Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 92
Hérna sést hve samsetningarmöguleikar linoleumgólfdúkanna eru miklir.
Harðarson, sölustjóri hjá Teppalandi
Parketgólfi, segir að þetta sé að
breytast þar sem mynstruð, lita-
sprengd eða einlit teppi í sterkum lit-
um verði sífellt vinsælli. Litum og
mynstrum er jafnvel blandað saman.
„Vinsældir gólfteppa eru að aukast
samfara því að hlýrra umhveríi er að
komast aftur í tísku sem sést á því að
fólk er farið að velja húsgögn úr dökk-
um viðartegundum og veggfóður auk
þess sem meiri litagleði er komin í
málninguna. Þegar gluggatjöld og
húsgögn eru í hlýjum tónum er ekkert
gólfefni sem gefur sömu tilfmningu
fyrir hlýju og vellíðan eins og gólf-
teppi. Hins vegar eru teppi aðallega
keypt á stofur og ganga en minna á
þau rými þar sem fólk helst óskar eftir
hlýlegu umhverfi eins og á svefnher-
bergi. Þar kemur helst til sá áróður
sem hefur verið uppi um þrif á gólf-
teppum og hugsanleg óhreinindi í
þeim. En staðreyndin er sú að ekki er
erfiðara að þrífa gólfteppi en önnur
gólfefni. Hörð gólfefni eins og flísar,
parket og gólfdúkur eiga öll erindi inn
á heimili á rétta fleti í réttu umhverfi.
En ekkert þessara efna gefur þá
hlýju, hljóðeinangrun og mýkt sem
góð gólfteppi gefa.“
Fjórar tegundir af gami eru al-
gengastar í gólfteppum: Ull og þrjár
gerðir gerviefna. Gerviefnin eru
polyamid eða nælon, polypropylen og
polyester. Ullin státar af mikilli mýkt
auk þess sem hún skemmist ekki við
minniháttar glóð. Polyamid og poly-
ester státa einnig af töluverðri mýkt
en hafa slitþol umfram ullina. Algeng-
asta efnið er polyamid en það er auð-
velt að lita. Það hefur gott endurris og
heldur því útliti sínu. Polyester er
fýrst og fremst notað í heimilisgólf-
teppi og er auðvelt að þrífa það. Poly-
propylen er mjög slitþolið og á það má
nota sterk hreinsiefni. Hins vegar
bælist það meira en önnur efni og er
Hérna er reyktri eik og birki bland-
að saman þannig að út kemur
óvenjulegt mynstur.
hart viðkomu. Erfiðara er að lita það
en önnur gerviefni og því er litaúrval
minna. Það sem helst ræður verði á
gólfteppum er vefnaðaraðferðin og
gammagnið. Góð heimilisteppi kosta
frá 1.800-3.500 krónur fermetrinn.
Þegar ætlunin er að kaupa vandað
teppi á heimili skiptir máli úr hvaða
efni það er, hversu mikið garnmagnið
er, að auðvelt sé að þrífa það og að
teppið sé afrafmagnað og haldi útliti
sínu vel.
„Kostimir við teppin eru meðal
annars þeir hve auðvelt er að þrífa
þau. Hins vegar nægir ekki að ryk-
suga vikulega heldur verður að vatns-
hreinsa, eða þurrhreinsa, teppin
reglulega eða á tveggja til þriggja
mánaða fresti. Gólfteppi binda ryk
sem auðvelt er að ryksuga en rykið
safnast ekki í hnoðra. Þess vegna eru
góð gólfteppi hentug fyrir þá sem
þjást af ýmiss konar öndunarörðug-
leikum.“
GOLFEFNI
92