Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 31
réttar ákvarðanir á mikilvægum
stundum. Fyrirtækinu er vel stjórn-
að. Framleiðsla á prenturum hefur
einnig verið fyrirtækinu mjög mikil-
væg og reynst gott akkeri þegar ekki
hefur kannski gengið alveg eins vel á
öðrum sviðum. Leiser-prentarar,
einir og sér, skila okkur nú um 6 millj-
örðum dollara árlega. Fyrirtækið
ræður 35% markaðarins í heiminum í
sölu prentara. Velgengni fyrirtækis-
ins má því rekja til samblands nokk-
urra þátta, góðrar framtíðarsýnar,
réttra ákvarðana, góðs skipulags og
góðs starfsfólks,“ segir Sozonoff að-
spurður um ástæður velgengni fyrir-
tækisins. Annars er framleiðslulína
Hewlett-Packard mjög fjölbreytt og
fyrirtækið framleiðir mjög margar
vörur. HP framleiðir til dæmis mikið
af tækjum og tólum fyrir spítala.
Tölvumarkaðurinn er þó traustasti
markaðurinn að sögn Sozonoffs.
„Starfsmannastjórn okkar er mjög
opin. Við rekum svokallaða „open
door“ stefnu. Við erum ekki með
gamaldags kerfi þar sem starfsmenn
hugsa um það eitt að þóknast yfir-
mönnum sínum. Hver sem er getur
komið á skrifstofu mína og kvartað
yfir einhverju eða látið skoðanir sínar
í ljós. Dyr yfirmannanna eru ævinlega
opnar fyrir starfsmennina. Við könn-
um reglulega hug starfsmannanna,
hvemig þeim líki að vinna fyrir fyrir-
tækið, hverju megi breyta og hvað
megi gera betur. Við tökum þessar
kannanir alvarlega. Minn stjómunar-
stíll er mjög opinn. Ég gef starfs-
mönnum mínum mikið frelsi en ég
geri að sama skapi miklar kröfur. Ég
vil að sett séu mjög nákvæm markmið
og þeim náð. Starfsmenn fá hins veg-
ar mikið frelsi til að ákvarða hvernig
þessum markmiðum er náð. Ég lít á
niðurstöðurnar frekar en smáatriðin.
Ég tel mig vera framkvæmdastjóra
fólksins," segir Sozonoff.
TÖLVUBÚNAÐUR FYRIR
HEIMIUN NÆSTA SKREF
Sozonoff segir að í upphafi hafi
Hewlett-Packard lagt höfuðáherslu á
að framleiða vörur fyrir verkfræðinga
og aðrar sérfræðistéttir. Fyrirtækið
var stofnað árið 1939 af þeim Bill
Hewlett og Dave Packard en þeir eru
enn á lffi. Á sjötta áratugnum var
áhersla lögð á að framleiða tölvubún-
að og tengdar vörur fyrir fyrirtæki á
almennari markaði og þá jókst salan
mikið.
„Næsta skref í þróuninni verður
aukin áhersla á að framleiða tölvubún-
að fyrir heimilin. Það þýðir ekki að við
hættum að framleiða tölvuvörur fyrir
fyrirtæki og sérfræðinga, enda verð-
ur það áfram mikilvægasti markaður-
inn, heldur verða heimilin vaxtar-
broddurinn í framtíðinni," segir Alex
Sozonoff.
Sozonoff segir að það séu margir
stórir markaðir að opnast í heiminum
um þessar mundir og minnist sér-
staklega á Asíu og Suður-Ameríku í
því sambandi. Mörg stór lönd séu að
opna hagkerfi sín og breyta viðskipta-
háttum og eitt það fyrsta sem þau
þurfi séu auðvitað upplýsingar. Því sé
vaxandi eftirspurn eftir vörum
Hewlett-Packard víða um heiminn.
„Staða okkar er að verða sterk í
löndum eins og Mexíkó, Brasilíu, Ar-
gentínu og víðar í Suður-Ameríku.
Kína er risamarkaður sem er að opn-
ast fyrir okkur og þar höfum við þegar
hafist handa. Ég er nýkominn frá Kína
og það er ljóst að þar eru miklir mögu-
leikar og við höfum ákveðið og leggja
mikla áherslu á þann markað,“ segir
Sozonoff. Hann segir að Austur-Evr-
ópa og Rússland séu líka markaðir
sem ekki megi gleyma.
ÁNÆGÐUR MEÐ
HEWLETT-PACKARD Á ÍSLANDI
Sozonoff segist vera mjög ánægð-
ur með starf Hewlett-Packard á ís-
landi. Markaðshlutdeildin sé góð og
starfsfólkið mjög hæft. ísland sé mjög
áhugavert markaðssvæði. Markað-
urinn sé að sönnu smár en hann virki
miklu stærri, notendur séu mjög vel
að sér og fylgist vel með helstu nýj-
ungum í tölvuheiminum. íslendingar
séu mjög meðvitaðir um hvað sé efst
á baugi hverju sinni.
Alex Sozonoff, aðstoðarforstjóri Hewlett-Packard, og Frosti Bergsson, for-
stjóri Opinna kerfa, áður HP á íslandi, ræðast við á 10 ára afmæli HP á ís-
landi á dögunum.
ITÖLVUVÆÐING HEIMILA HELSTI VAXTARBRODDURINN
Næstu skrefin í þróuninni verða stóraukin
áhersla á að framieiða tölvur og tölvubúnað fyrir
heimili. Þar liggur vaxtarbroddur framtíðarinnar.
Það þýðir samt ekki að við drögum úr sölu á
tölvum til fyrirtækja og sérfræðinga,
mikilvægasta markaðs okkar.