Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 10
Vilhjálmur Bjarnason verðbréfamiðlari segist ekki hafa mikið álit á
fjármálaráðgjöf sem byggist á tilfinningu.
FV-mynd: Geir Olafsson.
Vilhjálmur Bjarnason veröbréfamiöl-
ari átti hœsta tilboö í hlutabréfí
Landsbankanum.
IBANKANUM
BESTU KAUPIN
aðurinn sem átti
hæsta tilboðið í þau
hlutabréf í Lands-
bankanum sem seld voru á
uppboði í haust var Vilhjálm-
ur Bjarnason, viðskiptafræð-
ingur og háskólakennari. Vil-
hjálmur hefur verið þekktur í
viðskiptalífinu um árabil bæði
sem bankaútibússtjóri og
verðbréfamiðlari.
Rúmlega 50 tilboð bárust
en Vilhjálmur bauð gengi
2,566 í pakkann og auk þess
sem falla kynni til af öðrum
bréfum sem ekki seldust. Til-
boði hans var tekið og hann
greiddi rúmar 128 milljónir
fyrir hlutann sem boðinn var
út en lokauppgjör hefur ekki
farið fram enn. Alls voru seld
15% hlutaflár í Landsbankan-
um sem liður í einkavæðingu
bankans. Þótt allir hluthafar
legðust á eitt í margfeldis-
kosningu gætu þeir þó ekki
komið manni í bankaráð því
til þess þyrfti 16.6%
Vilhjálmur hefur lýst því
yfir að hann hafi boðið í bréf-
in í umboði fleiri fjárfesta en
segir ekki tímabært að gefa
upp hveijir það séu. En hver
er rökstuðningurinn fyrir því
að kaupa bréfin?
,Afkoman, sem bankinn
hefur sýnt á undanförnum
árum, að frátöldum afskrift-
um lána, sem teljast fortíðar-
vandi, sýna okkur að þetta
eru góð kaup. Verðið á sam-
bærilegri stofnun, þ.e. Is-
landsbanka styður þessa
skoðun einnig.
Það er svigrúm fyrir veru-
lega hagræðingu í bankan-
um. Kostnaðarhlutfall af bein-
um rekstrartekjum er 70-75%
í Landsbankanum en Islands-
banki hefur komið því niður í
60%. Eg sé ekkert því til fýrir-
stöðu að gera það sama í
Landsbankanum. Slíkt væri
hagnaður hluthafa og við-
skiptamanna. Það er ekki víst
að endamörkum sé náð i
lækkun þessa hlutfalls."
Var verðið sem þú keyptir
á of hátt eins og sumir hafa
haldið fram?
„Nei það var ekki of hátt.
Annars hefði ég ekki boðið
það. Þetta er fjárfesting til
framtíðar og þótt sumir ráð-
leggi þeim sem keyptu hlut
að selja strax og hagnast um
mmmmm fréttir
15 þúsund krónur þá tel ég
það afar vonda fjármálaráð-
gjöf.“
Telur þú að frekari sam-
runi banka sé æskilegur eða
líklegur?
„Bönkum hefur fækkað á
undanförnum árum og ég sé
ekki nauðsyn á frekari sam-
einingu."
Islenskur hlutabréfamark-
aður er í stöðugri þróun. Er
hann enn of lítill og kyrrstæð-
ur?
„Það eru of fáir stórir
stofnanafjárfestar og ef þeir
hreyfa sig fer markaðurinn af
stað. Eg heí hef hins vegar
engar sérstakar áhyggjur af
kyrrstöðu á markaðnum en
meiri áhyggjur af verðlagn-
ingu á hlutabréfum. Þeir sem
ráðleggja fólki eru of hógvær-
ir og óttast að styggja iýrir-
tæki. Mér finnst ég ekki sjá
nógu mikið af ráðgjöf sem er
byggð á traustum forsendum
og úttektum. Eg hef ekkert
álit á hugmyndum og ráðum
sem koma frá hjartanu."
Vilhjálmur er fæddur í
Reykjavík 20. apríl 1952, son-
ur Bjarna Vilhjálmssonar
þjóðskjalavarðar og Kristínar
Eiríksdóttur. Hann varð stúd-
ent frá MH 1972, hagfræðing-
ur frá HÍ 1977, fékk löggild-
ingu til verðbréfamiðlunar
1988 og stundaði framhalds-
nám við Rutgers University,
The State University af New
Jersey, árið 1995-1997.
Vilhjálmur hefur starfað
hjá Raunvísindastofnun Há-
skólans, Seðlabanka Islands,
Utvegsbanka Islands, þar á
meðal sem útibússtjóri í
Vestmannaeyjum um sjö ára
skeið. Vilhjálmur hefur starf-
að hjá Kaupþingi og Fjárfest-
ingarfélagi Islands síðan auk
þess að stunda sjálfstæða
verðbréfamiðlun.
10