Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 40
REKSTUR
tap er að ræða? Guðjón sagði að Samband-
ið myndi mæta hallanum með tveimur
leiðum, annars vegar aukinni eignasölu og
hins vegar með aukinni hagræðingu. „Við
höfum þegar gripið til eignarsölu, seldum
húseignir fyrir um 600 milljónir króna nú á
rúmu einu ári. En vitaskuld munum við
leita eftir hagræðingu í rekstri sem skilar
okkur hagnaði. Liður í því er uppstokkun
tölvukerfis Sambandsins með bættri upp-
lýsingaþjónustu fyrir stjómendur Sam-
bandsins. Þessi uppstokkun kostar sitt en
þegar nýja kerfið er komið í gagnið mun
það spara allt að 25% miðað við eldra kerf-
ið sem var orðið fullnýtt. Samhliða nýja
kerfinu munum við kaupa tilbúin hugbúnað
í stað þess að vera með eigin hugbúnaðar-
framleiðslu og í því felst einnig töluverð
rekstrarleg hagræðing."
Einnig segir Guðjón að öll starfsemi
Sambandsins verði tekin til mjög gagnrýn-
innar endurskoðunar, hvað viðkemur
rekstrarformi, eignum og mannafla.
„Reyndar höfum við þegar minnkað mið-
stýringu og aukið sjálfstæði ýmissa deilda
Sambandsins og það er enn einn liðurinn í
endurskipulagningunni. “
Guðjón segir að erfitt sé að spá um
framtíðina „því illmögulegt er að átta sig á
rekstrarumhverfi Sambandsins á næsta
ári. Það er ljóst að þjóðin er að ganga í
gegnum tímabundna erfiðleika. Skulda-
staða þjóðarinnar er slæm og að undan-
fömu hefur verið mikið af óarðbærri of-
fjárfestingu. í raun og veru em ytri skil-
yrði þjóðarbúsins ekki slæm. Ef við lítum
til síðustu 10-15 ára kemur í ljós að árið
1988 er líkast til þriðja besta árið á þessu
tímabili. En óarðbærar fjárfestingar hafa
bundið þungan klafa á þjóðfélagið sem erf-
itt verður að brjóta af sér. Ég sé ekki
annað en við verðum að reikna með 2-3
ámm til viðbótar fyrir þjóðarbúið til að
vinna sig úr erfiðleikunum.
Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri Granda hf.
SÖGULEGT
ÁR!
„Árið 1988 verður sögulegt í efnahags-
lífi íslendinga, aðallega vegna þess mikla
rekstrartaps, sem flest fyrirtæki landsins
verða fyrir og vegna hinna miklu sviptinga
og umróts í stjómmálalífi þjóðarinnar, “
sagði Brynjólfur Bjamason, forstjóri
Granda hf. þegar hann var spurður um
afkomu fyrir árið 1988.
„Hvað viðvíkur sjávarútvegi, hefur árið
1988 verið afar slæmt. Á árinu sem er að
líða upplifði sjávarútvegurinn miklar verð-
lækkanir á erlendum mörkuðum eftir rúm-
lega eins árs verðhækkunartímabil. Á
þessum sama tíma varð mikil raungengis-
hækkun, sem setti samkeppnishæfni sjáv-
arútvegsfyrirtækja úr skorðum. Að auki
var mikil misvísun milli gengis annars veg-
ar og innlends verðlags hins vegar árið
1988, miðað við árið þar á undan. Þannig
vom margir fjárhagsliðir lægri á árinu 1987
en í eðlilegu árferði, þar sem gengi hélst
stöðugt og erlend lán hækkuðu lítið. Á
sama tíma varð hækkun á byggingarvísi-
tölu sem tekjufærsla verðbreytinga er
reiknuð eftir. Árið 1988 varð spennufall
hvað þetta varðar, því þá hækkaði erlend-
ur gjaldeyrir mjög mikið en ljóst er að
byggingarvísitala sem reiknar tekjufærslu
hækkar mun minna. Þar af leiðir mikið
gengistap en tekjufærsla verður lág í sam-
anburði við árið á undan. Við þetta slæma
ástand bætist mikill vaxtakostnaður ársins
1988 en raunvextir hérlendis em taldir í
efri kantinum. Niðurstaðan er því sú að
árið 1988 verður eitt erfiðasta ár í fyrir-
tækjarekstri hérlendis. Það fer ekki á milli
mála að rekstrar- og efnahagsreikningar
fyrirtækja koma til með að sýna, vægast
sagt, afar slæma stöðu um þessi áramót."
Brynjólfur gerir ekki ráð fyrir miklum
breytingum á næsta ári, því „í ljósi þeirra
aðstæðna sem fyrirtækjarekstur varð að
búa við árið 1988 eru ekki miklar líkur á
verulegum breytingum árið 1989, nema til
komi varanlegar aðgerðir í efnahagsmál-
um sem geta skapað jafnvægi í þjóðfélag-
inu. í aflasamdrætti, vannýtingu flárfest-
inga, birgðasöfnun og lítt breyttu erlendu
söluverði er ekki hægt að búast við því að
hagnaður verði af starfsemi margra fyrir-
tækja á nýju ári.“
Að mati Brynjólfs mun það taka íslend-
inga um tvö ár til viðbótar að vinna sig út
úr efnahagskreppunni. Hann segir: „Það
Eldtraustir
tölvugagnaskápar
© Rosengrens
Tölvugagnaskápar eru sérstaklega framleiddir til að vemda allar
gerðir tölvugagna, svo sem diskettur, segulböhd og seguldiska.
Geymið viðkvæmustu og verðmætustu upplýsingar fyrirtækisins
í öruggum skáp.
E. TH. MATHIESEN H.F,
BÆJARHRAUN 10 HAFNARFIRÐI SÍMI 651000
40