Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 96

Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 96
leicfari „Reykjavík er hnignandi höfuðborg” Atvinnumál Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðis- ins í heild hafa verið til umfjöllunar á tveimur ráð- stefnum, sem haldnar voru í sumar að frumkvæði atvinnumálanefndar Reykjavíkurborgar og Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Á annarri þeirra komst formaður Verkamannasambands ís- lands, Guðmundur J. Guðmundsson, alþingismað- ur, svo að orði, að Reykjavík væri hnignandi höf- uðborg. Vekja umrnæli hans að sönnu athygli þegar haft er í huga að nú fer að ljúka kjörtímabili vinstrimeirihlutans í borginni undir forystu flokks- bræðra Guðmundar J. Guðmundssonar. Þeir sem komnir eru nokkuð til ára og fylgzt hafa með málefnum Reykjavíkur muna tímana tvenna. Þróunin, sem við blasir, rennir óneitanlega stoðum undir fullyrðingu þingmannsins. Á árum áður var markvisst unnið að öflugri uppbyggingu og stækk- un borgarinnar sem gerði atvinnufyrirtækjum kleift að byggja yfir starfsemi sína og hasla sér völl á sívaxandi markaði. Einstaklingarnir áttu þess kost að festa sér bú í nálægð við þessi atvinnutækifæri og ráða bót á þeirn vanda í húsnæðismálum, sem við blasti á stríðsárunum og fyrst eftir ófriðinn þegar aðstreymið til borgarinnar hafði verið í hámarki. Öflugt átak var gert í umhverfismálum með gatna- gerðarframkvæmdum og ræktun borgarlandsins. Rafvæðing og hitaveita voru tákn þeirra tíma. En hvernig er sú mynd, sem augum okkar mætir nú? Það heyrir sögunni til að lóðum í Reykjavík sé úthlutað til atvinnufyrirtækja ef frá er talin viðleitni núverandi borgaryfirvalda til að styðja KRON og Sambandið í sókn þeirra inn á Reykjavíkurmarkað. Lóðaframboð fyrir íbúðarhúsnæði hefur verið í al- gjöru lágmarki þannig að varla tekur að minnast á það. Ótækt punktakerfi í lóðaúthlutunum útilokar fólk á bezta aldri frá því að koma til álita þegar verið er að ráðstafa þessum örfáu íbúðarhúsalóð- um, þar sem nokkrir tugir umsækjenda eru um hvern bita. Vaxtarbroddurinn í Reykjavík, unga — Guðmundur J. Guðmundsson, alþingismaður á ráðstefnu um atvinnumái Reykjavíkur fólkið, og þeir sem eru að nálgast miðjan aldur, verða að leita annað til að fá óskurn sínum um varanlegar lausnir í húsnæðismálum fullnægt. Á meðan þessu fer fram verður hlutverk Leigj- endasamtaka þungamiðja í umræðu um húsnæðis- mál í höfuðborginni. Krafan um fleiri leiguíbúðir í eigu borgarinnar og auknar aðgerðir í byggingu íbúðarhúsnæðis á félagslegum grundvelli er kjarn- inn í málflutningi meirihlutaflokkanna í borgar- stjórn. Félagsleg vandamál einstæðra mæðra og dagvistarstofnanir auk málefna aldraðra eru síðan mál númer tvö og þrjú. Enginn ábyrgur aðili getur horft framhjá erfiðleikum, sem þessir samfélags- hópar eiga við að stríða, sízt ófremdarástandinu í hjúkrunarmálum aldraðra. En borgarfulltrúar og aðrir borgarbúar mega ekki verða svo uppteknir af þessum úrlausnarefnum, þó að brýn séu, að þeir taki ekki eftir því að uppistaðan fyrir eðlilegu og heilbrigðu borgarsamfélagi er að skríða undan þeim. í málefnum Reykjavíkurborgar dugar ekki leng- ur þessi einþætta áherzla sem öll beinist að svo- kallaðri „vandamálapólitík“ og útitafli á Bern- höftstorfu. Ábyrgir borgarstjórnaraðilar verða að gera sér grein fyrir að aflvakinn í lífi borgar og þjóðar er í arðsömum athöfnum, traustu atvinnulífi sem fái viðunandi skilyrði til að dafna, með því að tryggja atvinnuöryggi borgarbúa og dæla vítamín- um í efnahagslíf landsmanna. Eftir tvær ráðstefnur um atvinnumál höfuðborgarsvæðisins, þar sem verulegrar svartsýni gætti, ættu forystumenn Reykjavíkur að taka sig saman í andlitinu og horfast í augu við mál málanna. Varnaðarorð alþingis- mannsins Guðmundar J. Guðmundssonar ýta ef til vill við þeim. En hvað skyldi annars sá ágæti þing- maður Reykjavíkur vera að aðhafast til að rétta hag hinnar hnignandi höfuðborgar?

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.