Frjáls verslun - 01.09.1997, Blaðsíða 6
RITSTJORNARGREIN
FEIMNISMAL
Laun æðstu stjórnenda í fyrirtækjum á íslandi eru
of mikið feimnismál þótt engin rök séu fyrir slíku!
Ekkert hlutafélag á hinum almenna hlutabréfamark-
aði hefur stigið það skref að tilgreina laun forstjóra
síns - heldur hafa félögin látið duga að
gefa upp heildarlaun æðstu stjórnenda -
ósundiu-liðuð - eins og lög gera raunar
ráð fyrir. Og á dögunum neituðu ný-
kjörnir stjórnarformenn Landsbankans
og Búnaðarbankans að gefa upp laun
bankastjóra sinna en bankarnir verða
reknir sem hlutafélög frá áramótum.
Samkvæmt hlutafélagalögum og
reglugerð frá síðasta ári um framsetn-
ingu og innihald ársreikninga og sam-
stæðureikninga ber að tilgreina heildar-
fjárhæð launa, þóknana og ágóðahluta
til stjórnenda félags vegna starfa í þágu þess. Með
stjórnendum eiga lögin við stjórn félags og þá starfs-
menn sem hún ræður. Þótt ekkert hlutafélag hafi enn
treyst sér til að birta sundurliðuð laun æðstu stjórn-
enda sinna mun koma að þvi einn daginn. Laun for-
stjóra hlutafélags á almennum hlutabréfamarkaði geta
ekld verið leyndarmál!
I lögum um hlutafélög segir að hluthafafúndur fari
með vald til að ákveða hvers kyns eftirlitsaðgerðir og
til að krefja aðra stjórnaraðila allra þeirra upplýsinga
sem hann telur nauðsynlegar. Og orðrétt segir:
„Stjórnin er því tvímælalaust skyldug til að gefa upp-
lýsingar sem hluthafafundur æskir, jafiivel þótt hún
telji að þær upplýsingar geti leitt til tjóns fyrir félagið.”
Þetta verður vart skilið á annan veg en þann að stjórn
beri að gefa upplýsingar um laun forstjóra og annarra
æðstu stjórnenda fari hluthafafimdur fram á það. í
raun ætti einhver hluthafi í fyrirtæki, sem skráð er á
Verðbréfaþingi íslands, að standa upp á næsta hlut-
hafaftmdi og spyija stjómarformanninn um laun æðstu
stjórnenda fyrirtækisins. Láta reyna á málið! I þessu
máli sem öðrum er mikilvægt að bijóta ísinn!
Erlendis þykir það ekld nema sjálf-
sagt að greina frá launum forstjóra í fyr-
irtækjum á almennum hlutabréfamark-
aði. Og þar þyldr sömuleiðis eðlilegt að
rit um viðskipti og efnahagsmál íjalli ít-
arlega um laun forstjóra. Þær upplýs-
ingar eru að sjálfsögðu fengnar frá fyrir-
tækjunum sjálfum. Erlendis tíðkast það
mjög að tengja laun forstjóra við árang-
ur og afkomu fyrirtækjanna. Það er hins
vegar afar sjaldgæft hérlendis. Hér hafa
forstjórar yfirleitt sömu laun hvort sem
fyrirtækin ganga vel eða illa.
I könnun, sem birt var í Fijálsri verslun fyrir
nokkrum árum og var úr lokaritgerð Halldórs Frið-
riks Þorsteinssonar viðskiptafræðings, kom firam að í
yfir helmingi tilvika er það stjórnarformaður sem
semur við forstjóra um laun hans - og langoftast er sá
samningur trúnaðarmál á milli forstjórans og stjórn-
arformannsins. Með öðrum orðum; stjórnarmenn
vita í mörgum tilvikum ekki hvað forstjóri þeirra hef-
ur í laun!!! Slíkt pukur verðiu- að teljast með ólíkind-
um. Sömuleiðis kom fram í könnun Halldórs að í um
helmingi tilvika fjallar stjórn ekki um frammistöðu
forstjórans að honum ljarstöddum!
Upplýsingar til hluthafa fyrirtækja á hinum al-
menna hlutabréfamarkaði eiga að vera sem ítarlegast-
ar. Það getur ekki verið leyndarmál gagnvart hluthöf-
um hvað forstjórar hafi í laun og hvort Iqor þeirra geti
talist eðlileg miðað við afkomu fyrirtækja!
Jón G. Hauksson
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 58. árgangur
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - UÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir - UMBROT: Ágústa
Ragnarsdóttir. - UTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105
Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 - ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með
kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- - DREIFING í bókaverslanir og söluturna
á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími: GSM 89-23334. - FILMUVINNA, PRENTUN OG
BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
6