Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 41
JSTUtttSt
;lS2SSÆS3sti»v»rBltó^bref».
Þór og Björg eru
enn á uppleið og
haia nú safnað
*»S
1.215.000 kr.
Þetta er nýjasta auglýsingin í her-
ferðinni um sparnað þeirra Björgu
og Þórs. Þau taka þetta skref fyrir
skref og eru komin upp í 1.215 þús-
und krónur.
BJORGU 0G ÞOR
bæta inn í hana. Þau hjón eiga núna 1.215 þúsund. Margt smáttgerir eitt stórt
HRINGT í ÞJÓÐINA
Með janúarreikningnum sínum árið
1990 fengu allir VISA notendur til-
kynningu frá Þjónustumiðstöð ríkis-
verðbréfa, þar sem áskriftin var
kynnt, og árangurinn varð 1000 nýir
áskrifendur. Þessi árangur sannfærði
menn endanlega um að eftirspum
væri eftir „vörunni“ og ljóst var að
meiri árangur myndi nást ef unnt væri
að gera áskriftina enn auðveldari fyrir
almenning og tímamót urðu í mark-
aðssetningu spariskírteinanna árið
1990. Þá sátu þremenningarnir Ein-
ar, Helgi og Pétur saman á fundi og
ræddu hvemig þeir gætu kynnt
áskriftina fyrir fleirum og gert fólki
enn auðveldara að kaupa áskriftina. Á
þeim fundi sagði Helgi félögum sínum
brandarann um bandaríska markaðs-
manninn sem á að hafa sagt að ís-
lenski markaðurinn væri það lítill að
einfaldast og ódýrast væri að hringja í
væntanlega viðskiptavini. Og við
þessa sögu datt þeim það sama í hug.
Því ekki að hringja í þjóðina?
„Hugmyndin þótti nokkuð brjálæð-
isleg en eftir að hafa reynt aðferðina á
litlu úrtaki var einsýnt að símasalan
var rétta leiðin. Á níu mánuðum var
hringt inn á hvert einasta heimili á
landinu og fólki gefinn kostur á að
kaupa áskrift að spariskír-
teinum ríkissjóðs. Við-
tökumar urðu hreint
ótrúlegar. Margir fögn-
uðu upphringingunum og
sögðu sem svo að þeir
hefðu reyndar verið að
velta sparnaðinum fyrir
sér en símtalið hefði verið
svarið sem þeir hefðu í
raun beðið eftir,“ segir
Helgi. „Enda er sparnað-
urinn einfaldur. Fólk er að
leggja fyrir, við erum ekki
að tíunda vexti, gengi og
önnur tæknileg atriði.
Þetta er einfaldur sparn-
aður.“ Árangur þessarar mestu síma-
sölu íslandssögunnar var gífurlegur.
Alls gerðust um 15.000 íslendingar
áskrifendur að spariskírteinum í
þessu átaki.
EYDDU í SPARNAÐ
Auglýsingarnar vöktu umtal og fólk
fór að tala sín á milli um
hvemig það verði fjár-
munum sínum í sparnað
og í þeim umræðum varð
til snilldarhugtakið
„eyddu í sparnað“. Þann-
ig var að ung dóttir Péturs
kom að máli við hann og
sagði að þær vinkonumar
hefðu verið að tala um það
hversu hyggilegt það
væri að „eyða peningun-
um sínum í sparnað".
Með þessu óvenjulega
hugtaki fannst mönnum
opnast leið til að fá fólk til
að breyta afstöðu sinni til
Þessi auglýsing
vakti feiknalega at-
hygli. Hver tísku-
varan af annarri
lendir í geymsl-
unni.
41