Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Side 55

Frjáls verslun - 01.10.1988, Side 55
yfirskrift þannig að hægt er að bæta orði eða staf inn í línu. FIO er notað til að vista skjal og stutt á F2 til að fá vallínu með hinum ýmsu aðgerðum, þ.á m. prentun sem er einföld og fljótvirk aðgerð. Skjáprentunin virkar einnig hnökralaust. Prentunina má stöðva með Esc og er þá hætt við hana. Með því að styðja á P stöðvast prentun og bíður og fer aftur af stað ef stutt er á C. Það sem ekki er í þessari ritvinnslu en fæst með viðbót fyrir aukagjald er enskur ritskyggir, þ.e. forrit sem leiðréttir stafsetningu, tvöfalt og þrefalt línubil, dálkskorður, undir- og yfirskrift. Töflureiknirinn er byggður upp eins og Multiplan. Ef eitthvað er þá er hann auðveldari viðfangs og hjálpar- textinn á skjánum (enskur að sjálf- sögðu) er hnitmiðaður og skýr. Þessi töflureiknir mun ekki standa í neinum og í honum er að finna reiknihætti. Auðvelt er að flytja talnarunur yfir í grafíska teiknikerfið. Til þess er not- uð skipunin Flip og síðan PickUp á upplýsta blokk (Shade), Flip aftur til að fara á milli kerfa, PutDown og Calc/Draw til að teikna línu- eða stólparitið. Nú lítur þessi skipanaklasi hroðalega út á pappírnum en þess skal gætt að allar þessar, og fleiri, skipanir eru fjölvaðar inn á F-hrað- lyklana. Aðgerðin, að taka talnaröð úr töflureikninum og færa yfir í teikni- kerfið og teikna, er því svona í raun: F9 - F7(og röðin afmörkuð með örva- hnöppum) - F5 - F9 - F6 og F8 til að teikna. Grafíska teiknikerfið er að mörgu leyti sambærilegt við Graph-in-the- Box (GB), fljótlært og auðvelt í með- förum. Það er hægt að teikna línu-, punkta-, stólpa- eða flatrit, afmarka hvern vísi svo sem með því að skyggja, fylla eða randa auk þess sem hægt er að hafa samsetta stólpa með þrepaskilum. Með einni skipun er hægt að snúa grafi 90 gráður, þ.e. breyta láréttu stólpariti í lóðrétt eða öfugt og er það auðveldara en í GB. Áfangar Áskriftarsími 91-82300 Prentunin er mun hraðvirkari en í GB en hins vegar er það ókostur að ekki er um nema eina stærð af gröfum að ræða í stað tveggja í GB, mér tókst í það minnsta ekki að finna leið til að stækka þau. Gröfin eru því nokkuð smá. Þau sem fylgja þessari grein eru gerð með IBM Proprinter. Vegna tímaskorts og rýmis verð ég að láta hér staðar numið í Ability í bili. Gagnasafns- og samskiptakerfið verður að bíða betri tíma en eins og ráða má af lýsingu þeirra kerfa sem þegar hefur verið fjallað um ætti eng- inn að lenda í vandræðum með þau. Þá er að geta handbókarinnar sem er á ensku. Hún er sérstaklega skipu- lega upp sett, t.d. er efnisyfirlitið fremst í bókinni til fyrirmyndar. Hvert kerfi er meðhöndlað á ná- kvæmlega sama hátt og ágætt regist- ur er aftast. Allt þetta kerfi ásamt handbókinni ber það með sér að við hönnun þess og frágang hefur heil- brigð skynsemi fengið að ráða ferð- inni í stað kerfishyggju. Canon ZOOM 70% ~ 122% Stækkar og minnkar frummynd Ljósritar 99 ljósrit í einu. Fastur vagn. Hljóðlaus ljósritunarvél. Ljósritar í fimm litum. Sjálfvirk lýsing og dekking. VIÐHALDSFRÍ LJÓSRITUNARVÉL Canoii P©-'; r" 1 ... VERÐ AÐEINS KR.: 77.900 stgr. Þetta afmælisverð verður aðeins til áramóta. Canon AMMIVCRSARY .laifvélin hf Canon Suöurlandsbraut 12 Simi 685277 00 AMMIVCRSARY 55

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.