Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 78

Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 78
RAGNARS. HALLDÓRSSON: ÉG ER AÐ LEITA MÉR AÐ ÖÐRU STARFI í hugum flestra er Ragnar S. Hall- dórsson svo tengdur íslenska álfélag- inu hf., ÍSAL, að vart er hægt að hugsa sér fyrirtækið án hans eða hann án þess. Það er því ekki að ástæðu- lausu að Ragnar hefur hlotið viður- nefnið „Ragnar í álinu, eða bara „Ragnar álskalli". En enginn er ómissandi, eins og sagt er, og nú er Ragnar hættur í álinu — hann lét ný- lega af störfum sem forstjóri ÍSALS eftir nær 20 ára setu. Hann var að vísu gerður að stjómarformanni fyrir- tækisins en það er ekki fullt starf, eins og svo margir héldu, heldur felur aðeins í sér — auk þátttöku í stefnu- mörkun — stjórnun stjórnarfunda ÍS- ALS, eins og nafnið bendir til. En almenningur átti erfltt með að stað- setja Ragnar einhvers staðar annars staðar en hjá ÍSAL og kannski þess vegna ímynduðu menn sér að stjórn- arformennska hans væri fullt starf. En hvernig hefur Ragnar sjálfur upplifað þessi umskipti? Hvernig h'ður honum? „Ég hef það ágætt, en það voru mikil viðbrigði fyrir mig að láta af forstjórastarfinu, því er ekki að neita. Ég hafði að vísu gott af því að vera látinn hætta. Ég var búinn að sitja lengi í sama stólnum og þurfti að viðra mig. Nú hef ég tækifæri til þess að spreyta mig á öðrum verkefnum. Ég er heilsuhraustur og tilbúinn í slaginn. í rauninni er ég að leita mér að öðru starfí. Ég er opinn fyrir mörgu, það er ýmislegt sem kemur til greina. Hins vegar er ég vanur að stjórna og lík- lega myndi ekkert annað henta mér,“ sagði Ragnar í stuttu spjalli við Frjálsa verslun. Um þessar mundir hefur Ragnar nægan tíma. Hann hefur aukið svig- rúm til að sinna fjölskyldu sinni, eigin- konu, börnum og barnabörnum, og segist kunna vel við sig í afahlutverk- inu. Hann syndir meira, spilar oftar brids, fer í göngutúra og sinnir öðrum áhugamálum sínum af meiri krafti en áður. Hann hefur ólæknandi áhuga á brids og þegar hann var forstjóri hjá ÍSAL var sagt um hann: „Ragnar í álinu ræður engan í vinnu nema þann sem kann að spila brids.“ Hann sótti um starf forstjóra Bif- reiðaskoðunar íslands hf. og margir ráku upp stór augu. En hann fékk ekki starfið. „Það varð annar maður fyrir valinu og ég sætti mig vel við það,“ sagði Ragnar fullur hæversku. Þótt Ragnar sé ekki í föstu staríi hefur hann verið að sinna ýmsum sér- verkefnum að undanförnu. Á vegum Verzlunarráðsins er hann nú að fara ofan í áætlanir Evrópubandalagsins um sameiginlegan innri markað árið 1992. Það viðfangsefni er honum afar hugleikið. Nýlega er búið að koina á laggimar 4 nefndum sem eiga að kanna áhrif sameiginlegs Evrópu- markaðar á íslenskt efnahagslíf og hvemig aðlögun okkar að þeim mark- 78

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.