Frjáls verslun - 01.04.1995, Blaðsíða 22
FORSIÐUGREIN
Ólafur byrjar hvern vinnudag klukkan sjö á því að fara í sund og taka röskan sundsprett. Hann var mjög
liðtækur sundmaður á sínum yngri árum og keppti í sundi fyrir ÍR.
aldrei verið endurreistur, þvímiður.“
En hvemig lýsir Gunnar Ólafi,
fomvini sínum?
„Þetta er prýðispiltur hann Óli,“
segir Gunnar. „Hann er heiðarlegur,
vinnusamur og fylginn sér eins og
sést á því hvernig hann hefur rekið
sitt fyrirtæki. Hann er góður félagi."
„Ólafur kemur mér fyrir sjónir sem
mikill félagsmálamaður, mjög skipu-
lagður og duglegur," sagði Gunnar
Tómasson, einn Þorbjarnarbræðra í
Grindavík, í samtali við Frjálsa versl-
un.
LÆTUR SKOÐANIR SÍNAR
HIKLAUST OG SKÝRT í UÓS
„Hann lætur að sér kveða á fund-
um, lætur skoðanir sínar hiklaust og
skýrt í ljós. Ég tel að hann hafi mjög
gott orð á sér í atvinnulífinu og njóti
almenns trausts þeirra sem til
þekkja,“ segir Gunnar sem hefur
starfað með Ólafi í stjórn Samtaka
„Hann er heiðarlegur, vinnusamur og fylginn
sér, eins og sést á því hvernig hann hefur
rekið sitt fyrirtæki. Hann er góður félagi.“
— Gunnar Hansson^ Nýherja,
einn helsti vinur Ólafs.
fiskvinnslustöðva, Félags síldarsalt-
enda og innan Sölumiðstöðvarinnar.
„Hann er afskaplega traustur mað-
ur og samviskusamur í öllu starfi,“
segir Magnús Gunnarsson, fráfarandi
formaður Vinnuveitendasambands
íslands, sem hefur kynnst Ólafi Baldri
náið á vettvangi félagsmála innan
greinarinnar og kynntist honum
reyndar þegar á skólaárunum í Versl-
unarskólanum þar sem þeir áttu sam-
eiginlega kunningja en Ólafur var
nokkrum árum á undan Magnúsi í
skólanum.
„Hann var k'fsglaður námsmaður á
þeim árum og átti þá, eins og nú, afar
gott með öll samskipti við fólk. Hann
er góður, léttur og skemmtilegur fé-
lagi hvort sem er í vinnu eða utan
vinnunnar. Hann hefur að mínu mati
verið farsæll í starfi sínu hjá Miðnesi
hf.“
22