Frjáls verslun - 01.10.1988, Síða 54
TOLVUR
MMmímmmmm
Með einni skipun er grafinu á mynd 9 snúið 90 gráður. Þessi möguleiki
eykur notagildi kerfisins talsvert.
myndatakan ekki ný hugmynd heldur
ein margra snjallra lausna sem komu
fram í Xerox Star kerfmu upp úr 1980
og kemur þá leiðina inn í GEM skjá-
stýrikerfið frá Digital Research.
í skel þessa kerfís (Library
LITASTÁL ER
LISTASTÁL
Plasthúðaðar stálklæðningar á
þök og veggi frá Inter Profiles eru
til í 17 litum.
- Prófílhæð 20 mm og 35 mm
- Allir fylgihlutir
- Skrúfur frá SFS
- Þéttilistar frá DAFA
- Verkfæri frá BOCH
- Fáanleg bogalaga
- Fáanleg með ALUZINK húð
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
IGARÐASMIÐJAN GALAX SF
LYNGASI 15 210 GARÐABÆ
SIMI 91-53511
GÆÐI XJTR STÁXjI
Screen) er auk valmyndarinnar, þar
sem valið er á milli ritvinnslu, gagna-
safns, töflureiknis, teiknikerfis og
samskipta, skrástjóri sem nota má
með mjög einföldum skipunum til að
ffamkvæma ýmis verkefni. Nefna má
afritun, umskírn, tilfærslu, forsnið,
skráarleit, eyðingu skráa o.fl. Einnig
má fara úr og í DOS, forrita hraðvals-
lykla eða fjölva, leita kerfisbundið í
skrám o.fl. Tilheyrandi þessu er
skráayfirlit þar sem sjá má hvaða
skrár eru á drifí, hvað hver þeirra er
stór, hvenær henni var síðast breytt
o.s.frv.
Stór kostur við Ability er að öll
kerfi samstæðunnar lúta sama
skipanastaðli í öllum meginatriðum.
Fyrir bragðið eru öll kerfin jafn opin
Flatrit (kökurit) teiknað með Abil-
ity. Mjög auðvelt er að færa talna-
runu úr töflureikni yfir í teikni-
kerfið. Síðan er stutt á einn hnapp
og grafið birtist.
byrjanda eftir að hann hefur áttað sig
á þessum grundvallaratriðum. Þau
eru alls staðar þau sömu: F9 til að fara
á milli kerfa, F10 til að hætta með eða
án uppfærslu, örvar til vals, Return til
staðfestingar, F1 fyrir leiðbeiningar
og F2 til að birta mögulegar aðgerðir
hvers kerfis. Það er ekki í mörgum
kerfum í þessum verðflokki sem er
jafn skipulega staðið að hlutunum, því
miður er „grautargerðin" mun al-
gengari.
Til þess að íslenskir stafir virki í
kerfinu þarf að hlaða inn forritinu
Graftabl.EXE (8,2 kb) inn á kerfis-
diskinn eða rótarskjalaskrána (C0) á
harðdiskinum þannig að það ræsist
sjálfkrafa með Ability. íslensku staf-
irnir virka í öllum kerfunum og óað-
finnanlega að öðru leyti en í heitum
sviða í gagnasafninu og ekki í skráar-
eða gagnasafnsheitum frekar en í
DOS.
Ritvinnslan í Ability er tiltölulega
einfalt kerfi og lipurt til allra minni-
háttar verka. Það birtir textann á
skjánum með talsvert minni stöfum
en t.d. Word og WordPerfect (um
aðra samlíkingu er varla að ræða).
Það prentar hins vegar textann út
með hraðletri eða gæðaletri eftir því
hvort er valið. Kerfið inniheldur
prentstjóra fyrir marga algengustu
prentarana. Mjög einfalt er að skipta
um eða velja prentstjóra. Það er gert
með F2/Other/Retum/Device/Ret-
urn/Printer/Retum og síðan Retum
þar til heiti rétta prentarans birtist í
glugganum og þá er staðfest með
F10. Prentstjórar fyrir geislaprentara
eru ekki í þessu kerfi, a.m.k. ekki í
þeirri útgáfu sem fylgir með Amstr-
ad. Hins vegar er gert ráð fyrir því að
notandinn geti myndað sinn eigin
prentstjóra (gert með Generic Print-
er) með þeim kóðum sem hann hefur
upplýsingar um frá framleiðanda
prentarans. Með einni einfaldri skip-
un er hægt að láta prentarann prenta
langsum á örkina, en það getur verið
nauðsynlegt í töflureikninum.
Eins og áður sagði er ritvinnslan
ekki háþróuð. Það er þó kostur, að
mínum dómi, að þetta er ritvinnsla en
ekki óskapnaður sem jafnframt hefur
verið reynt að gera að einhvers konar
umbrotskerfi. Það er bakkað til að
leiðrétta staf og Delete virkar með
54