Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 48

Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 48
MARKAÐUR Sagan á bak við herferðina: ÁTIÁN ÓDÝRAR AUGLÝSINGAR í „GAMALLIM HERFERÐ Þegar leitað var til stórbóndans og skáldjöfursins Flosa Olafssonar brast stíflan. Frá honum streymdu maltvísur sem margar geymast í minni fólks örgum þótti undarlegt að „gömul“ auglýsingaherferð skyldi fá viðurkenningu sem athyglisverðasta auglýsingaherferð síðasta árs, þegar ímark, íslenski markaðsklúbburinn, gerði upp aug- lýsingaárið 1994. Um er að ræða auglýsingar fyrir Egils maltöl, sem sýndar hafa verið í sjónvarpi frá því í janúar 1993, án þess að fá viðurkenningu fyrr en nú. Reyndar hafa aug- lýsingamar verið endumýjað- ar, þannig að reglulega birtast nýjar auglýsingar innan sama þemans, þ.e. íslendingar fara með ferskeytlu og auglýsa maltið. Þessi aðferð við auglýsinga- gerð, að finna þema sem enda- laust er hægt að spinna við og halda ferskleika og frumleika auglýsinganna, er ekki algeng hér á landi og á ugglaust sinn þátt í verðlaunaveitingunni. En hver var upphaflega hug- myndin að auglýsingunum og hvernig þróuðust þær? Gunnlaugur Þráinsson, einn eigenda auglýsing- astofunnar Gott fólk, segir að frum- hugmyndin hafi komið frá Ölgerðinni, „en hún tók miklum breytingum og þótt auglýsingamar, sem við höfum gert, sýnist í fljótu bragði afar líkar innbyrðis hafa þær tekið breytingum og þróast.“ Gunnlaugur segir að Ölgerðar- menn hafi, í tilefni af 80 ára afmæli Ölgerðarinnar, viljað fá þekkt fólk til að vitna um ágæti maltölsins sem lifað TEXTI: ÞORSTEINN G. GUNNARSSON 48 hefur með þjóðinni í 80 ár. Þegar við hófum vinnuna var meira að segja búið að finna mann sem var rúmlega níræður og hafði dmkkið malt í 80 ár, frá fyrstu löguninni! ÞÁ BRAST STÍFLAN En fljótlega fjarlægðumst við þessa hugmynd, sérstaklega þar sem við vorum ekki hrifin af þeirri einföldu leið að sýna mynd af þekktum ein- staklingi og einhvern texta sem segi: Þetta er Jón Jónsson, hann drekkur malt. Við vildum leita nýrra leiða og fljótlega duttum við niður á ferskeytl- una. Við vorum ánægðir með þá hug- mynd, enda er ferskeytlan jafn rót- gróin í þjóðarsálinni og maltið. Það varð því úr að við leituðum eftir sam- starfi við þekkt skáld og rithöfund með hnyttnar maltvísur í huga. En eftir viku umþóttunartíma hafði hann samband við okkur að sagði hug- myndina ekki ganga upp. Andinn vitj- aði hans ekki og frómt frá sagt sagði hann að ógerlegt væri að yrkja um maltölið af einhverju viti.“ Þótt skáldið hefði brugðist vonum auglýsingafólksins varð það ekki til að drepa hugmyndina því þau hjá Góðu fólki vissu um neistann sem lá falinn í hugmyndasúpunni og gerðu aðra tilraun. Þá var leitað til stórbóndans og skáldjöfursins Flosa Ólafssonar og þá brast stíflan. Frá Flosa streymdu maltvísur sem margar hverjar geymast enn í minni fólks. Upphaflega stóð til að hefja maltherferðina fyrir jólin 1992 en Ölgerðarmenn féllu frá þeirri hugmynd, „þar sem maltið seldist afar vel fyrir þau jól og reyndar hefur desember ávallt verið besti sölumánuður maltölsins," segir Gunnlaug- ur. „En við vorum tilbúin með hugmyndir að herferð og eftir jólin, í janúar 1993, var Ölgerð- in tilbúin til að auglýsa og ákveðið var að fara af stað með herferðina. Áður en við fórum af stað var malt- ölið í hægri og rólegri sölu ef jólamán- uðurinn er undanskilinn. Við vissum hins vegar að unnt væri að auka sölu drykkjarins því hann hafði þegar sannað sig og lifað af miklar þjóðfé- lagslegar breytingar. Maltið hefur nefnilega lifað af tvær heimstyrjaldir, kreppuna, síldina sem kom og fór, nýsköpunina, 15 ríkisstjómir og alla forseta lýðveldisins! Maltöl er vinsæll jóladrykkur. Desember 1993 var mesti sölumánuður maltöls frá upphafi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.