Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 67

Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 67
að auka þjónustu við þá viðskiptavini félagsins sem falla undir skilgreiningu Stofnsins. „Við vildum auka tryggð viðskiptavinanna við félagið með því að bjóða heildarlausn sem uppfyllir vátryggingarþörf þeirra, eða með öðrum orðum; að gera Sjóvá-Al- mennar að meira aðlaðandi kosti fyrir þá viðskiptavini sem hafa umtalsverð viðskipti við félagið og auka þar af leiðandi hagnað félagsins vegna stærri og stöðugri viðskipta hvers viðskiptavinar." Leópold Sveinsson, hjá AUK hf, sem sér um auglýsingar fyrir Sjóvá- Almennar, segir að félagið hafi kynnt málið snemma fyrir starfsmönnum auglýsingastofunnar og því hafí AUK tekið ríkan þátt í vöruþróuninni. „Það fyrsta, sem við gerðum, var að koma með tillögur að nafni og fyrir valinu varð STOFN, nafn sem bæði er lýs- andi fyrir hugmyndina, átti samsvör- un í merki Sjóvá-Almennra, auk þess sem það bauð upp á góðar leiðir til auglýsinga og kynningar. Þegar búið var að ákveða nafnið tók við markhópagreining, úrvinnsla úr neyslukönnun, sem meðal annars skilaði greiningu á samskiptahópum. Þar reyndum við að kortleggja mark- hópana, finna út hverjir væru lík- legastir til þess að koma inn í Stofninn og ákveða hvernig við ætluðum okkur að ná til þeirra. Unnið var með þrjá skil- greinda samskiptahópa, þá sem þegar uppfýlltu öll skilyrðin sem Sjó- vá-Almennar settu eða þurftu litlu við að bæta og fóru beint inn í Stofninn. Annar hópurinn var viðskiptavinir fé- lagsins, sem hugsanlega voru með hluta af tryggingum sínum hjá öðrum tryggingafélögum og síðan voru þeir sem ekki eru í viðskiptum við Sjóvá-Almennar en eiga heima í Stofninum.“ Til fyrsta hópsins telj- ast um 10.000 viðskipta- vinir Sjóvá-Almennra. Þessum hópi var sent bréf áður en Stofninn var kynnt- ur í auglýsingum. Tilgangur- inn með þeirri bréfasendingu var margþættur. Viðskiptavinurinn var kynntur fyrir þessu nýja kerfi og að hann félli undir skilgreiningar Stofns- „Hugmyndin er í eðli sínu afar einföld, við notum tréð, uppistöðuna í merki félagsins. Foreldrarnir eru að flytja allt sitt verðmætasta; börnin, heimilið, innbúið og bílin undir verndarvæng trésins. Tréð er síðan áfram notað í táknrænni merkingu til að undirstrika verndina sem það veitir.“ ins. Þar sem óvenjulegt er að við- skipitavinur séu fyrirfram upplýstir um markaðsaðgerðir hefur þetta bréf hugsanlega undirstrikað mikilvægi þessara viðskiptavina, auk þess sem upp á til að ná skilyrðum Stofnsins og að sögn starfsmanna Sjóvá-Almennra vantar marga úr þeim hópi það lítið að auka afsláttur og endurgreiðslan séu hærri en nemur iðgjaldi. IUnnid var með þrjá skilgreinda samskiptahópa, þá sem þegar uppfylltu öll skilyrði sem Sjóvá- Almennar settu eða þurftu litlu við að bæta og fóru beint inn í Stofninn. Annar hópurinn var viðskiptavinir félagsins, sem hugsanlega voru með hluta af tryggingum sínum hjá öðrum tryggingaféiögum, og síðan voru það þeir sem ekki eru í viðskiptum við Sjóvá-Almennar en eiga heima í Stofninum. þetta bréf minnkaði álagið á sölu- mönnum félagsins þar sem þessir 10.000 viðskiptavinir vissu að þeir væru í Stofni. Annar hópurinn, sem einnig telur um 10.000 viðskipta- vini, inniheldur þá sem afar lítið vant- ar Þessi hópur fékk bréf frá félaginu um leið og Stofninn var kynntur og því bréfi var síðan fylgt eftir með símtali. Auglýsingarnar einar voru látnar tala til þeirra sem lítil sem engin viðskipti hafa við félagið. Sigurþór Gunnlaugsson, einn þeirra fjölmörgu starfsmanna Sjó- vá-Almennra sem vann að þróun stofnsins, segir að áður en ráðist hafi verið í auglýsingagerðina hafi það eitt verið ákveðið að vera ekki með hræðsluáróður eins og algengt er í auglýsing- um trygg- 67

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.