Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 55
yfirskrift þannig að hægt er að bæta
orði eða staf inn í línu. FIO er notað til
að vista skjal og stutt á F2 til að fá
vallínu með hinum ýmsu aðgerðum,
þ.á m. prentun sem er einföld og
fljótvirk aðgerð. Skjáprentunin virkar
einnig hnökralaust. Prentunina má
stöðva með Esc og er þá hætt við
hana. Með því að styðja á P stöðvast
prentun og bíður og fer aftur af stað ef
stutt er á C. Það sem ekki er í þessari
ritvinnslu en fæst með viðbót fyrir
aukagjald er enskur ritskyggir, þ.e.
forrit sem leiðréttir stafsetningu,
tvöfalt og þrefalt línubil, dálkskorður,
undir- og yfirskrift.
Töflureiknirinn er byggður upp
eins og Multiplan. Ef eitthvað er þá er
hann auðveldari viðfangs og hjálpar-
textinn á skjánum (enskur að sjálf-
sögðu) er hnitmiðaður og skýr. Þessi
töflureiknir mun ekki standa í neinum
og í honum er að finna reiknihætti.
Auðvelt er að flytja talnarunur yfir í
grafíska teiknikerfið. Til þess er not-
uð skipunin Flip og síðan PickUp á
upplýsta blokk (Shade), Flip aftur til
að fara á milli kerfa, PutDown og
Calc/Draw til að teikna línu- eða
stólparitið. Nú lítur þessi skipanaklasi
hroðalega út á pappírnum en þess
skal gætt að allar þessar, og fleiri,
skipanir eru fjölvaðar inn á F-hrað-
lyklana. Aðgerðin, að taka talnaröð úr
töflureikninum og færa yfir í teikni-
kerfið og teikna, er því svona í raun:
F9 - F7(og röðin afmörkuð með örva-
hnöppum) - F5 - F9 - F6 og F8 til að
teikna.
Grafíska teiknikerfið er að mörgu
leyti sambærilegt við Graph-in-the-
Box (GB), fljótlært og auðvelt í með-
förum. Það er hægt að teikna línu-,
punkta-, stólpa- eða flatrit, afmarka
hvern vísi svo sem með því að
skyggja, fylla eða randa auk þess sem
hægt er að hafa samsetta stólpa með
þrepaskilum. Með einni skipun er
hægt að snúa grafi 90 gráður, þ.e.
breyta láréttu stólpariti í lóðrétt eða
öfugt og er það auðveldara en í GB.
Áfangar
Áskriftarsími
91-82300
Prentunin er mun hraðvirkari en í GB
en hins vegar er það ókostur að ekki
er um nema eina stærð af gröfum að
ræða í stað tveggja í GB, mér tókst í
það minnsta ekki að finna leið til að
stækka þau. Gröfin eru því nokkuð
smá. Þau sem fylgja þessari grein eru
gerð með IBM Proprinter.
Vegna tímaskorts og rýmis verð ég
að láta hér staðar numið í Ability í bili.
Gagnasafns- og samskiptakerfið
verður að bíða betri tíma en eins og
ráða má af lýsingu þeirra kerfa sem
þegar hefur verið fjallað um ætti eng-
inn að lenda í vandræðum með þau.
Þá er að geta handbókarinnar sem
er á ensku. Hún er sérstaklega skipu-
lega upp sett, t.d. er efnisyfirlitið
fremst í bókinni til fyrirmyndar.
Hvert kerfi er meðhöndlað á ná-
kvæmlega sama hátt og ágætt regist-
ur er aftast. Allt þetta kerfi ásamt
handbókinni ber það með sér að við
hönnun þess og frágang hefur heil-
brigð skynsemi fengið að ráða ferð-
inni í stað kerfishyggju.
Canon
ZOOM 70% ~ 122%
Stækkar og minnkar frummynd
Ljósritar 99 ljósrit í einu.
Fastur vagn. Hljóðlaus ljósritunarvél.
Ljósritar í fimm litum.
Sjálfvirk lýsing og dekking.
VIÐHALDSFRÍ LJÓSRITUNARVÉL
Canoii P©-';
r" 1 ...
VERÐ AÐEINS KR.: 77.900 stgr.
Þetta afmælisverð verður aðeins
til áramóta.
Canon
AMMIVCRSARY
.laifvélin hf
Canon
Suöurlandsbraut 12
Simi 685277
00
AMMIVCRSARY
55