Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 12
FRETTIR
EKKIBARA GÓLF OG
LOFT - VEGGIR LÍKA
Jón H. Karlsson er kominn aftur til fyrri starfa. Raunar kemur hann að
aðeins breyttu borði. Fyrirtækið heitir núna GLV hf.
Jón H. Karlsson, sem
tók sér frí frá störfum
sem framkvæmdastjóri
Teppabúðarinnar og
gerðist aðstoðarmaður
hjá fyrrum heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, er
kominn aftur til fyrri
starfa.
Raunar kemur Jón að
aðeins breyttu borði,
hann er núna annar
tveggja framkvæmda-
stjóra GLV hf. sem stend-
ur fyrir Gólf, Loft & Veggi
hf. Hinn framkvæmda-
stjórinn er Pétur
Guðmundsson en hann
stýrði Litaveri áður. Jón
sér um þjónustu og söl-
una en Pétur fjármálin.
Rekstur Teppabúðar-
Þeir stjórna GLV hf., framkvæmdastjórarnir Jón H. Karlsson
(til vinstri), og Pétur Guðmundsson.
innar og Litavers var sem
kunnugt er sameinaður
fyrir nokkrum mánuðum
undir nafninu GLV hf.
Fyrirtækið er í eigu sömu
aðila og áður. Jafnframt
hefur hið nýja fyrirtæki
keypt rekstur Teppa-
verslunar Friðriks Bert-
elsen.
Nýlega var opnuð stór og glæsileg veggefnadeild í Litaveri. Að sögn Jóns er þetta stærsta
veggefnadeild í einni verslun hérlendis. „Á lager er til veggfóður í meira en 100 litum og til eru
150 gerðir af veggfóðursboröum."
Jón segir að með þess-
um breytingum hyggist
fyrirtækið ná fram auk-
inni hagræðingu, aðal-
lega í skrifstofuhaldi,
innkaupum og lager-
haldi. Eftir sem áður
verða verslanirnar þrjár
áfram reknar á sínum
stað og munu halda sér-
stöðu sinni á markaðn-
um.
Að sögn Jóns er Teppa-
verslun Friðriks Bertels-
en sérverslun með
áherslu á ullargólfteppi
og ullarmottur.
„í Teppabúðinni fást
allar gerðir gólfefna, þ.e.
parket, teppi, mottur,
flísar og dúkar, auk hinna
þekktu hljóðeinangrandi
kerfis-lofta frá Arm-
strong.
í Litaveri fást gólfdúk-
ar, linoleumdúkar, teppi
og mottur, aðallega frá
franska fyrirtækinu
Sommer. Þar er jafnframt
stærsta veggefnadeild í
einni verslun hérlendis.
Verulegur hluti umsvifa
Litavers felst í sölu máln-
ingar og málningarvöru
en Litaver er eina bygg-
ingarvöruverslunin á höf-
uðborgarsvæðinu sem
hefur ávallt á boðstólum
málningu frá öllum ís-
lensku málningarfram-
leiðendum.
Þá má geta þess að
GLV hf. á og rekur einu
íslensku teppaverksmiðj-
una en hún framleiðir hin
sígildu Alafoss-teppi,“
segir Jón H. Karlsson.
12