Frjáls verslun - 01.03.1997, Page 20
Hilmar Pálsson, íramkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags
Brunabótafélags Islands. A honum mæddi mikið í þess-
um viðræðum. Hann mun ávallt hafa komið einn síns Iiðs
á fundina með Tryggva, Jakobi og Árna.
Tryggvi Gunnarsson, lögmaður og einn eigenda A&P
Lögmanna við Borgartún 24, leitaði hófanna hjá Hilmari
Pálssyni hjá Brunabót og hóf leynilegar viðræður við hann
um hugsanleg kaup bankans á hlut Brunabótar í VÍS.
Qullyrt er að hugmyndafræðingarnir að kaupum
Landsbanka íslands á hlut Eignarhaldsfélags
Brunabótafélags íslands í VÍS og Líftryggingafélagi
Islands, LIFIS, hafi verið þeir Tryggvi Gunnarsson, lög-
maður og einn eigenda A&P Lögmanna, og Jakob
Bjarnason, framkvæmdastjóri Hamla,
eignarhaldsfélags bankans. Hins vegar mun
það hafa komið í hlut þeirra Tryggva og
Hilmars Pálssonar, forstjóra Eignar-
haldsfélags Brunabótafélagsins, að leggja
grunninn að kaupunum. Það gerðu þeir í afar leynilegum
viðræðum sem fram fóru á skrifstofu Tryggva í Borgartúni
24 Þeir tóku fyrsta skrefið - aðeins tveir.
Tryggvi Gunnarsson lögmaður hefur starfað mikið fyrir
Landsbankann á undanförnum árum og vann, ásamt
fleirum, að hinum yfirgripsmiklu
samningum bankans við SIS, Samband íslen-
skra samvinnufélaga, á árunum frá 1990 til
1992. Þar kom Jakob einnig mjög við sögu
sem framkvæmdastjóri Hamla. Ennfremur
FRÉTTASKÝRING
Jón G. Hauksson
Sala Eignarhaldsfélags Brunabótafélags íslands á helmingshlut sínum í VÍS á
hlutabréfhér á landi. Aödragandi sölunnar er ekki síöur fréttnœmur
viörœöum hjá A&P Lögmönnum
teikningar: þórarinn f. gylfason wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
20