Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 14
FRÉTTIR
Aukin samkepþni í öryggisgæslu:
ÖRYGGISÞJÓNUSTAN
OPNAR STJÓRNSTÖÐ
Samkeppni í öryggis-
gæslu fer harðnandi. Ný-
lega opnaði fyrirtækið
Öryggisþjónustan hf.,
sem tók til starfa seint á
síðasta ári, stjórnstöð að
Malarhöfða 2 í Reykja-
vík. Vakt er á stöðinni all-
an sólarhringinn. Stöðin
er beintengd við öryggis-
kerfi í fyrirtækjum og
heimahúsum.
Sigurður Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Ör-
Margt manna var við opnunina. Frá vinstri: Einar Jóhanns-
son, Pálmi Gíslason, útibússtjóri Landsbankans, Kjartan Úlf-
arsson, hjá VÍS, Halldór Guðmundsson, hjá VÍS, Páll Braga-
son, framkvæmdastjóri Fálkans og Lárus Einarsson raf-
magnsverkfræðingur.
Frá opnun stjórnstöðvar Öryggisþjónustunnar. Talið frá
vinstri: Gissur Ingólfsson stjórnarformaður, Guido J.M. Boga-
ert, sölustjóri C & K System, Sigurður Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Öryggisþjónustunnar, og Pétur Jóhannsson,
rafmagnsverkfræðingur og yfirmaður tæknideildar fyrirtæk-
isins.
yggisþjónustunnar, segir
að samhliða öryggis-
gæslu selji þeir fyrirtækj-
um og heimilum allan
nauðsynlegan öryggis-
búnað til að tengja við
stöðina. „Við bjóðum al-
hliða öryggisþjónustu,"
segir Sigurður.
Öryggisþjónustan hf.
og Greiðabílar hf. með
sér sérstakt samstarf.
„Ef boð kemur frá fyrir-
tæki fer næsti bíll Greiða-
bíla hf. á staðinn auk þess
sem bíll fer frá stjórnstöð
Öryggisþjónustunnar.
Þetta fyrirkomulag trygg-
ir stuttan viðbragðstíma í
útköllum,“ segir Sigurð-
ur Þorsteinsson.
Fróði hf:
STÓRSAMNINGUR VIÐ GKS-HÚSGÖGN
Útgáfufyrirtæki
Frjálsrar verslunar,
Fróði, hefur samið við
GKS-húsgögn um kaup á
50 vinnustöðvum í
tengslum við flutning
Fróða í Héðinshúsið að
Seljavegi 2 í sumar en
fyrirtækið keypti fjórðu
hæð þess húss nýlega.
Um milljónasamning er
að ræða við GKS-hús-
gögn.
Fróði og forveri þess í
útgáfu, Frjálst framtak,
hafa starfað í 25 ár og
smábætt við sig nýjum og
og notuðum húsgögnum
samfara mikilli stækkun
útgáfunnar. Þessi hús-
gögn eru nú að nokkru úr
sér gengin og því var
ákveðið að endurnýja
sem mest af húsgögnum í
tengslum við flutninginn.
Leitað var tilboða og urðu
GKS-húsgögn fyrir val-
inu.
GKS-húsgögn eru rót-
gróið íslenskt fyrirtæki
sem byggir á gömlum
merg í framleiðslu á hús-
gögnum fyrir skrifstofur.
Fer vel á því að íslensk
tímarit Fróða, sem eiga í
harðri baráttu við erlend
tímarit, verði unnin við
íslensk skrifstofuhús-
gögn frá GKS.
Fróði flytur starfsemi
sína í Héðinshúsið um
mánaðamótin júní-júlí en
fyrirtækið festi kaup á
efstu hæðinni í húsinu í
síðasta mánuði. Fróði
hefur til þessa verið á
tveimur stöðum, ritstjórn
við Bíldshöfðann og skrif-
stofur við Armúlann.
Hæðin sem Fróði
keypti í Héðinshúsinu er
um 1 þúsund fermetrar.
En auk þess keypti fyrir-
tækið 120 fermetra lager
í húsinu. Afhending á
húsnæðinu fer fram í
byrjun maí og á breyting-
um á því að verða lokið í
endaðan júní er flutning-
arnir fara fram.
Bókaútgáfan Iðunn
hefur verið með skrifstof-
*ur sínar á fjórðu hæðinni í
Héðinshúsinu en þær
flytjast að Bræðraborgar-
stíg 16.
14