Frjáls verslun - 01.09.1997, Blaðsíða 23
íffs
**“*«?£SSíS^ Sé bæð‘
Snntilvegnaráðdeildarogheppn,
fessor, formaður sóknarnefndar Neskirkju,
sagði í samtali við blaðið að fjárhagur safnað-
arins hefði færst mjög til betri vegar fyrir
nokkrum árum þegar sóknargjöld voru
hækkuð. Söfnuðurinn nyti þess einnig að húsakynni væru
rúm og hefðu alla tíð verið og því ekki nauðsyn á kostnað-
arsömum byggingum. Ennfremur hefði hljóðfæri kirkjunn-
ar verið látið duga til þessa dags en nú væri orgelkaup í
undirbúningi og einnig væri hugað að byggingu félags-
heimilis.
„Þannig má segja að þessi styrki fjárhagur sé bæði kom-
inn til vegna ráðdeildar og heppni,“ sagði Guðmundur.
ALLIR FÁ LEGSTAÐ
Svo litíð sé til annarra þátta í ijármálum kirkjunnar þá
hefur áður verið minnst á kirkjugarðsgjaldið. Garðarnir
skipta upphæðinni milli sín eftír höfðatölureglum sem
þýðir að Kirkjugarðar Reykjavíkur fengu mest árið 1996
eða um 170 milljónir. Kirkjugarðar Hafnarijarðar komu
næstir með um 22 milljónir og þá Kirkjugarður Akureyrar
með um 20 milljónir. Alls voru greidd kirkjugarðsgjöld til
263 kirkjugarða. Af sjálfu leiðir að sumir fá harla lítið eða
þeir minnstu, s.s. kirkjurnar á Víðihóli á Hólsfjöllum og í
Unaðsdal á Snæijallaströnd sem fengu 10-15 þúsund krón-
ur hvor en báðir staðirnir eru löngu lagstir í eyði.
BISKUPSSTOFA MEÐ 516 MILUÓNIR
Til Biskupsstofu renna 516 milljónir skv. fjárlöguml997.
Stærsti hluti þessa eru laun 138 presta og prófasta sem
námu um 426 milljónum árið 1996. Nokkuð hefur verið deilt
um laun presta undanfarin ár og prestar hafa sótt fast að fá
kjör sín lagfærð og einnig að sérstakar greiðslur fyrir ein-
stök prestsverk verði lagðar niður og heildarlaun hækkuð tíl
samræmis við það. Sú barátta hefur engan árangur borið.
Samkvæmt úrskurði kjaranefndar frá því í júní 1997 skulu
mánaðarlaun sóknarpresta vera rúmlega 151 þúsund krónur.
Síðan eru greiddar einingar eftír stærð prestakalla og fá
prestar, sem þjóna færri en 1.000 sóknarbörnum, 7 einingar
Rekstrartekjur Nessóknar voru rúmar 45 milljónir á síðasta ári. Þar
vega þyngst um 32 milljónir í sóknargjöldum, um 6 milljóna króna
vaxtatekjur og 6 milljóna króna arfur sem kirkjunni áskotnaðist. Heild-
arútgjöld námu um 24 milljónum. Hagnaður Nessóknar var því um 21
milljón á síðasta ári. Nessöfnuður er fjárhagslega sterkur. Hann á um
85 milljónir í handbæru fé; sem geymt er á bankabókum, í Lands-
bankavíxlum og húsbréfum. Hjá Nessókn eru orgelkaup í undirbún-
ingi og einnig íhugar sóknin byggingu félagsheimilis.
Sóknargjöld áriö 1996
Fjöldi
Upphæöir í milljónum króna
í sókn
30,9
7.205
6.608
28,4
27,9
6.438
6.417
27,5
6.076
26,0
5.992
25,7
24,1
5.605
5.390
23,1
5.334
22,9
22,9
5.332
21,6
5.021
21,0
4.884
19,9
4.631
19,0
4.415
18,7
4.359
18,1
4.173
3.685
15,7
3.657
14,8
3.446
3.308
14,2
3.160
13,3
3.093
13,2
3.076
13,1
3.043
2.974
12,8
2.973
11,5
2.683
2.037
Nessókn
Hafnarfj.sókn
Akureyrarsókn
Grafarvogssókn
Háteigssókn
Seljasókn
Árbæjarsókn
Garöasókn
Keflavíkursókn
Dómkirkjusókn
Bústaðasókn
Hallgrímssókn
Grensássókn
Digranessókn
Hjallasókn
Lögmannshl.sókn
Langholtssókn
Akranessókn
Fellasókn
Lágafellssókn
Laugarnessókn
Seltj.nessókn
Ássókn
Hólabrekkusókn
Selfosssókn
Kársnessókn
Breiðholtssókn
isafjarðarsókn
Sóknargjöldin eru lifibrauð safnaðanna og eru greidd út
í hverjum mánuði. Sóknargjöld eru nefskattur, innheimt-
ur af öllum sem eru 16 ára og eldri, og námu um 4.518
krónur á mann á síðasta ári.
23