Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 54

Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 54
TOLVUR MMmímmmmm Með einni skipun er grafinu á mynd 9 snúið 90 gráður. Þessi möguleiki eykur notagildi kerfisins talsvert. myndatakan ekki ný hugmynd heldur ein margra snjallra lausna sem komu fram í Xerox Star kerfmu upp úr 1980 og kemur þá leiðina inn í GEM skjá- stýrikerfið frá Digital Research. í skel þessa kerfís (Library LITASTÁL ER LISTASTÁL Plasthúðaðar stálklæðningar á þök og veggi frá Inter Profiles eru til í 17 litum. - Prófílhæð 20 mm og 35 mm - Allir fylgihlutir - Skrúfur frá SFS - Þéttilistar frá DAFA - Verkfæri frá BOCH - Fáanleg bogalaga - Fáanleg með ALUZINK húð - Ókeypis kostnaðaráætlanir VERÐIÐ ER HAGSTÆTT IGARÐASMIÐJAN GALAX SF LYNGASI 15 210 GARÐABÆ SIMI 91-53511 GÆÐI XJTR STÁXjI Screen) er auk valmyndarinnar, þar sem valið er á milli ritvinnslu, gagna- safns, töflureiknis, teiknikerfis og samskipta, skrástjóri sem nota má með mjög einföldum skipunum til að ffamkvæma ýmis verkefni. Nefna má afritun, umskírn, tilfærslu, forsnið, skráarleit, eyðingu skráa o.fl. Einnig má fara úr og í DOS, forrita hraðvals- lykla eða fjölva, leita kerfisbundið í skrám o.fl. Tilheyrandi þessu er skráayfirlit þar sem sjá má hvaða skrár eru á drifí, hvað hver þeirra er stór, hvenær henni var síðast breytt o.s.frv. Stór kostur við Ability er að öll kerfi samstæðunnar lúta sama skipanastaðli í öllum meginatriðum. Fyrir bragðið eru öll kerfin jafn opin Flatrit (kökurit) teiknað með Abil- ity. Mjög auðvelt er að færa talna- runu úr töflureikni yfir í teikni- kerfið. Síðan er stutt á einn hnapp og grafið birtist. byrjanda eftir að hann hefur áttað sig á þessum grundvallaratriðum. Þau eru alls staðar þau sömu: F9 til að fara á milli kerfa, F10 til að hætta með eða án uppfærslu, örvar til vals, Return til staðfestingar, F1 fyrir leiðbeiningar og F2 til að birta mögulegar aðgerðir hvers kerfis. Það er ekki í mörgum kerfum í þessum verðflokki sem er jafn skipulega staðið að hlutunum, því miður er „grautargerðin" mun al- gengari. Til þess að íslenskir stafir virki í kerfinu þarf að hlaða inn forritinu Graftabl.EXE (8,2 kb) inn á kerfis- diskinn eða rótarskjalaskrána (C0) á harðdiskinum þannig að það ræsist sjálfkrafa með Ability. íslensku staf- irnir virka í öllum kerfunum og óað- finnanlega að öðru leyti en í heitum sviða í gagnasafninu og ekki í skráar- eða gagnasafnsheitum frekar en í DOS. Ritvinnslan í Ability er tiltölulega einfalt kerfi og lipurt til allra minni- háttar verka. Það birtir textann á skjánum með talsvert minni stöfum en t.d. Word og WordPerfect (um aðra samlíkingu er varla að ræða). Það prentar hins vegar textann út með hraðletri eða gæðaletri eftir því hvort er valið. Kerfið inniheldur prentstjóra fyrir marga algengustu prentarana. Mjög einfalt er að skipta um eða velja prentstjóra. Það er gert með F2/Other/Retum/Device/Ret- urn/Printer/Retum og síðan Retum þar til heiti rétta prentarans birtist í glugganum og þá er staðfest með F10. Prentstjórar fyrir geislaprentara eru ekki í þessu kerfi, a.m.k. ekki í þeirri útgáfu sem fylgir með Amstr- ad. Hins vegar er gert ráð fyrir því að notandinn geti myndað sinn eigin prentstjóra (gert með Generic Print- er) með þeim kóðum sem hann hefur upplýsingar um frá framleiðanda prentarans. Með einni einfaldri skip- un er hægt að láta prentarann prenta langsum á örkina, en það getur verið nauðsynlegt í töflureikninum. Eins og áður sagði er ritvinnslan ekki háþróuð. Það er þó kostur, að mínum dómi, að þetta er ritvinnsla en ekki óskapnaður sem jafnframt hefur verið reynt að gera að einhvers konar umbrotskerfi. Það er bakkað til að leiðrétta staf og Delete virkar með 54

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.