Frjáls verslun - 01.10.1988, Síða 44
í þessari baráttu. Eiga íslendingar
möguleika á að keppa við Asíuþjóðir,
sem framleiða nú fatnað undir heims-
þekktum bandarískum og evrópskum
merkjum? Og það á verði sem er
aðeins brot af því sem við getum boð-
ið?
Þeir framleiðendur í almennum
fataiðnaði sem við ræddum við voru
flestir þeirrar skoðunar að möguleik-
ar okkar væru einkum fólgnir í sér-
hæfðum fatnaði þar sem fjöldafram-
leiðslu yrði trauðla við komið. Hins
vegar væri vonlaust að keppa við
Kóreu- og Taivanbúa um framleiðslu
úr ódýrum efnum og þar sem starf-
skraftur er einna ódýrastur. Þá bætt-
ist það við að með ráðstöfunum
stjórnvalda innanlands væri innflutn-
ingur slíkrar vöru óheftur og sam-
keppnisstaða hennar mun betri en
þeirrar íslensku.
Þau fyrirtæki sem eftir eru í fata-
iðnaði að frátöldum ullarfyrirtækjun-
um eru fá og smá í dag. Framleiðsla á
tískufatnaði hefur nánast lagst af og
sama er að segja um hvers konar
ódýra saumaða vöru eins og íþrótta-
galla, skyrtur, boli og buxur. Þar hef-
ur SA-Asíuframleiðslan tekið við.
Hins vegar gengur þokkalega að
framleiða skjólfatnað miðaðan við ís-
lenskar aðstæður, sérhæfðan fatnað
eins og vinnuföt og sérsaumaðan
einkennisklæðnað. Vissulega verða
þessi fyrirtæki að sníða sér stakk eftir
vexti þar sem íslenski markaðurinn er
ekki stór en tilvera fyrirtækjanna
byggist fyrst og fremst á því að keppa
við innflutta vöru af þessu tagi í gæð-
um en ekki verði. Þar liggja möguleik-
ar okkar að flestra mati.
í samtali við Sævar Kristinsson og
Sigmund Andrésson hjá Max hf kom
þetta sjónarmið vel fram. Max hf. er
fyrirtæki sem hefur brugðist skjótt
við gjörbreyttum markaðsaðstæðum
á síðustu tveimur árum, fækkað
starfsfólki úr 100 manns í árslok 1986
niður í um 40 manns nú. Auk þess
hefur verið hætt viðskiptum við fjölda
undirverktaka um land allt.
„Það er enginn vafi á því að íslensk-
ir fataframleiðendur geta aldrei keppt
við framleiðslu frá SA-Asíu þar sem
vinnulaun eru aðeins brot af því sem
hér tíðkast. Okkar möguleikar eru
fólgnir í því að leggja aðaláhersluna á
gæði sem fjöldaframleiðsluiðnaðurinn
getur aldrei boðið upp á. Þess vegna
höfum við unnið að þróun okkar hlífð-
arfatnaðar í samstarfi við Slysavarna-
félag íslands og lögregluna og erum
smátt og smátt að innleiða breytingar
eftir ábendingum notenda við erfiðar
íslenskar aðstæður. Þannig er okkar
vöruþróun auk þess sem íslenskir
neytendur eru afar kröfuharðir og
veita strangt aðhald.“
Þrátt fyrir samdrátt í mannahaldi
hjá Max hf verður um talsverða aukn-
ingu að ræða í veltu á milli áranna
1987 og 1988 og byggist það á tölvu-
væddu framleiðsluferli og bættum
vélakosti. Þá hefur fyrirtækið ekki
fjárfest í steinsteypu á liðnum árum
og á því ekki við óhóflegan fjármagns-
kostnað að stríða.
„Aðstaða íslenskra fataframleið-
enda er óþolandi og útilokað að keppa
við erlenda framleiðendur varðandi
verð. Hér er launakostnaður mun
hærri en í Bandaríkjunum eða Þýska-
landi, hvað þá SA-Asíu. Hér er vaxta-
munur meiri en annars staðar tíðkast
og raunar hærri en heildarvextir í
samkeppnislöndunum. Loks eru
skattar á atvinnustarfsemi af þessu
tagi gífurlegir hér á landi. Meðan
svona er í pottinn búið geta menn
gleymt draumum um að íslenskur
fataiðnaður verði ein meginstoð at-
vinnulífsins," sögðu þeir hjá Max hf
að lokum.
KLAUFAR í HÖNDUNUM!
Einn þeirra sem hefur varið mest-
um hluta starfsævi sinnar til að byggja
upp íslenskan fataiðnað er Halldór
Einarsson-Henson. Hann var ómyrk-
ur í máli er Frjáls verslun ræddi við
hann fyrir skömmu:
„Það er til vitnis um breytingarnar í
þessum iðnaði að þegar framleiðend-
ur hittust fyrir 10 árum þurftu þeir að
leigja stóra sali undir slíkar samkomur
en í dag komast þeir fyrir við lítið
borðstofuborð. Sannleikurinn er sá
að hið opinbera er með ráðstöfunum
sínum eða öllu heldur framkvæmda-
leysi búið að afskrifa fataiðnaðinn fyrir
löngu. Útlendur saumaskapur flæðir
yfir skerið og veitir útlendingum at-
vinnu í stórum stíl þannig að við sem
vildum gera fsland að framleiðslulandi
höfum orðið að rifa seglin og taka þátt
í búðarleiknum til að bjarga okkur frá
gjaldþroti.“
Halldór Einarsson hefur reynt fyrir
44