Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 84
ELDHUSINNRETTINGAR
Kirsuberjaviður hefur verið vinsæll undanfarið og má segja að þessi innrétting sé dæmigerð fyrir innréttingu sem
nýtur þess að sjást víða að úr íbúðinni. Innréttingin var hönnuð 1989 og var geymd í sýningarsal í kjallara Brúnás
innréttinga þangað til hún komst í tísku um 1992.
liti í eldhúsinnréttinguna. Hjá þeim er
boðið upp á nokkra liti. „Við leiðbein-
um fólki í litavali og seljum t.d. ekki
skæra liti. Við köllum litina okkar „sí-
græna“, þ.e. þeir eru svolítið demp-
aðir og eru valdir í samræmi við viðar-
tegundirnar. Það er hætta á því að
fólk verði fljótt leitt á skærum litum
þó að því finnist þeir frískir og
skemmtilegir til að byrja með,“ sagði
Dóra.
Að mati viðmælenda okkar þorir
fólk meira að vera það sjálft þegar það
er að hanna eldhúsin sín. Persónuleiki
íbúanna kemur auðvitað fram í því
hvernig það vill hafa eldhúsið. Tíðar-
andinn leyfir að fólk sé heimilislegt og
hjá sumum er svolítil hippastemning í
tísku, þ.e. opnar hillur þar sem settar
eru alls kyns krúsir og krukkur.
Ragnheiður Sverrisdóttir, innan-
hússarkitekt hjá Ikea, sagði að þau
seldu talsvert af innréttingum úr
gamaldags furu og með þeim glugga-
hurðir í sveitastíl. Bæsaður viður er
einnig vinsæll hjá ákveðnum hópi
fólks.
í sama streng tók Sigrún Reynis-
dóttir, arkitekt hjá Fit, sem flytur inn
innréttingar frá Kvikk í Danmörku.
Henni finnst eins og áhugi fyrir furu-
innréttingum sé að aukast en í Dan-
mörku hefur selst mikið af furu und-
anfarið. „Fólk leitar aftur í gamla stíl-
inn og er opnari fyrir því að velja sér
það sem því líkar best sjálfu. Nýlega
fengum við t.d. bæsað birki og margir
hafa sýnt því áhuga. Hægt er að fá
skápana hjá okkur samsetta og flest-
um þykir það þægilegra en að fá í
hendur spýtnabunka sem það verður
að setja saman sjálft,“ sagði Sigrún.
Límtré í borðplötum er til í öllum
viðartegundum og það efni er t.d.
mun mýkra og hlýrra heldur en gran-
ít, sem einnig er vinsælt en er mun
dýrara. Harðplast er þó lang algeng-
asta efnið og í vandaðri innréttingum
er settur massívur viðarkantur á
borðplötuna í sömu viðartegund og er
í innréttingunni. Viðarborðplötur
þarfnast talsverðs viðhalds ef þær
eiga að vera fallegar og hafa vinsældir
þeirra minnkað þess vegna.
Á milli borðplötu og efri skápa var
algengt að hafa flísar en nýlega var
farið að setja við á þetta svæði, þann
sama og í innréttingunum eða sama
efni og í borðplötu. Nú eru flísar hins
vegar að verða vinsælar aftur en þær
eru minni en áður, 10x10 sm eða jafn-
vel 5x5 sm. Mósaík hefur einnig
verið að skjóta upp kollinum en það
var mjög vinsælt fyrir um 30 árum.
Fyrir nokkrum árum fóru íslenskir
hönnuðir að setja halógenljós undir
efri skápa í stað flúorljósa sem áður
voru algengust.
f nýjum eldhúsum eru helluborð og
bakarofn oftast aðskilin og er ofninn
oftast uppi á vegg í góðri vinnustell-
ingu. Þar sem nægilegt pláss er hefur
verið vinsælt að hafa eldunartækin í
sérstöku frístandandi borði eða
„eyju“. Litur á eldunartækjum er val-
84