Frjáls verslun - 01.09.1997, Blaðsíða 14
Frá stofiifundi samtaka um að fiskimiðin séu þjóðareign. Frá vinstri:
Hjónin Jón Gunnar Ottósson líffræðingur og Margrét Frímannsdóttir,
formaður Alþýðubandalagsins, og Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins. FV-mynd: Geir Ólafsson.
NOKKRIR SMELLIR UÓSMYNDARANS!
Frá hádegisverðarfundi Islenska út-
varpsfélagsins með Dr. Jay W. Lorsch,
prófessor við Harward háskólann, um
hlutverk stjórnarmanna í fyrirtækjum.
Jón Ólafsson, stjórnarformaður ís-
lenska útvarpsfélagsins, býður gesti vel-
komna.
Dr. Jay W. Lorsch, prófess-
or við Harward Business
School í Bandarikjunum,
flytur erindi sitt um hlut-
verk stjórna í íyrirtækjum.
Frá haustfúndi íslands-
banka þar sem fjallað var
um stjórnun gengisá-
hættu. Aðallyrirlesari var
David W. Clark, banka-
stjóri í London.
RAKVELABLAÐIÐ!
ndanfarnar vikur hef-
ur DV auglýst ákaft
að það sé beitt blað
sem kafi ofan í kjölinn á málum. Þetta eru vel gerðar aug-
lýsingar þótt sumum þyki þær svolítið mótsagnakennd-
ar. En svo er ekki. DV tók nefnilega síðasta tölublað
Frjálsrar verslunar, bókina 100 stærstu, og skar út
fréttina um kvótakóngana fjóra - eflaust með rakvéla-
blaði og alveg niður í kjöl bókarinnar - og birti sem sína
eigin frétt, og eigin útreikninga, bæði á forsíðu og í opnu
helgarblaðsins frá 11. október sl. Mikil reisn er yfir DV með
svona hagræðingu - enda hafa auglýsingarnar eflaust kostað
sitt. En hvers vegna ekki bara að gefa Frjálsri verslun upp hvenær
skil eru á efiii í helgarblað DV? Það styrkir stoðir lýðræðisins!
-JGH
Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS.
FV-mynd: Kristján Einarsson.
IKASTLJOSINU
□ enedikt Sveinsson, forstjóri ÍS, hefur
verið í kastljósi fjölmiðla að undanförnu
vegna kaupa fyrirtækisins á franska fyr-
irtækinu Gelmer. Benedikt fæddist 13. júlí 1951
á Reyðarfirði. Fósturforeldrar hans voru Sveinn
Auðbergsson og Rannveig K. Sigfúsdóttir.
Benedikt byrjaði 8 ára að vinna á síldarplan-
inu hjá Alla ríka en stundaði sjó á trillum og
smærri bátum á yngri árum og hugleiddi að
fara í Stýrimannaskólann. Hann útskrifaðist úr
Fiskvinnsluskólanum 1976 og fór fljótlega að
vinna sem sölumaður hjá sjávarafurðadeild
Sambandsins. Sigurður Markússon, yfirmaður
hjá SIS, tók hann undir sinn verndarvæng og
fól honum að koma Iceland Seafood Ltd. í Bret-
landi á laggirnar. Hann vann því í Bretlandi frá
1980 til 1991 þegar Islenskar sjávarafurðir hf.
urðu til í kjölfar hruns Sambandsins.
Það er sagt um Benedikt að hann sé harður
sölumaður og hafi einu sinni selt 100 tonn af
flökum meðan hann beið eftir lest. Hann er
kappsamur og leggur afar hart að sér við að afla
IS viðskipta. Hann er sagður harður samninga-
maður. Gárungarnir segja að hann ráði helst
gamla skólabræður úr Fiskvinnsluskólanum og
Austfirðinga sem sína nánustu samstarfsmenn.
Þegar frístundir gefast fer hann í pílagrímsferð-
ir til Eskifjarðar eða í laxveiði með vinum sín-
um.
Benedikt er kvæntur Sif Haraldsdóttur
snyrtifræðingi, þau búa við Bæjargil í Garðabæ
og eiga tvö börn, Thelmu og Benedikt.
(Ur Nærmynd Frjálsrar verslunar 1994)