Frjáls verslun - 01.09.1998, Qupperneq 17
NÆRMYND
þá m.a. á fermingarservíettur fyrir föður
sinn og nafhspjöld fyrir bekkjarfélaga sína
gegn vægu gjaldi! Prentvélin gamla er á
stærð við litla ferðatösku og stendur á stalli
niðri i GSP.
MROG ÞJÓÐVIUINN
Gunnar Steinn útskrifaðist úr Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1975 eftir litrík-
an feril í skólanum sem einkenndist af
virkri þátttöku í félagsmálum, einbeittum
stuðningi við málstað vinstri manna og um-
deildri útgáfu á söngbók sem Gunnar gaf
út öll árin sem hann var í menntaskóla.
Gunnar fór að vinna hjá dagblaðinu Þjóð-
viljanum, fyrst sem ljósmyndari á sumrin
með menntaskóla, síðan sem blaðamaður
að loknu stúdentsprófi. Ljósmyndun var og
er mikið áhugamál Gunnars og hann hefur
grúskað í henni frá unga aldri og á ung-
lingsárum hélt hann ljósmyndanámskeið
fyrir enn yngri áhugamenn í Kópavogi. Eft-
ir tveggja ára starf sem blaðamaður á Þjóð-
viljanum gerðist hann auglýsingastjóri
blaðsins og gegndi því starfi til 1979.
Hann færði sig smátt og smátt yfir í
auglýsingar, sem fljótlega sýndi sig að átti
mjög vel við hann, og varð einn af fáum
blaðamönnum sem hafa fært sig milli
starfsgreina á einu blaði með þessum
hætti.
GBB OG HVÍTA HÚSIÐ
Eftir að hafa selt auglýsingar í Þjóðvilj-
ann með góðum árangri í tvö ár ákvað
hann að söðla um og reyna fyrir sér í sjálf-
stæðum atvinnurekstri. Hann keypti sig
inn í Auglýsingaþjónustuna, sem þá var lít-
Gunnar Steinn Pálsson hefur lagt línurnar í sumum best heppnuðu markaðsherferðum seinni
ára. Hvort sem pað er mjólk, fiskur, forsetaframboð eða ímynd steerstu fyrirtœkja landsins þá
leita allir til Gunnars.
NN Á BAK V» ÍMYNDINA!
einn helsti ímyndarfræðingur landsins. Hann er núna með herferð fyrir útgerðarmenn.
vinna hans fyrir ÓlafRagnar Grímsson í forsetakosningunum og R-listann sl. vor.
il auglýsingastofa í eigu Gunnars Gunnars-
sonar. Umsvifin jukust hratt en eftir nokk-
urra ára samstarf skildu leiðir þegar Gunn-
ar Steinn keypti félaga sinn út og átti Aug-
lýsingaþjónustuna eftir það einn. Arið 1986
sameinuðu þeir Gunnar Steinn og Gísli B.
Björnsson, sem þá átti með nokkrum öðr-
um auglýsingastofuna GBB, stofur sínar
og til varð langstærsta auglýsingastofa
landsins, GBB auglýsingaþjónustan, sem
síðar skipti um nafn og heitir nú Hvíta hús-
ið.
Aður halði Gunnar fengist við ýmsa til-
raunastarfsemi í rekstri. Hann stofnaði
t.d. auglýsingastofuna Tímabæ árið 1985.
Þetta var lítil auglýsingastofa sem byggði
á því að afgreiða auglýsingar með hraði,
helst samdægurs. Tímabær auglýsti fasta
verðskrá fyrir „einfaldar, flóknar eða með-
alstórar" auglýsingar og gerði mikinn usla
í auglýsingabransanum. Tímabær fagnaði
17