Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.09.1997, Blaðsíða 29
FRÉTTASKÝRING TRAUSTIÐ FARIÐ Af reglunum má Ijóst vera aö hafi ríkt fullkomið traust milli bankaráðs Seðlabankans og bankastjóranna er það traust rofið með þessum reglum. Starfsmenn, sem áður höfðu í framkvæmd sjálfdæmi um ferðalög sín, innan vissra marka, verða nú að sæta eftirliti. fimm mönnum. Þar sitja Þröstur Olafsson hagfræðingur, sem er for- maður, og auk hans eru í ráðinu þeir Ólafur Thors forstjóri, Davíð Schev- ing-Thorsteinsson fram- kvæmdastjóri, Davíð Að- alsteinsson bóndi og Kristín Sigurðardóttir viðskiptafræðingur. Ráðið er kosið af Al- þingi og skal fylgjast með rekstri bankans. Ráðið hefur yfirumsjón með starfsemi bankans ásamt bankastjórn. Ráðið gerir starfssamn- inga við bankastjóra en þeir eru skipaðir af við- skiptaráðherra eftir til- lögum ráðsins. Það þýðir þó ekki að ráð- herra fari eftir tillög- um ráðsins. Þannig fékk Steingrímur Hermannsson að- eins tvö atkvæði í bankaráði 1994 en Sighvatur Björg- vinsson, þáverandi viðskiptaráðherra, skipaði hann engu að síður. Þröstur Ólafsson, formaður banka- ráðs Seðlabankans, sagði í samtali við blaðið að vald bankaráðs væri skýrt. Það hefði ekki agavald yfir bankastjórunum, það vald væri hjá viðskiptaráðherra. Bankaráð- ið getur því ekki sagt bankastjórum upp né veitt þeim áminningu. Ráðið getur gert samþykktir og ályktað um starfsaðferðir bankastjóra en ekki er alveg skýrt að hve miklu leyti banka- stjórum er skylt að fara eftir slíkum samþykktum meðan þær ekki varða hluti þar sem vald bankaráðsins Stemgrímur helur hárr,U, r. ■ hverfismál ca.. fynr *ér hegflr h..nt, . efiiahagsmál' ftann seSir að seu munu seli.-i . Ssmal! Memti,,. w ad um- Ixuikasljíri SeaSf1 tllklar 1’a""í«ton er óskorað. Þannig er bankastjórum skylt að fara eftir reglum ráðsins um ferðatil- högun þar sem slíkt heyrir undir starfs- kjör bankastjóra og er því ótvírætt á valdsviði bankaráðs. FERÐIRNARITOLUM Það, sem deilt er um, er í rauninni ferðakostnaður. Kostnaður vegna ut- anferða bankastjóra í Seðlabankanum var árið 1994 rétt rúmar 6 milljónir. Hann jókst í 7.5 milljónir árið 1995 og stökk í 8.7 milljónir 1996 og stefnir í 8.8 milljónir 1997. Risnukostnaður þeirra erlendis var 260 þúsund árið 1994 og 262 þúsund árið 1996 en stefnir í 382 þúsund fyrir allt árið 1997. Ferðakostnaður maka bankastjóra var 482 þús- und árið 1994 en 1.486 þúsund árið 1996 og stefnir í 1.380 þúsund á þessu ári. EN HVAÐ EF ÞEIR GEGNA EKKI? Eðlilega hefur lítið eða ekkert reynt á hinar allra nýjustu starfsreglur banka- ráðs um ferðir bankastjóra og því of snemmt að segja hvort tilraunir bankaráðsins til að hafa stjórn á Steingrími beri árangur. Þröstur Ólafsson sagði að kæmi upp sú staða að banka- stjóri hlítti ekki skilmálum ráðs- ins um ferðatilhögun eða ferða- kostnað ætti bankaráðið í raun aðeins einn kost. Hann er sá að neita að samþykkja ársreikninga bankans. Slík aðgerð væri örþrifaráð og bæri vott um slíkan trúnaðarbrest milli bankastjóra og bankaráðs að annað hvort yrði að víkja. S5 VERÐUR EKKISKRIFAÐ UNDIR ÁRSREIKNINGA? Þröstur Ólafsson sagði í samtali við Frjálsa verslun að kæmi upp sú staða að bankastjóri hlítti ekki skilmálum ráðsins um ferðatil- högun eða ferðakostnað ætti bankaráðið í raun aðeins einn kost. Hann væri sá að neita að samþykkja ársreikninga bankans. Slík aðgerð væri örþrifaráð og bæri vott um slíkan trúnaöarbrest milli bankastjóra og bankaráðs aö annað hvort yrði að víkja. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.