfiðara cneð að fjármagna einbýlishús heldur en íbúð í blokk, en þó getur þetta verið mismunandi. í brunamálareglugerðinni er ekki margt sem er til viöbótar þessu, sem tengist timburhúsum sérstaklega (ekki nema það sem framleiðendur sjá sjálfir um, þannig að það hefur ekkert að segja fyrir neytandann), en þó er tekið fram aö það skuli vera lekastraumsrofi á raflögnum íbúðarhúsa úr timbri (9.4.4 ). Þó er tekið fram (i 9.4.2.), að ef byggð eru raðhús eða keðju- hús þá þurfi að aðskilja þau með eldvarnarvegg. Þessi atriði sem við höfum nefnt hafa sem sagt engin úr- slitaáhrif á það hvort byggja ætti timbur eða steinhús, þ.e. ef um er að ræða einbýlishús eða raöhús, en neytendur virðast hafa gripið það í sig að ein- hverjar verulegar takmarkanir séu á byggingu timburhúsa og er þetta atriði sem framleiðendur timburhúsa ættu að huga að. Neytendur — Kaupferli Við ákváðum að reyna að gera okkur grein fyrir því hvernig neytendur haga sér, hvað varðar ákvörðun um byggingu húss. Til þess að fá sem greinabest yfirlit, ákváðum við að leita á náðir Karenar Gredal og ákváðum að skipta kaupferlinu niður á svip- aðan hátt og hún gerir í bók sinni ..Forbrugernes motiver og adfærd" (bls. 92—135). Þar skiptir hún kaupferlinu niður á eftirfarandi hátt: a) Vart við þörf b) Upplýsingaleit c) Mat upplýsinga d) Kaupákvörðun e) Tilfinning eftir kaup Við höguðum þessari eftir- grennslan á þann hátt að við hringdum eða fórum til fólks sem við vissum að bjó í timbur- húsum og einnig höfðum við samband við fólk sem bjó í steinhúsum, til að fá að vita hvers vegna það valdi ekki timburhús. Það er skemmst frá því aö segja að okkur var hvar- vetna vel tekið og fólkið var allt af vilja gert til að hjálpa okkur við gerð þessarar könnunar. Hér á eftir látum við fylgja helstu niðurstöður ásamt hug- leiðingum okkar um ýmislegt sem kemur þar fram. Við byrjum þó á því að setja fram spurningarnar sem við spurðum fólkið. 1) Hvers vegna ákváðuð þið að fara að byggja? 2) Hvernig öfluðuð þið ykkur upplýsinga um þá kosti sem fyrir hendi voru? 3) Hvernig fóruð þiö að því að meta þær upplýsingar sem þið fenguð? 4) Hver tók endanlega kaup- ákvörðun? 92

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.