Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 19
FORSÍÐUGREIN
Nýrformaður Vinnuveitendasambandsins í nærmynd:
SUNDKAPPIÚR
SJÁVARÚTVEGI
□
Ólafur Baldur Ólafsson, oft kenndur við Miðnes í
Sandgerði, hefur verið valdamikill í íslensku atvinnulífi. Samt hefur
hann ekki verið sérlega áberandi
lafur Baldur Ólafsson er nýr
Uformaður Vinnuveitendasam-
bands íslands. Ólafur er oft
kenndur við Miðnes í Sandgerði enda
er það fjölskyldufyrirtæki, stofnað af
föður Ólafs í félagi m.a. við Harald
Böðvarsson sem síðar gerði garðinn
frægan á Akranesi. Það kom síðan í
hlut Ólafs að setjast við stjórnvölinn,
þegar hann hafði lokið námi í Þýska-
landi, og stýra Miðnesi hf. gegnum
skerjagarð kvótakerfisins inn í nútím-
ann. Flestir munu sammála um að
Ólafur hafi sýnt aðgæslu og fag-
mennsku í því starfi og náð að verja
fleytuna áföllum í ólgusjó.
Ólafur Baldur Ólafsson er fæddur
10. júlí 1945. Hann er næs-
tyngstur í sínum systkina-
hópi sem telur alls sex.
Elstur var Jón Gunnlaugur
sem lést 1934, aðeins
þriggja ára, þá Jón Ægir
framkvæmdastjóri, f. 1936,
Gunnar Þór framkvæmda-
stjóri, f. 1938, ÁsgeirBragi,
f. 1943, Ólafur Baldur, f.
1945 og yngst er Guðlaug
Nanna, f. 1948. Foreldrar
þessa mannvænlega hóps
voru hjónin Ólafur Jónsson,
framkvæmdastjóri á Akra-
nesi, og Lára Guðmunds-
dóttir sem var einnig frá
Akranesi.
Ólafur Baldur er kvæntur
Hildi Guðmundsdóttur hús-
móður en hún er dóttir Guðmundar
Björnssonar augnlæknis og Kristínar
Benjamínsdóttur konu hans. Ólafur
og Hildur eiga eina dóttur, Kristínu
NÆRMYND
Láru, sem er við nám. Þau voru fyrst
um sinn búsett í Sandgerði og fluttu
rétt um 1980 í glæsilegt einbýlishús
við Heiðarbrún þar í bæ.
ÓLST UPP í REYKJAVÍK
Ólafur Baldur ólst upp í Reykjavík
og var búsettur þar öll sín uppvaxtar-
NUVERANDI0G FYRRVERANDI
Núverandi og fyrrverandi formaður VSÍ, Ólafur
B. Ólafsson og Magnús Gunnarsson. Þeir eru
miklir vinir og hafa þekkst lengi.
ár. Hann, eins og öll systkinin, dvaldi
mörg sumur í sveit á Ytri-Leirárgörð-
um í Leirársveit skammt ofan við
Akranes. Miðnes var upphaflega
stofnað sem sameignarfélag af Ólafi
Jónssyni, Haraldi Böðvarssyni og
Sveini Jónssyni en Ólafur og Sveinn
keyptu Harald út úr fyrirtækinu og
stofnuðu Miðnes hf. í nóvember 1941.
Undir handleiðslu Ólafs og félaga
hans óx fyrirtækið og dafnaði og
þegar bátaflotinn var stærstur taldi
hann 10 vertíðarbáta. Ólafur og bræð-
ur hans unnu allir í fjölskyldufyrirtæk-
inu eins fljótt og þeir höfðu aldur til,
eða um 10-11 ára aldur og öll sumur
með skólanámi. Fjölskyldan eignaðist
hús í Sandgerði og bjó þar
oft öll á sumrum en hafði
vetursetu í Reykjavík utan
hvað heimilisfaðirinn var
einatt langdvölum suður í
Sandgerði. Synirnir ólust
því upp við almenn störf til
sjós og lands og einn þeirra,
Ásgeir, varð skipstjóri.
TÆKNIFRÆÐINGUR
FRÁ ÞÝSKALAND!
Ólafur varð stúdent frá
Verslunarskóla íslands 1965
og hleypti heimdraganum til
Þýskalands strax að loknu
stúdentsprófi og nam tækni-
fræði við Fachhochschule
fur Teknik í Mannheim og
lauk prófi þaðan 1969. Að
TEXTI: PflLL ASGEIRSSON MYNDIR: GUNNAR GUNNARSSON
19