Frjáls verslun - 01.10.1988, Síða 15
Jóhann og Sigtryggur á fundi með börnum sínum þeim Kristbjörgu Sigtryggsdóttur, Margréti Jóhannsdóttur og Agli
Jóhannssyni.
konu minni var færður Volvokveikjari
að gjöf“ segir Jóhann og brosir við.
—Hverjar voru í ykkar huga helstu
forsendur sameiningarinnar?
„Við sáum fyrst og fremst mögu-
leika á að ná aukinni markaðshlutdeild
með fjcilbreyttara úrvali af bílum og
byggja upp stærri og hagkvæmari
En nefndin þrengdi hringinn og komst
að þeirri samhljóða niðurstöðu að menn
ársins 1988 í viðskiptalífinu á íslandi væru
stjómendur Brimborgar hf. þeir Jóhann
Jóhannsson og Sigtryggur Helgason. Þeir
hafa byggt fyrii'tækið Brimborg hf. hratt
og örugglega upp af mikilli eljusemi og
dugnaði. Þeir hafa iítið verið í sviðsljósi
fjölmiðla en einbeitt sér að því að ná ár-
angri í rekstrinum. Þeir hafa látið verkin
tala.
Árið 1988 er viðburðaríkt tímamótaár í
sögu fyrirtækisins en þá keyptu þeir ann-
að bflafyrirtæki, Volvoumboðið Velti hf..
Sameining fyrirtækjanna gekk hratt og ör-
ngglega fyrir sig og eftir stendur Brim-
borg hf. sem eitt allra stærsta bílainnflutn-
mgsfyrirtæki landsins með megináherslu
á smábfla Daihatsu frá Japan og hinn
þekkta Volvo frá Svíþjóð. Ætla má að
fyrirtækið sé mjög hagkvæm rekstrarein-
ing eftir kaupin á Velti hf. m.a. vegna færri
starfsmanna og betri nýtingar á húsnæði.
Brimborg hf. ætti því að standa vel að vígi í
þeirri hörðu og harðnandi samkeppni sem
ríkir í bifreiðainnflutningi til Islands, en
árið 1989 verður líklega allri greininni erf-
itt vegna þess samdráttar í bflainnflutningi
sem spáð er eins og fram kemur í grein
Valþórs Hlöðverssonar í þessu blaði.
Það er dæmigert fyrir hógværð þeirra
Jóhanns og Sigtryggs að þegar þeim var
tilkynnt um að Frjáls verslun og Stöð 2
hefðu valið þá menn ársins 1988 færðust
þeir fyrst undan að móttaka viðurkenning-
una. Þeir voru þakklátir fyrir þann heiður
sem þeim var sýndur en sögðu að það
hlytu margir aðrir að eiga þetta frekar
skilið en þeir. Jafnframt bentu þeir á að
erfiðir tímar væru framundan í bflgreininni
og þeir ættu mikið eftir ógert.
Víst er það svo að dugmiklir athafna-
menn eiga alltaf mikið eftir ógert og þeir
Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Helga-
son munu væntanlega halda áfram að
vinna störf sín í kyrrþey — og láta verkin
tala.
MINOLTA
LJÓSRITUNARVÉLAR
NETTAR, LITLAR OG LÉTTAR
D-10
Lítil, einföld og því traust. Fyrirtak á skrifboröiö!
Sú ódýrasta á markaðnum.
D-100
Japönsk snilldarhönnun, þýsk ending og
nákvæmni. Lágt verö og rekstarkostnaður.
MINOLTA EP50
5 lita prentun ef vill, innsetning einstakra arka,
hágæðaprentun og hagkvæmni í rekstri.
Ekjaran
ÁRMÚLA 22, SlMI (91) 8 30 22. 106 REYKJAVlK
15