Frjáls verslun - 01.10.1988, Side 14
FORSÍÐUGREIN
vélamarkaðarins m.a. fyrri tilstilli
myndarlegs auglýsingaátaks.
Haustið 1976 héldu þeir Jóhann og
Sigtryggur til Japan og fengu Dai-
hatsu umboðið. Japanimir þekktu þá
ekki neitt en sýndu þeim traust og
létu þá fá umboðið. Uppfrá því hefur
samstarf Brimborgar og japönsku
framleiðendanna ávallt gengið með
ágætum og byggst á gagnkvæmu
trausti. Fyrstu 2 bílarnir komu til
landsins í mars 1977. Þeim tókst að
selja 63 bfla fyrsta árið og 88 bfla árið
1978. Daihatsu Charade vakti mikla
athygli þegar hann sigraði í sparakst-
urskeppninni á íslandi haustið 1978 og
rauf þá meira en 10 ára sigurgöngu
Citroen á því sviði.
Arið 1979 varð svo úrslitaárið fyrir
útbreiðslu Daihatsu á íslandi. Þá
tókst að tífalda söluna er ráðist var í
stórinnkaup á Daihatsu bflum frá Hol-
landi og seldir 917 bflar. Þar með var
Daihatsu-umboðið komið í fremstu
röð bifreiðainnflytjenda á Islandi og
hefur verið það æ síðan. Nú, er alls
hafa verið seldir meira en 6000 Dai-
hatsubflar á Islandi, leggja þeir Jóhann
og Sigtryggur út í nýja landvinninga,
með kaupum á Volvoumboðinu Velti.
Eftir sameiningu fyrirtækjanna þjónar
Brimborg um 14.000 bflum af Dai-
hatsu- og Volvogerð. Það er rúmlega
tíundi hluti bifreiðaeignar lands-
manna.
Frjáls verslun hitti þá Jóhann og
Sigtrygg að máli rétt fyrir jól og
spurði þá hver þeirra fyrstu viðbrögð
hefðu verið þegar Veltir hf. stóð þeim
til boða.
„Þetta kom okkur vægast sagt á
óvart þótt við hefðum eins og aðrir
heyrt um vissa erfiðleika hjá Velti“.
Jóhann var með eiginkonu sinni í sum-
arleyfi á Spáni í júní þegar hann frétti
af því að Veltir hefði sagt upp 40
starfsmönnum á verkstæði sínu.
„Einn af starfsmönnum Veltis var
með okkur í ferðinni og hann sagði
mér frá þessu. Það var kannski einn
lítill fyrirboði í þessari ferð að eigin-
FRJÁLS VERSLUN 0G STÖD 2 VEUA:
MENN ÁRSINS1988 í ÍSLENSKU VIÐSKIPTALÍFI
Frjáls verslun og Stöð 2
ákváðu á sl. hausti að gangast
fyrir vali á manni eða mönnum
ársins í viðskiptalífinu á Islandi.
Utnefningar af þessu tagi eru vel
þekktar á öðrum sviðum þjóð-
lífsins og víða um heim gangast
fjölmiðlar eða aðrir fyrir árlegu
vali á mönnum sem þótt hafa
náð frábærum árangri á vett-
vangi viðskipta og atvinnulífs.
Einn megintilgangur Frjálsrar verslun-
ar og Stöðvar 2 með þessari útnefningu er
að vekja athygli á þvf sem vel er gert í
viðskiptalífinu og hvetja til jákvæðrar um-
fjöllunar um viðskipti og atvinnustarfsemi.
Mönnum þykir nóg orðið um alla þá nei-
kvæðu umræðu í fjölmiðlum sem komin er
út fyrir skynsamleg mörk og ótvírætt tek-
in að valda skaða ein sér.
Sexmannanefnd er ábyrg fyrir valinu.
Nefndina skipa Ámi Vilhjálmsson prófess-
or í viðskiptadeild Háskóla íslands, Er-
lendur Einarsson fyrrverandi forstjóri
Sambands íslenskra samvinnufélaga, Sig-
urður Helgason stjórnarformaður Fiug-
leiða, Sighvatur Blöndahl framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Stöðvar 2, Ilelgi
Magnússon ritstjóri Frjálsrar verslunar og
Magnús Hreggviðsson stjórnarformaður
Frjáls framtaks en hann er jafnframt for-
maður nefndarinnar.
Nefndarmenn skiptust á skoðunum urn
fjölda forsvarsmanna fyrirtækja sem taldir
voru koma til greina úr ýmsum áttum í
viðskiptalífinu. Rekstrarform eða stærð
fyrirtækja skipta ekki máli í þessu sam-
bandi. Það er fyrir árangur í rekstri og
framkvæmd góðra hugmynda sem þessi
viðurkenning er veitt.
í öllu því svartsýnistali um viðskipti og
atvinnulff sem nú gengur yfir var það mikið
ánægjuefni að finna hve margir menn
komu til álita og voru taldir verðir þess að
hljóta þessa viðurkenningu. Sem betur fer
er víða verið að ná árangri og vinna vel í
viðskiptalífinu á íslandi.
14