Frjáls verslun - 01.01.1996, Side 34
FORSIÐUGREIN
„Ef líkja á þessu við vald forstjóra í fyrirtæki
má segja að forstjórinn hafi bæði vald forsætis-
ráðherra og fagráðherra.“
muldra „sunnudagur" fer hann
og leggst aftur. Á veturna vakna
ég um áttaleytið á morgnana -
það tekur raunar svolítinn tíma
að stilla hundinn inn á vetrartí-
mann.“
— Hvenær lýkur vinnudegi
forsætisráðherra?
„Það má segja að vinnudegin-
um ljúki ekki fyrr en um mið-
nætti. Ég nota símann mikið
fram eftir kvöldi. Iðulega er það
svo að ég nýti kvöldin til að fara
yfir gögn, skrifa og punkta ým-
islegt niður hjá mér. Liggi mikið
við, ef ég þarf til dæmis að skrifa
þýðingarmikla ræðu, fer ég
gjarnan út úr bænum eftir há-
degi og læt mig hverfa í fjórar til
fimm klukkustundir til að fá al-
gert næði. Þá læt ég engan ná í
mig nema ráðherrana, þeir
komast alltaf að.“
— Þú vinnur til miðnættis á
kvöldin. Ertu í raun kvöld-
maður fremur en morgun-
maður að upplagi? Vinnst þér bet-
ur á kvöldin?
,Já, ég er meiri kvöldmaður þótt
þetta sé eflaust spurning um hvað
maður venur sig á. En mér verður oft
mikið úr verki á kvöldin þótt ég eigi þá
að vera orðinn þreyttur eftir eril
dagsins samkvæmt öllum kokkabók-
um.“
— Stjórnendur sitja marga fundi en
margir þeirra líta engu að síður á
fundi sem tímaþjóf. Tefja fundir
þig mikið sem stjórnanda?
„Fundir eru tímafrekir og þeir eru
mjög misnauðsynlegir. Oft er ekki
hægt að stjóma öðmvísi en með
fundi. Þó hef ég gætt þess að sitja
ekki of marga fundi. Yfirleitt finnst
mér mönnum vinnast seint á fundum
og að of mikill tími fari til spillis. Á
vinnufundi er það oftast þannig að
tveir til þrír menn skipta meginmáli
upp á niðurstöðuna. En síðan teygjist
á honum vegna þess að aðrir, sem í
raun hafa lítið með málið að gera, tjá
sig. Á þá verða stjómendur að hlusta.
Enda má spyrja sig hvers vegna þeir
sitji fundinn megi þeir ekki koma sín-
um sjónarmiðum að. Ég held að al-
menna reglan sé sú að því fleiri sem
sitji fund því lengur stendur hann og
því gagnslausari er hann.
— Fylgir þú mjög strangri og mark-
vissri dagskrá á fundum þínum?
„Ég býst við að aðrir viðmælendur
segi að fundir mínir séu ekki mjög
markvissir í upphafi. Það er ekkert
endilega vaðið beint í málin. Það em
oft teknar fimm til tíu mínútur í upp-
hafi í eitthvað allt annað, gjaman ein-
hverjar sögur úr tilvemnni. Ég er
mikill sagnakarl. En eftir það er mark-
vissri dagskrá haldið - og ég á mjög
auðvelt með að ljúka fundum fmni ég
að þeir séu að teygjast og raska ann-
arri dagskrá dagsins.
Raunar er það viljandi sem ég byija
fundi mína með þessum hætti. Ég tel
það mikinn kost að hefja fund á að tala
um eitthvað allt annað og óskylt mál í
nokkrar mínútur, einkum ef um erfið-
an fund er að ræða og spenna er í lofti.
Sjái ég að menn mæti stífir og ætli
fram hver á móti öðrum er þetta bráð-
nauðsynlegt. Sömuleiðis getur verið
gott að nota þessa aðferð á miðjum
fundi ef menn taka að æsast; brjóta
upp umræðumar og gantast svolítið,
svona til að þeir fari aðeins út af spor-
inu. Við það slaknar á spennunni. Eft-
ir það ýti ég umræðum aftur af stað og
þær verða þá yfirvegaðri og málefna-
legri. Þessi aðferð hefur reynst mér
vel.“
— Hver er helstu verkefni for-
sætisráðherra sem stjórn-
andi?
„Ætli þau séu ekki samræm-
ing og leiðsögn. Samræming á
verkum annarra þannig að þau
falli í einn farveg og síðan leið-
sögn sem felst í því að menn
missi ekki sjónar á meginmark-
miðunum. Þetta em hin stóru
verksvið forsætisráðherra."
— Hver ráðherra hefur fullt
vald yfir sínum málaflokki,
samkvæmt forminu. En þýðir
þetta í reynd að forsætisráð-
herra geti ekki skipað ráð-
herrum sínum fyrir verkum,
líkt og venjulegur forstjóri?
,Já, forsætisráðherra getur
ekki skipað ráðherrum sínum
fyrir verkum. En hann getur
stöðvað vissa hluti. Hann getur
sagt að hann sé einhverju ósam-
mála og vilji ekki að það sé gert.
Og þá er lfldegt að tillit sé tekið
til þess. Enda er um ríkisstjórn for-
sætisráðherrans að ræða. En slflui
valdi verður að beita bæði varlega og
sparlega.
Vald forsætisráðherra er ekki ein-
göngu forsætisráðherravald heldur
pólitískt vald þótt það nái ekki til sam-
starfsflokksins og ráðherra hans. Það
er ljóst að forsætisráðherra getur
stöðvað framgang máls með pólitísku
valdi í sínum eigin flokki. Ef líkja á
þessu við vald forstjóra í fyrirtæki þá
má segja að forstjórinn hafi bæði vald
forsætisráðherra og fagráðherra."
—Hvernig snýr þetta að ráðningum
embættismanna?
„Vald fagráðherrans er algjört í
mannaráðningum. Þó er það þannig
að allar helstu embættismannaráðn-
ingar kynna fagráðherrar yfirleitt
fyrir forsætisráðherranum áður en
þeir taka ákvörðun. Ef forsætisráð-
herra segði að einhver maður væri
vonlaus í embætti er hugsanlegt að
tekið yrði tillit til þess. Fagráðherra
er það þó ekki skylt og forsætisráð-
herra gæti ekkert fundið að því.
Reynist embættismaðurinn síðan
vonlaus og geri vitleysur minnir for-
sætisráðherra fagráðherrann vænt-
anlega ítrekað á að hann hafi andmælt
ráðningunni upphaflega."
34