Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Síða 94

Frjáls verslun - 01.08.1981, Síða 94
vildu byggja timbureiningahús þar sem greiðslubyrðin var svo mikil á skömmum tíma. Eitt atriði enn var áberandi, timburhúsum í hag, en það var hversu stuttan tíma það tók að koma húsunum upþ og á þetta e.t.v. sérstaklega við um í dreif- býli. Við getum t.d. tekið sjó- mann sem lítið er í landi og má ekki vera að því að standa í því „þvargi" sem fylgir því yfirleitt að standa í húsþyggingu. Hann pantar bara húsið og svo þegar kemur að því að setja eigi húsið upp, þá getur hann eflaust fengið frí einn ,,túr" til að fylgj- ast meö þegar húsið er sett upp. Einnig má líta á þetta frá sjónarhóli bænda og kemur hér eflaust helsta skýringin á því hvers vegna er meira um timb- urhús í dreifbýli, en ef bændur ætla að byggja steinhús þá þurfa þeir að halda uppi iðn- aðarmönnum í lengri tíma, en ef þeir eru með timburhús þá tekur þetta e.t.v. ekki nema eina viku eða svo og þarna munar veru- lega miklu, peningalega séð. En fólk taldi timburhús hafa fleiri ókosti. Þar má m.a. nefna eldhættu, meira viðhald og svo þetta „eilífa brak" sem fylgir timburhúsum. Var þar oft um fordóma að ræða, það var búið að ákveöa sig án þess að leita upplýsinga. Við höfum þegar fjallað um brakið og jafnvel sýnt fram á hvernig það geti oröið til fram- dráttar timbureiningahúsum. Hvað viðhaldið varðar, fer það að sjálfsögðu eftir framleiðslunni og er það þá algerlega í hendi framleiðenda, þ.e. hversu vönd- uð framleiðslan er, en þó virðist álit neytenda á timburhúsum fara vaxandi eftir því sem meiri reynsla kemst á þessi hús. Framleiðendur þurfa því engu að kvíða hvaö þetta varðar, ef þeir framleiða góð hús. Hvað varðar eldhættuna, þá minnkar hún með aukinni tækni auk þess sem framleiðendur geta minnkað hana verulega með því að nota eldþolnar spónaplötur í veggi og auglýsa það vel. Einnig er nauðsynlegt fyrir framleiðendur að eyða þeirri. hugmynd hjá almenningi að timbureiningahús sem framleið- endur setja upp séu verr frá gengin, vegna hraða fjöldafram- leiðslunnar, en hús reist af ein- stökum verktökum. d) Kaupákvörðun. Ákvörðun um kaup á húsum virðist alltaf vera tekin sam- eiginlega af hjónum og þegar upp er staðið virðist annar aðil- inn yfirleitt ekki ráöa meiru. Þó er hugsanlegt að það skipti konuna meira máli hvort keypt er timbur- eða steinhús og vísum við til umfjöllunar um það í kaflanum um þarfir. Aðrir aðilar en hjónin virðast lítil áhrif hafa á kauþákvörðunina (t.d. börn). e) Tilfinning eftir kaup. Fólki sem búið hafði í timbur- húsum virtist yfirleitt líka það mjög vel og kvað viðhald yfirleitt ekki eins mikið og gert hafði verið ráð fyrir, þannig að rök- semdin um meira viðhald timb- urhúsa virðist ekki eiga við mikil rök að styðjast. Framtíðarspár Um framtíðarspár eru fram- leiöendurnir flestir sammála að markaður fyrir timbureiningahús fari vaxandi og byggja þeir þá niðurstöðu á tölulegum upplýs- ingum síðustu ára sem sýna þessa þróun ótvírætt. Kom fram í viðtölum við framkvæmdastjóra verksmiöjanna að þeir teldu að markaður væri fyrir 400—500 hús á ári miðaö við núverandi aðstæður, en benda má fram- leiðendunum á frekari beitingu söluráða í því skyni aö breyta gildandi viðhorfum almennings, til að stækka markaðinn enn frékar. Sérstaka áherslu ættu framleiðendur að leggja á neyt- endur á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar sem um helmingur lands- manna býr, en lítið söluátak hefur verið gert. Miklu máli skiptir hvaða stefnu yfirvöld taka í framtíðarskipulagi á Stór-Reykjavíkursvæðinu, t.d. hefur fram að þessu smíði fjöl- býlishúsa verið ríkjandi í skipu- lagi Reykjavíkur, en allt stefnir í þá átt aö í þróun skipulags Reykjavíkurþorgar verði meira rými fyrir einbýlishúsalóðir, sk. lágri byggð. Eins og áður hefur komið fram virðist sem að um vissa vanþekkingu sé að ræða meðal neytenda á Stór-Reykja- víkursvæðinu gagnvart timbur- einingahúsum. Framleiðendur gætu því, samfara þvf að vinna sér sess í nýjum byggðaskipu- lögum, unnið markvisst að upp- rætingu þessarar vanþekkingar. Hvað svæðið utan Stór— Reykjavík varðar þá má líta á hvert sveitarfélag eða kaupstað sem sérstakan markað út af fyrir sig. Til að vinna sér hlutdeild í hverjum þessara markaða er besta kynningin sú að koma upp einu húsi frá viðkomandi fram- leiðanda. Með tilkomu eininga- húss á viðkomandi stað afsann- ast sú bábilja að timburhús haldi hvorki vatni né vindi, því íbúar svæðisins munu vafalaust gera sér það að leik að bera logandi eldspýtu að samskeytum þessara húsa í slagviðrum. Með vaxandi hlutdeild timbur- einingahúsa í heildarmarkaðinum eru líkur á að fleiri framleiðendur skjóti upp kollinum til að fá hlut í markaðinum, í von um auð- tekinn gróða. Þau áhrif sem þetta gæti haft á markaðinn eru að okkar áliti neikvæð. í fyrsta lagi er markaðurinn ekki það stór að hann þoli mjög marga framleiðendur. í öðru lagi er framleiðsla einingahúsa í eðli sínu fjöldaframleiðsla og fram kom hjá einu fyrirtækjanna, eftir að athugun hafði verið gerð, að til að ná sem mestri hagræðingu og sem ódýrustu framleiðslu ætti hvert fyrirtæki að framleiða um 100 hús á ári. I þriðja lagi er flutningskostnaður pr. hús aðeins 1—2% af söluverði hvers húss og er því ekki mikilvægt að hafa framleiðandann nálægt markaðnum. Að ofangreindu má sjá að markaður er fyrir 4—5 stórar verksmiðjur að gefnum þeim forsendum að markvissri aug- lýsingastarfsemi verði beitt og öðrum þeim ráðum sem við höfum þegar bent á, en ekki þessum happa og glappa að- ferðum sem ríkjandi hafa verið. ÖB 94
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.