Frjáls verslun - 01.01.1996, Qupperneq 72
FOLK
ANNA REYNIS HJÁ TEYMI
Anna Reynis, 30 ára fjármálastjóri tölvufyrirtækisins Teymi. Fyrirtækið hefur um-
boð fyrir Oracle hugbúnað á Islandi.
Dejmii er söluaðili
Oracle hugbúnaðar á
íslandi. Fyrirtækið
var stofnað í apríl á síðast-
liðnu ári með þremur starfs-
mönnum. Núna eru starfs-
menn fimm og von er á ein-
um til viðbótar. Þetta
fyrirtæki er í örum vexti og
við ætlum okkur að sækja
enn meira fram,“ segir
Anna Reynis íjármálastjóri
Teymis. Hvað varðar fram-
tíðarmarkmið Teymis segir
Anna að margt sé í bígerð.
Ætlunin sé að bjóða fram all-
sherjarlausnir í upplýsinga-
vinnslu fyrirtækja. Teymi
er með heimasíðu á Intem-
etinu og verið er að setja
upp innri vef sem geymir
alla þekkingu sem verður til
innan fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri
Teymis er Elvar Steinn
Þorkelsson tölvunarfræð-
ingur en hann tók við um-
boði Oracle árið 1991.
Stuttu síðar hóf Anna að
starfa fyrir hann í hlutastarfi
með námi sínu í Háskólan-
um.
„Við höfum um 40 aðila í
viðskiptum og þar á meðal
eru stærstu fyrirtæki lands-
ins. í framtíðinni stefnum
við á að bjóða vörur okkar
og þjónustu til minni fyrir-
tækja en Oracle, sem sam-
anstendur af gagnagrunns-
kerfum og þróunarverkfær-
um , er farið að bjóða meira
úrval af hugbúnaði fyrir
þennan markað en áður var.
Oracle Corporation er ann-
að stærsta hugbúnaðarfyr-
irtækið í heiminum, næst á
eftir Microsoft. Þetta er virt
fyrirtæki um allan heim og
sérstaklega er vara þess
þekkt fyrir sveigjanleika.
Sveigjanleikinn felst í því að
hægt er að kaupa hugbúnað-
inn fyrir einn til tvo notend-
ur en með vexti og auknum
umsvifum er auðvelt að
bæta við notendum og
stækka gagnagrunninn.
Þannig vex Oracle með
fyrirtækinu. Hugbúnaður-
inn er fáanlegur á flestar
gerðir stýrikerfa og véla,
þar á meðal PC og Macin-
tosh,“ segir Anna.
Anna er viðskiptafræð-
ingur, þrítug að aldri, og út-
skrifaðist úr viðskiptadeild
HÍ síðastliðið haust. Eins og
áður hefur komið fram var
Anna byrjuð að vinna með
Elvari með náminu. Hún fór
síðan í fullt starf við stofnun
Teymis í apríl í fyrra. Anna
vann fyrir fleiri á námsárum
sínum í HÍ, þar á meðal fyrir
Eimskipafélagið og Hástoð
sem er nemendafyrirtæki
háskólanema.
„Ég öðlaðist mikla
reynslu af því að vinna með
náminu. Ég byrjaði fremur
seint í viðskiptafræðinni því
ég var óráðin framan af.
Áður en ég fór í viðskipta-
fræðina vann ég á ýmsum
stöðum, svo sem hjá Lands-
bankanum í tvö ár og önnur
tvö ár hjá BM-VaOá. í
nokkra mánuði var ég bús-
ett í Þýskalandi, kom svo
heim og prófaði að fara í lög-
fræðina en hætti og fór að
vinna hjá Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar áður en
ég fór í viðskiptafræðina.
Ég er þeirrar skoðunar að
reynsla á vinnumarkaði sé
ekki síður mikilvæg en próf
úr skólum,“ segir Anna.
Lokaritgerð hennar fjallaði
um Teymi undir yfirskrift-
inni „Stefnumótun og gæða-
stjórnun hjá nýstofnuðu
fyrirtæki."
Anna segir að frá upphafi
hafi verið mikið að gera í
fyrirtækinu. Hún hafi einnig
þurft að setja sig inn í mörg
sérhæfð mál hvað varðar
tölvur, bæði hugbúnað og
vélbúnað. Tími til tóm-
stunda hafi því ekki verið
mikiU en það stefni í það að
hún fari að sinna þeim betur.
Anna er í sambúð með Sig-
urði Sveinssyni handknatt-*
leiksmanni í FH og við-
skiptafræðinema.
„Ég er með algjöra veiði-
dellu og hef haft hana alveg
frá því ég fékk Maríulaxinn,
7 punda, þegar ég var níu
ára. Á sumrin erum við eins
mikið í silungs- og laxveiði
og færi gefst. Foreldrar
mínir eiga sumarbústað í
landi Langár í Borgarfirði og
við erum mikið þar,“ segir
Anna. Fluguhnýtingar eru
meðal áhugamála Önnu og
myndlist. „Ég fór á sínum
tíma á námskeið í Mynd-
lista- og handíðaskólanum
og vil gjarnan gefa mér meiri
tíma fyrir myndlistina,“ seg-
ir Anna.
TEXTI: JÓHANNA A. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
72