Frjáls verslun - 01.01.1996, Side 17
FRETTIR
WERNER, ÞORGILS OG ÚLFUR
Stjórnir Húsfélags
Kringlunnar og Kringl-
unnar 4-6 hf. (Borgar-
kringlunnar) undirrituðu
á dögunum samning um
samstarf Kringlunnar og
Borgarkringlunnar.
Landsbanki, íslands-
banki, Iðnlánasjóður og
Iðnþróunarsjóður eiga
Kringluna 4-6 hf. en það
félag á 1. og 2. hæð í Borg-
arkringlunni. Samning-
urinn gengur út á að Hús-
félag Kringlunnar tekur
að sér rekstur eignar-
hluta lánastofnananna í
Borgarkringlunni. Við
það losa þær sig út úr
rekstri hússins og treysta
eign sína í sessi í leiðinni.
PORSTEINN ÓLAFS
Þorsteinn Ólafs, for-
stöðumaður Samvinnu-
bréfa Landsbankans, hef-
ur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Handsals
hf. í stað Eddu Helgason
sem lét af störfum ný-
lega, eins og fram hefur
komið í fjölmiðlum.
Þorsteinn hefur mikla
reynslu af verðbréfa-
markaðnum. Hann hefur
starfað við verðbréfavið-
skipti í um tólf ár.
Þorsteinn er 38 ára.
Hann útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur frá
Háskóla íslands vorið
1982. Hann er löggiltur
verðbréfamiðlari. Þor-
steinn er kvæntur Láru
Kristjánsdóttur og eiga
þau þrjú börn.
EGGERT SKULASON
BEÐINN AFSÖKUNAR
Eggert Skúlason,
fréttamaður á Stöð 2, er
beðinn afsökunar á full-
yrðingum, sem um hann
voru hafðar í nærmynd af
Finni Ingólfssyni, við-
skipta- og iðnaðarráð-
herra, í síðasta tölublaði
Frjálsrar verslunar.
Fullyrt var að Eggert
væri framsóknarmaður.
Að sögn Eggerts er þetta
rangt. Hann sé hvergi
flokksbundinn og hafi
aldrei verið - hvað þá eftir
að hann gerðist frétta-
maður. Og þótt hann sé
náskyldur Finni Ingólfs-
syni geri það hann ekki
þar með að framsóknar-
manni.
Orðrétt var fullyrðing-
in svona um Eggert:
„Finnur fer oft í líkams-
ræktarstöðvar, eins og
íl
í nærmynd af Finni Ingólfs-
syni var sagt að Eggert
Skúlason, fréttamaður á Stöð
2, en hann er náskyldur
Finni, væri framsóknarmað-
ur. Það er rangt. Eggert er
beðinn afsökunar á þessum
ummælum.
Mátt, og hamast þar á
þrekhjóli og lyftir lóðum,
stundum í kompaníi með
Eggert Skúlasyni, frétta-
manni og vini sínum, sem
er skólaður á Tímanum
og gegn framsóknarmað-
Kringlumenn kvitta undir samstarf. Frá vinstri: Werner Ras-
musson, stjórnarformaður Húsfélags Kringlunnar, Þorgils
Óttar Mathiesen, stjórnaformaður Kringlunnar 4-6 hf. (Borg-
arkringlunnar), og Úlfur Sigurmundsson, fulltrúi Iðnþróunar-
sjóðs í stjórn Kringlunnar 4-6 hf.
líið þjonustum þig!
BOSCH
Vepkstæðið
Þjónustumiðstöð
í hiarta borgarinnar
• Astandsskoðun
• Dieselverkstæði
• Dieselstillingar
• Endurskoðun
• Hemlaviðgerðir
• Ljósastillingar
• Rafviðgerðir
• Smurþjónusta
• Vélastillingar
Ókeypis rafgeymaísetning
og rafkerfismæiing!
Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807
BOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut
17