Frjáls verslun - 01.09.1997, Blaðsíða 30
Tveir Kynnisferðabílar í Öskjuhlíð. FV-myndir: Kristín Bogadóttir.
MEÐ FLUGRÚTUNNIÁ LEH) í FLUGK)
ynnisferðir sf. reka Flugrútuna og
hafa yfir að ráða glæsilegum bíla-
flota sem annast farþegaflutninga
milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli. Bílaflotinn er sá
h rj-. jgV' |
\\ W-
Úr afgreiðslu Kynnisferða á Hótel
Loftleiðum.
yngsti á landinu og er í stöðugri endurnýjun.
Nú síðast voru teknir í notkun tveir Mercedes
Benz 404 bílar, fullkomnustu hópferðabílar,
sem völ er á og fleiri eru í pöntun.
Mikil þægindi fylgja því að setjast upp f
rútuna í Reykjavík, hvort heldur er f stórviðr-
um vetrarins eða á sólbjörtum sumardegi og
láta aka sér frá gististað til flugvallar. Sama
gildir þegar komið er til landsins og ekki þarf
að hafa áhyggjur af því að á bílastæði flug-
vallarins bíði einkabíllinn fenntur f kaf eins
og komið getur fyrir.
Flugrútan tengist upplýsingaþjónustu um
flug á Keflavíkurflugvelli og er með sölu- og
upplýsingabás í komusal Leifsstöðvar. Kapp-
kostað er að þjóna gististöðum í Reykjavík
jafnt, þannig að sama fargjald gildir frá
hvaða hóteli Reykjavíkur sem farþegarnir eru
sóttir. Þetta er meðal annars gert með það f
huga að helstu brottfarartímar Flugrútunnar
eru á þeim tíma sem almenningsvagnar
ganga ekki. Handhöfum Saga Business og
Saga Gold korta Vildarklúbbs Flugleiða býðst
sú sérþjónustu að vera sóttir heim að dyrum,
óski þeir þess kvöldið áður.
Það er enginn vafi að Flugrútan er örugg-
asti og ódýrasti kosturinn þegar velja á
ferðamáta til Keflavíkurflugvallar og frá. Rút-
urnar eru þægilegar og bílstjórar, sem kunna
sitt fag, koma farþegum skjótt og örugglega
á leiðarenda, hvernig sem viðrar.
Hugruttm
30