Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 20
FORSIÐUGREIN
því loknu stundaði hann nám í rekstr-
artæknifræði við Fachhochschule fiir
Wirtschaft í Pforzheim og lauk því
1970. Þá hóf hann störf sem rekstrar-
tæknifræðingur hjá KSB AG dælu-
framleiðanda í Frankenthal í Þýska-
landi og starfaði þar í tvö ár en jók
jafnframt við menntun sína með því að
sækja Seminar fur Industrial Engin-
eering seinna árið.
Ólafur settist ekki að með þýskum
en sneri heim 1973 og hóf störf hjá
fjölskyldufyrirtækinu Miðnesi í Sand-
gerði sem framkvæmdastjóri sama
ár.
KUNNIVEL VIÐ SIG Á MEÐAL PÝSKRA
Ólafur kunni mjög vel við sig meðal
þýskra og hefði trúlega sest þar að en
fjölskyldan, sérstaklega Gunnar
bróðir hans, lagði nokkuð að honum
að koma heim og leggja fjölskyldufyr-
irtækinu lið enda voru frumherjamir
teknir að eldast og Sveinn Jónsson,
meðeigandi Ólafs föður þeirra, orðinn
heilsulítill. 1976 til 1990 var Ólafur B.
einnig framkvæmdastjóri Keflavíkur
hf. sem var fiskvinnslu og útgerðar-
fyrirtæki í Keflavík í eigu Miðness.
Keflavík hætti fiskvinnslu 1983 eftir
bruna og hefur nú verið lagt niður og
eignir þess seldar Keflavíkurbæ.
Fyrirtækin voru sameinuð 1990 og
síðan hefur aðeins Miðnes hf. verið
rekið á snærum fjölskyldunnar. Mið-
nes hf. velti rúmum milljarði árið 1993
en þá var 18 milljón króna tap á
rekstrinum. Um 160 ársverk eru hjá
Miðnesi sem gerir út togarana Ólaf
Jónsson GK og Svein Jónsson KE,
bátana Geir goða GK og Jón Gunn-
laugs GK og nótaskipið Keflvíking.
Samanlagður kvóti skipanna í þorsk-
ígildistonnum er 5.991 tonn.
Þó staða Miðness teljist ágæt og
fyrirtækið með þeim öflugri í þessari
atvinnugrein á Suðumesjum hafa
undanfarin ár verið tímar samdráttar
og niðurskurðar.
„Þetta hafa verið erfíðir tímar og
við töpuðum miklu fé,“ segir Gunnar
Þór bróðir Ólafs sem tekur fram að
einhugur hafi ríkt um stjórn Ólafs á
fyrirtækinu á þessum erfiðleikatím-
um.
„Við höfum alltaf verið sammála og
þótt við höfum ekki verið það í upphafi
höfum við aldrei hætt fyrr en því er
náð.“
Bræður Ólafs, þeir Jón Ægir og
Gunnar Þór, starfa báðir hjá Miðnesi.
Jón Ægir er útgerðarstjóri en Gunnar
er stjórnarformaður. Fjórði bróðir-
inn, Ásgeir, er óvinnufær eftir bílslys
í Svíþjóð fyrir nokkrum árum.
HEFUR TEKIÐ VIRKAN ÞÁTT í
STJÓRNUN ÝMISSA FÉLAGA
Ólafur hefur tekið virkan þátt í við-
skiptalífmu með þátttöku og setu í
stjórn ýmissa samtaka, félaga og
fyrirtækja. Hann var í stjóm Hafskips
hf. 1974-1985, lengst af varaformað-
ur. Hann hefur setið í stjóm Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna frá 1975
og verið varaformaður þeirra sam-
taka frá 1985. Hann hefur verið for-
maður Félags síldarsaltenda á Suður-
og Vesturlandi frá 1976. Hann átti
sæti í stjóm Utvegsmannafélags Suð-
urnesja frá 1976 til 1985 og í stjóm
Skipaafgreiðslu Suðumesja frá 1976.
Hann hefur setið í stjóm Samlags
skreiðarframleiðenda frá 1976 og
verið formaður þess frá 1991. Ólafur-
hefur setið í stjóm Coldwater Sea-
food frá 1978, Verslunarráði frá 1978
og í stjóm Stjómunarfélags íslands
sat hann 1978 til 1982. Hann settist í
stjórn Vinnuveitendafélags Suður-
nesja 1984 og varð formaður þar 1991.
Hann hefur setið í stjóm Vinnuveit-
endasambands íslands frá 1985 og í
stjórn Verðjöfnunarsjóðs frá 1990.
Hann er varaformaður í stjóm Olíufé-
lagsins, ESSO.
Þessi mikla þátttaka Ólafs í stjórn-
um fyrirtækja og samtaka hefur orðið
til þess að hann er stundum í gamni
kallaður „varaformaður íslands".
HANN ERAFAR
METNAÐARFULLUR
„Hann er mikill félagsmálamaður
og hefur mikinn metnað á þessu sviði
eins og öðrum. Þama sést vel
hvemig hann vinnur. Hann kemur sér
velfyrir, hávaðalaust, og vinnur jafnt
og þétt að einhverju marki sem ekki
er víst að neinn viti um nema hann og
hættir ekki fyrr en hann nær því,“
segir maður sem þekkir Ólaf vel og
hefur unnið með honum.
Ólafur er mjög vinnusamur maður
og agaður í vinnubrögðum og nefna
sumir þýskan aga og nákvæmni í
þessu sambandi. Hann byijar hvem
vinnudag klukkan sjö á því að fara í
sund og taka röskan sundsprett en
Ólafur var mjög liðtækur sundmaður
á sínum yngri árum og keppti í sundi
fyrir ÍR. Hann hefur jafnan lifað reglu-
sömu lífi og hefur mikinn áhuga á
íþróttum og þegar vinnan leyfir vill
hann helst bregða sér á skíði eða í
gönguferð.
VINNUR LANGAN VINNUDAG
Hann vinnur langan vinnudag eins
og gefur skilja um mann sem gegnir
svo mörgum og fjölþættum trúnaðar-
störfum. Mörgum finnst kvóti hans í
þeim efnum vera fullur og tæplega á
hann bætandi enda mun hann, sam-
kvæmt heimildum Fijálsrar verslun-
ar, losa sig við stjómarsetu í SH, fari
sem horfir að hann taki við for-
mennsku í VSÍ.
„Hann er heiðarlegur, vinnusamur
og tryggur,“ segir Gunnar Már Ólafs-
son, bróðir hans, þegar hann er beð-
inn að lýsa bróður sínum.
EKKIHARÐSTJÓRIEN MEÐ
ÍHALDSSAMAN STJÓRNUNARSTÍL
„Hann er enginn harðstjóri en telst
sennilega hafa íhaldssaman stjórnun-
arstíl. Þetta eru þau gildi sem okkur
voru innrætt í uppeldinu; íhaldssemi,
vinnusemi og dugnaður."
Þegar frístundir gefast frá vinnu og
fundasetum sinnir Ólafur fjölskyldu
sinni en hann er jafnframt félagi í Rot-
aryklúbb Keflavíkur. Þar hefur hann
getið sér gott orð en ólíkt öðrum víg-
stöðvum ekki tekið að sér nein sér-
stök embætti og er t.d. ekki varafor-
maður klúbbsins.
Þeir bræður, Jón Ægir, Ólafur
IHann kemur sér vel áfram, hávaðalaust, og
vinnur jafnt og þétt að einhverju marki, sem
ekki er víst að neinn viti um nema hann, og
hættir ekki fyrr en hann nær því.
20