Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 44

Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 44
í þessari baráttu. Eiga íslendingar möguleika á að keppa við Asíuþjóðir, sem framleiða nú fatnað undir heims- þekktum bandarískum og evrópskum merkjum? Og það á verði sem er aðeins brot af því sem við getum boð- ið? Þeir framleiðendur í almennum fataiðnaði sem við ræddum við voru flestir þeirrar skoðunar að möguleik- ar okkar væru einkum fólgnir í sér- hæfðum fatnaði þar sem fjöldafram- leiðslu yrði trauðla við komið. Hins vegar væri vonlaust að keppa við Kóreu- og Taivanbúa um framleiðslu úr ódýrum efnum og þar sem starf- skraftur er einna ódýrastur. Þá bætt- ist það við að með ráðstöfunum stjórnvalda innanlands væri innflutn- ingur slíkrar vöru óheftur og sam- keppnisstaða hennar mun betri en þeirrar íslensku. Þau fyrirtæki sem eftir eru í fata- iðnaði að frátöldum ullarfyrirtækjun- um eru fá og smá í dag. Framleiðsla á tískufatnaði hefur nánast lagst af og sama er að segja um hvers konar ódýra saumaða vöru eins og íþrótta- galla, skyrtur, boli og buxur. Þar hef- ur SA-Asíuframleiðslan tekið við. Hins vegar gengur þokkalega að framleiða skjólfatnað miðaðan við ís- lenskar aðstæður, sérhæfðan fatnað eins og vinnuföt og sérsaumaðan einkennisklæðnað. Vissulega verða þessi fyrirtæki að sníða sér stakk eftir vexti þar sem íslenski markaðurinn er ekki stór en tilvera fyrirtækjanna byggist fyrst og fremst á því að keppa við innflutta vöru af þessu tagi í gæð- um en ekki verði. Þar liggja möguleik- ar okkar að flestra mati. í samtali við Sævar Kristinsson og Sigmund Andrésson hjá Max hf kom þetta sjónarmið vel fram. Max hf. er fyrirtæki sem hefur brugðist skjótt við gjörbreyttum markaðsaðstæðum á síðustu tveimur árum, fækkað starfsfólki úr 100 manns í árslok 1986 niður í um 40 manns nú. Auk þess hefur verið hætt viðskiptum við fjölda undirverktaka um land allt. „Það er enginn vafi á því að íslensk- ir fataframleiðendur geta aldrei keppt við framleiðslu frá SA-Asíu þar sem vinnulaun eru aðeins brot af því sem hér tíðkast. Okkar möguleikar eru fólgnir í því að leggja aðaláhersluna á gæði sem fjöldaframleiðsluiðnaðurinn getur aldrei boðið upp á. Þess vegna höfum við unnið að þróun okkar hlífð- arfatnaðar í samstarfi við Slysavarna- félag íslands og lögregluna og erum smátt og smátt að innleiða breytingar eftir ábendingum notenda við erfiðar íslenskar aðstæður. Þannig er okkar vöruþróun auk þess sem íslenskir neytendur eru afar kröfuharðir og veita strangt aðhald.“ Þrátt fyrir samdrátt í mannahaldi hjá Max hf verður um talsverða aukn- ingu að ræða í veltu á milli áranna 1987 og 1988 og byggist það á tölvu- væddu framleiðsluferli og bættum vélakosti. Þá hefur fyrirtækið ekki fjárfest í steinsteypu á liðnum árum og á því ekki við óhóflegan fjármagns- kostnað að stríða. „Aðstaða íslenskra fataframleið- enda er óþolandi og útilokað að keppa við erlenda framleiðendur varðandi verð. Hér er launakostnaður mun hærri en í Bandaríkjunum eða Þýska- landi, hvað þá SA-Asíu. Hér er vaxta- munur meiri en annars staðar tíðkast og raunar hærri en heildarvextir í samkeppnislöndunum. Loks eru skattar á atvinnustarfsemi af þessu tagi gífurlegir hér á landi. Meðan svona er í pottinn búið geta menn gleymt draumum um að íslenskur fataiðnaður verði ein meginstoð at- vinnulífsins," sögðu þeir hjá Max hf að lokum. KLAUFAR í HÖNDUNUM! Einn þeirra sem hefur varið mest- um hluta starfsævi sinnar til að byggja upp íslenskan fataiðnað er Halldór Einarsson-Henson. Hann var ómyrk- ur í máli er Frjáls verslun ræddi við hann fyrir skömmu: „Það er til vitnis um breytingarnar í þessum iðnaði að þegar framleiðend- ur hittust fyrir 10 árum þurftu þeir að leigja stóra sali undir slíkar samkomur en í dag komast þeir fyrir við lítið borðstofuborð. Sannleikurinn er sá að hið opinbera er með ráðstöfunum sínum eða öllu heldur framkvæmda- leysi búið að afskrifa fataiðnaðinn fyrir löngu. Útlendur saumaskapur flæðir yfir skerið og veitir útlendingum at- vinnu í stórum stíl þannig að við sem vildum gera fsland að framleiðslulandi höfum orðið að rifa seglin og taka þátt í búðarleiknum til að bjarga okkur frá gjaldþroti.“ Halldór Einarsson hefur reynt fyrir 44
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.