Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 29

Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 29
í ÞESSU STARFI ERU KONUR MUN BETRI EN KARLAR — RÆTT VID ODDRÚNU KRISTJANSDÓTTUR minnst að störfum þess. Það að und- írmenn skuli vera konur helgast af því að ritara- og skrifstofustörf hafa lengi verið unnin af konum. Hér vinnur af- bragðsfólk sem leitar til mín ef þess er þörf. Að öðru leyti sé ég ekki mun- inn á því hvort það sé kona eða karl sem stjórnar." Hún viðurkenndi þó að líklega hafi hún betri skilning á sérhagsmunum kvenna t.d. varðandi böm og heim- ilisaðstæður — vegna eigin reynslu. „Ég get ímyndað mér að stúlkunum hér finnist auðveldara að bera upp slík mál við kynsystur sína en karlmann." Aðspurð um eigin heimilisaðstæð- ur segist María vera ekkja og eiga tvö börn — uppkomna dóttur og ung- lingsson. Þegar ég spyr hana hvort hún telji konur eiga sömu möguleika og karlmenn á stjórnunarstöðum seg- ir hún: „Ég er þeirrar skoðunar að konur eigi sömu möguleika og karlar hvað varðar menntun. Hitt er svo annað mál að mun minna framboð er á kon- um í ákveðin störf og það helgast af menntunarskorti. Nú er þetta að breytast á þann hátt að konur sækja í auknum mæli inn í Háskólann sem aftur skilar sér síðar. Konur verða líka að gera sér grein fyrir því að það kostar fórnir að ná frama í atvinnu- lífinu. Þar verða þær að standa karl- mönnum framar til þess að ná árangri. En til þess verða þær að kunna að taka gagnrýni og ég leyfi mér að segja — að nota sömu aðferðir og karl- mennirnir. Ég er því þeirrar skoðunar að ef konur setja sér ákveðið mark- mið — þá geta þær náð því. Rétt eins og karlmennirnir. Þar gildir engin hógværð. Þegar mér var boðið að taka þátt í þessari umfjöllun í Frjálsri verslun sagði ég starx já. Þarna gafst mér tækifæri til þess að koma mínum sjónarmiðum á framfæri og ég greip það. Ég tel því að ein aðalástæðan fyrir því að hlutur kvenna í stjórnun- arstöðum sé ekki stærri en hann er sé framtaksleysi og hógværð. Við erum jafningjar karlmanna á flestum sviðum og það er því okkar að gera eitthvað í málinu til þess að ná markmiðum okk- ar. Ef konur líta ekki á sig og sínar kynsystur sem fullgildar til jafns við karla, er öruggt að þeir gera það ekki heldur.“ Oddrún Kristjánsdóttir er einn fimm hluthafa í afleysinga- og ráðningaþjónustunni Liðs- auka hf. og gegnir jafnframt stöðu framkvæmdastjóra. Fyrir- tækið var stofnað árið 1982 og er nú án efa stærsta starfsmiðl- unin hér á landi. Auk þess sem uppgangur fyrirtækisins hefur verið mjög hraður, vekur at- hygli að allir 7 starfsmenn á skrifstofu þess eru konur. Og eins og annars staðar, þar sem kona er í æðstu stjórnunarstöðu í fyrirtæki, reyndist ekki erfitt að ná sambandi við fram- kvæmdastjórann. Þar var eng- inn ritari fyrir sem varð fyrir svörum með þeim sígildu orðum „hjá framkvæmdastjóra“. Odd- rún kom strax í símann og sagði blaðamann Frjálsrar verslunar velkominn með orðunum: „Já, auðvitað er ég til í viðtal. Ég segi aldrei nei við slíkri beiðni.“ Við mæltum okkur mót á efstu Oddrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Liðsauka hf. 29

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.