Frjáls verslun - 01.03.1995, Page 78
STJORNUN
fram eftir götunum. Afar
vandræðalegt er að þurfa að
rifja upp heiti þessara hug-
taka á ensku á sjálfum fundin-
um.
Þá er það umræðuefnið
utan viðskiptafundanna.
Hvað ætlar gestgjafmn að
tala um við gesti sína í svo-
nefndu daglegu tali, til dæm-
is yfir kvöldverði? Um þetta
þarf að hugsa og auðvelt er
að undirbúa sig. Síðan er
hægt að leiða umræðuna inn
á það efni sem þú hefur kynnt
þér.
Reynslan sýnir að yfir
kvöldverði er algengt að
ræða um ísland; náttúruna,
orkuna, fiskinn, veðurfarið,
forsetann, menninguna og
þess háttar. Lestu þér til ef
þú ert ekki vel að þér í þess-
um málum. Sú heimavinna
skilar sér margfalt. Mikil-
vægt er að ræða alls ekki um
viðkvæm mál sem upp hafa
komið í löndum gestanna.
Það er meiri hætta en minni
að þau falli ekki í kramið og að gestirn-
ir móðgist.
að stundum væru íslending-
ar sjálfum sér verstir í kvöld-
verðarboðum. Þeim hætti til
að sýna vanmáttakennd og
ræða um hvað allt væri dýrt
og ómögulegt á íslandi: „ís-
land og fslendingar séu
svona og svona.“ Þeir töluðu
líkt og þeir tilheyrðu ekki
þjóðinni.
EKKIFYLLAST ÞJÓÐREMBU
YFIR KVÖLDVERÐINUM
En það er líka hægt að fara
öfganna á milli og fyllast þjóð-
rembu. Þjóðremban birtist
þá í því að á íslandi sé allt
best og fullkomnast. „Við
eigum besta fiskinn, falleg-
ustu konur í heimi, tærasta
vatnið, hreinasta loftið,
besta lambakjötið og lang-
bestu hestana. Nefndu það
bara!“ Enginn skyldi detta
ofan í þessa gryfju. Menn
verða hlægilegir af svona
tali.
Annað hollt ráð er að þykj-
ast ekki vita allt á milli himins
og jarðar í samræðum yfir kvöldverð-
arboði. Auðvitað er nauðsynlegt að
Ekki vera með þjóðrembu. Segðu frekar að á íslandi
sé vatnið tært, loftið hreint, fiskurinn góður og kon-
ur fallegar í stað þess að segja að við eigum tærasta
vatnið, fallegustu konurnar, hreinasta loftið og
besta fisk í heimi.
Einn viðmælenda Frjálsrar versl-
unar innan ferðaþjónustunnar sagði
EYJAFERÐIR
Þægileg hótel og gistiheimili meö 24 herbergjum.
Bátsferöir um eyjarnar óteljandi í Breiöafirði þar
sem skelfiskur er veiddur og snæddur um borö.
Fjölbreytt fuglalíf, sérstæðar bergmyndanir og
sjávarfallsstraumar, lifandi leiðsögn.
- Ógleymanlegt ævintýri -
Eyjaferöir Stykkishólmi
Sími 93-81450
Fax 93-81050
78