Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 28
UMHVERFISMÁL
MARKAÐSSTRÍÐ OLÍS OG SKEUUNGS. Nokkur fyrirtæki á íslandi hafa tekið inn umhverfisvernd í markaðs-
setningu sína - sem og stefnumörkun - og kynnt hana í auglýsingum. Barátta olíufélaganna, Olís og
Skeljungs, hefur verið hvað fyrirferðarmest í fjölmiðlum og hefur þeim báðum orðið nokkuð ágengt í að
gera ímynd sína umhverfisvæna. Þannig lenti Olís nýlega í efsta sæti í viðhorfskönnun þar sem spurt var
hvaða fyrirtæki á íslandi væri umhverfisvænast.
Mjólkursamsalan,
Kjötumboðið,
ÚA á Akureyri,
Faxamjöl,
H.B. á Akranesi,
Vinnslustöðin í Vestmanna-
eyjum,
Síldarvinnslan, Neskaupstað,
Fiskimjölsverksmiðjan
Krossanes á Akureyri.
Að sögn Guðjóns Jónssonar, hjá
Iðntæknistofnun, er verkefnið mis-
jafnlega langt á veg komið í þessum
fyrirtækjum en þó er ljóst að tölu-
verðum árangri má ná á mörgum
sviðum við að draga úr kostnaði hjá
þeim um leið og umhverfisvernd er
aukin.
„Tekist hefur að ná fram bættri
hráefnanýtingu, sem leiðir til minni
myndunar á úrgangi, dregið hefur
verið úr orkunotkun, meðferð á föst-
um úrgangi hefur verið breytt, endur-
notkun og endurvinnsla aukin. Síðast
en ekki síst hefur verkefnið í flestum
tilfellum orðið til þess að auka um-
hverfisvitund innan fyrirtækja," segir
Guðjón.
VONIN UM HAGNAÐ ÝTIR
MESTUNDIR UMHVERFISVERND
En hvemig á að fá fyrirtæki til að
láta umhverfismál til sín taka? Fyrir
utan beinar reglur frá hinu opinbera
verður áhuginn fyrst og fremst vak-
inn í gegnum markaðsmálin og hagn-
aðarvonina. Nóta bene; markaður-
inn, fólkið í landinu, verður þá að vera
stilltur inn á nauðsyn umhverfis-
verndar. Fyrirtæki úti í heimi hafa
ekki síst tekið umhverfisvernd inn í
stefnu sfna til að auka viðskiptin.
Hagnast. Hagnaðarvonin kveikir
helst í stjómendum til að taka af festu
á umhverfis- og gæðamálum.
Flestir, sem fjalla um umhverfis-
mál innan fyrirtækja, eru sammála um
að umhverfisverndin verði að vera
hluti af allri daglegri stjómun fyrir-
tækjanna. Gæðamál, umhverfismál
og almenn stjórnun verður í framtíð-
inni einn pakki. Aðalstjórnendur fyrir-
tækja munu hugsa um þessi mál í
samhengi. Þeir munu ræða um gæði
og umhverfisvernd á sama hátt og
þeir ræða um fjármál, tekjur, kostn-
að, arðsemi og svo framvegis. Ætla
má að í fyrirtækjum verði skipaðir
umhverfisstjórar líkt og gæðastjórar,
framleiðslustjórar, fjármálastjórar,
markaðsstjórar og þess háttar. Og
nánast víst er að umhverfisstjórar,
gæðastjórar og markaðsstjórar munu
eiga náið samstarf.
„VÖRUMERKIÐ ÍSLAND"
Ein er sú atvinnugrein sem nýtur
þess sérstaklega vel að ímynd íslands
snúist um umhverfisvernd. Þessi at-
vinnugrein er ferðaþjónustan sem
dafnað hefur afar vel á síðustu árum
og mun vaxa áfram hratt næsta ára-
tuginn. Erlendir ferðamenn, sem
sækja landið heim, eru sérlega góðir
auglýsendur landsins ef þeir sann-
reyna að umhverfisvemd sé í háveg-
um höfð hjá fólki og fyrirtækjum - en
sé ekki bara nafnið tómt.
Þegar þeir snúa aftur til síns heima
eru upplýsingar þeirra þungar á vog-
arskálinni um hvað raunverulega
standi á bak við „vörumerkið ísland“.
Ef íslendingar standast prófið geta
heimsóknir erlendra ferðamanna og
vitnisburður þeirra leitt til aukinnar
sölu á íslenskum vörum erlendis,
Flokkaðu
kostnaðinn niður
Pappi (ekki vaxborinn), timbur og pappír flokkað frá öðrum úrgangi
lækkar kostnað þinn.
S0RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
28